Bændablaðið - 09.02.2017, Side 32

Bændablaðið - 09.02.2017, Side 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. febrúar 2017 Peder Nernæs, sem býr í Mundheim í Harðangursfirði í Noregi, er meðal fyrstu kúabónda þar í landi sem tekur í notkun sérstaka tegund vatnsdýna fyrir kýrnar sínar. Hann hefur trú á að mýkra undirlag gefi dýrunum betra líf og geti gefið honum arð- bærari rekstur. „Ég fjárfesti í vatnsdýnum þegar ég gerði endurbætur á fjósinu í fyrra. Áður fyrr var hér básafjós en þegar ég tók við af föður mínum ákvað ég fljótt að nútímavæða fjósið. Til að ná niður kostnaði hef ég ekki byggt alveg nýtt fjós heldur útbjó viðbyggingu á fjósið sem fyrir var þannig að lausagangan með mjólk- urróbóta og kvíguhlutann er nú í nýju húsi en ég nota enn eldri hlutann fyrir fóðurmiðstöð, kálfahlutann, mjólk- urhúsið og skrifstofuna,“ útskýrir Peder. Annar besti kosturinn Noregur var fyrsta landið í heiminum sem innleiddi kröfu um undirlag stórfénaðar og því sést ekki lengur þar í landi að kýrnar liggi á kaldri steypu í fjósinu. „Ég eyddi miklum tíma í að finna út hvernig ég vildi hafa við- bygginguna og eitt af því sem ég las mikið um og kynnti mér voru ólíkar tegundir undirlags. Í ferlinu las ég að talið er að sandur sé besta undir- lagið en það er lítið um góðan sand hér í Harðangurfirði þar sem ég bý og það leiðir því til aukavinnu og sliti á dælubúnaði. Ég er með eigin sögunarmyllu hér svo ég íhugaði að nota spæni en færðist frá þeirri hug- mynd vegna hreinlætissjónarmiða og þeirrar vinnu sem það krefst, því skipta þarf því út með jöfnu milli- bili,“ segir Peder og bætir við: „Þá var ég kominn yfir í ólík- ar tegundir af gúmmíundirlagi og steypulegubása. Næst á eftir sand- inum, þar sem ég aflaði mér upplýs- inga, var talað um að vatnsdýnur væri annar besti valkosturinn. Mér fannst það hljóma mjög spennandi og þegar ég komst að því að fyrirtækið sem ég hafði verslað innréttingar og steypuna hjá voru einnig með vatnsdýnur í sölu Auðvelt að setja upp í fjósinu Verðið á dýnunum var í kringum 1.100 krónur norskar fyrir hvert bása- pláss. Dýnurnar, sem heita Pacific og eru framleiddar af franska fyrirtækinu Bioret Agri, keypti Peder hjá danska fyrirtækinu Staldmæglerne. „Ég fékk þær afhentar með tíu ára ábyrgð en það eru einnig fleiri heildsöluaðilar sem selja vatnsdýn- urnar. Rétt eftir að ég hafði geng- ið frá kaupum við Staldmæglerne hóf norskur heildsöluaðili að flytja inn ameríska vatnsdýnu sem heitir GladQ en hann er einmitt kúabóndi í Finnøy og hefur sett þær upp hjá sér. Dýnurnar sem ég fjárfesti í er hægt að fá í þremur ólíkum breiddum og eru byggðar upp sem ein samhangandi rúlla með vasa með vatni fyrir hvert básapláss,“ útskýrir Peder og segir jafnframt: „Til að verja hnén á dýrunum þegar þau leggja sig niður ligg- ur rönd með 60 sentímetra breiðu froðugúmmíi undir dýnunum fremst. Þegar dýrið hefur lagst niður dreifist þunginn yfir dýnuna og þau liggja mjúklega ofan á vatnsvasanum. Það var mjög einfalt að leggja dýnurnar sjálfur í fjósinu, við merktum hvar þær ættu að liggja, rúlluðum út rúll- unni sem var afhent í réttri lengd fyrir röðina og skrúfuðum þær fastar með álskinnum.“ Kýrnar liggja meir en áður Kýrnar hans Peders liggja sem sagt á þykkum dýnum/mottum í fjósinu með vatni í sem dýrin hita sjálf upp með líkamshita sínum. „Þetta hefur gengið mjög vel og engir vatnslekar átt sér stað, í það minnsta ekki ennþá. Dýrin liggja mikið, um 14–16 tíma á sólarhring, og þetta hefur gefið meiri ró í fjósinu. Ég hef ekki orðið var við nein legu- sár og ekki eru sjáanlegir hnéskaðar því undirlagið er svo mjúkt þegar dýrin leggjast og standa upp. Ég er sannfærður um að vatnsdýnurnar séu góðar fyrir dýrin og góðar fyrir mjólkurframleiðsluna. Ég mæli því með þessu við aðra kúabændur en ég vil heldur ekki fullyrða að aðrar lausnir séu eitthvað verri. Bændur eru eins og annað fólk og gera gott úr því sem þeir velja fyrir sig, sjálfur er ég aðeins varkárari og segi að þetta kemur vel út hérna hjá mér og ég er ánægður með valið.“ /ehg Mundheim í Harðangursfirði í Noregi: Kýrnar liggja í ró og spekt á vatnsdýnum UTAN ÚR HEIMI – VERKIN TALA FR U M - w w w .f ru m .is Vicon áburðardreifarar í ýmsum stærðum. VERKIN TALA Vökvaopnun, hallatjakkur, kögglagrind og frædreifibúnaður. Verðdæmi 1350 lítra fullbúin á kr. 490,000,- án vsk Til sölu ný 5 hesta kerra Verð 2.000.000 + VSK Uppl. Í síma 897 9353

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.