Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201836
Sigríður Anna Ásgeirsdóttir
leiðsögumaður á og rekur ferða-
þjónustufyrirtækið Crisscross,
sem sérhæfir sig í að kynna
íslenskan mat og matarhefðir
fyrir erlendum ferða mönnum.
Hún byrjaði með ferðirnar fyrir
tveimur árum sem hafa vaxið
þétt síðan og segir hún það koma
ferðamönnunum á óvart hversu
mikil fjölbreytni er í íslenskri
matarflóru.
„Ég tók þátt í Startup tourism
með vinkonu minni, Ólöfu
Ingólfsdóttur, þar sem við áttum
að koma með tillögu að nýjung í
ferðamennsku. Þar sem við höfum
báðar sameiginlegan mataráhuga
lá það beinast við að koma með
þá hugmynd inn enda var enginn
að sinna þessu hér heima. Þannig
ákváðum við að koma með hugmynd
að matarferðum en slíkar ferðir eru
vel þekktar í Norður-Ameríku og í
Frakklandi og Ítalíu þar sem fléttað
er saman vín- og matarferðum. En
það er í raun ekkert annað fyrirtæki
sem hefur verið að fókusera á ferðir
eins og við hjá Crisscross bjóðum
upp á.“
Persónulegar dagsferðir
Sigríður Anna seldi nýverið
fyrirtæki sitt, Kruss, þar sem hún
framleiddi mysudrykk, til ábúenda
á Erpsstöðum í Dölum. Hún tók þátt
í matarmarkaðnum í Hörpu í nokkur
skipti og kynntist þar íslenskum
matvælum og framleiðendum.
„Það sem hefur verið í boði hérna
heima er rölt um miðbæ Reykjavíkur
með smakki á nokkrum stöðum og
það hafa verið nokkrir aðilar sem
hafa verið með þessar ferðir. Síðan
er auðvitað hægt að stoppa í Efstadal
og Friðheimum sem tengist þá meira
gullna hringnum. Ég hef mest farið
með ferðamennina á Vesturlandið
og kynnt þá fyrir matarkistunni þar.
Hjartað í ferðunum eru dagsferðir
í Borgarfjörð og Hvalfjörð þar
sem við förum á staði þar sem er
ekki eins mikið af ferðamönnum.
Þetta flokkast undir slowtravel-
ferðir sem skilja meira eftir sig í
nærumhverfinu. Við höfum einnig
boðið upp á lengri ferðir á Vestfirði
og erum að skoða Snæfellsnesið,“
segir Sigríður Anna og bætir við:
„Við tökum eftir því að þessir
ferðamenn sem koma í ferðirnar vilja
persónulegri þjónustu og að kynnast
íslenskum matarhefðum ásamt því
að kynnast framleiðendum. Einnig
er mikill áhugi á nýjungum í
matargerð sem hefur náttúrlega farið
vaxandi hérna eftir hrunið. Fólk er
orðið sniðugra að nota matvæli úr
nærumhverfinu og að því leyti er
hugsunarhátturinn mikið breyttur.
Ferðamennirnir vilja fá bragðgóðan
íslenskan mat og höfum við mikið
verið með sjávarfang, kryddjurtir,
lambakjöt og skyr sem dæmi.“
Fjölbreytnin kemur á óvart
Flestir sem koma í ferðirnar eru
frá Bandaríkjunum og Kanada en
einnig frá Frakklandi, Bretlandi og
Singapúr sem dæmi.
„Þetta eru litlir hópar, eða innan
við tíu manns í hvert sinn. Þannig
næ ég að bjóða upp á meira samtal
við fólkið. Undantekningarlaust er
fólkið mjög ánægt með íslenskan
mat og fjölbreytnina, hún
kemur þeim á óvart. Einnig hafa
ferðamennirnir mikinn áhuga á
hvað sé mikill fjölskyldubúskapur
hérlendis,“ útskýrir Sigríður Anna
og segir jafnframt:
„Í okkar ferðum bjóðum við upp
á íslenskt matarhandverk, bæði frá
þeim framleiðendum sem við
heimsækjum sem og öðrum sem
nota hráefni úr íslenskri náttúru,
mat sem er bragðgóður og hefur
sögu að segja. Við reynum að tengja
matarupplifunina við frásagnir af
fólki og staðarháttum og hvernig
aðstæður og umhverfi hefur haft
áhrif á matarvenjur Íslendinga í
gegnum tíðina. Fólk hefur mikla
ánægju af því að borða mat sem
hefur bein tengsl við þá staði sem
við heimsækjum.“
Gagnkvæmur ávinningur
Ferðaskrifstofan Crisscross sérhæfir
sig í að kynna land og þjóð í gegnum
mat og matarhefðir með heimsóknum
til bænda og smáframleiðenda og er
því samstarfið við þessa aðila mjög
mikilvægt.
„Við höfum mikið heimsótt
Bjarteyjarsand í Hvalfirði, Háafell
í Borgarfirði, Miðdal í Kjós og
Erpsstaði í Dalasýslu, sem sagt
bændur sem hafa sjálfbærni að
leiðarljósi. Það skiptir öllu máli að
eiga gott samstarf við heimamenn
sem eiga það flestir ef ekki allir
sameiginlegt að hluti af búskapnum
hjá þeim er samofinn ferðaþjónustu.
Þetta eru bændur sem hafa aðstöðu
og viljann til að taka á móti fólki.
Það þarf að vera gagnkvæmur
ávinningur til að þetta gangi upp,“
segir Sigríður Anna og varðandi
framhaldið bætir hún við:
„Þetta getur þróast á margan hátt
eins og til dæmis með námskeiðshaldi
með matreiðslumönnum og
heimafólki. Það er mikill áhugi
á að komast í tengsl við hráefnin
og jafnvel hráefnisöflun. Einnig
snýst þetta um tengsl við náttúruna
og ef veður leyfir förum við með
smakk út í náttúruna og bendum á
árstíðabundin hráefni, eins og jurtir,
fjallagrös og ber.“ /ehg
Ferðaþjónustufyrirtækið Crisscross:
Kynnir íslenskar matarkistur
MATUR&MENNINNG
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
kynna íslenskan mat og matarhefðir.
Það kemur ferðamönnunum sem koma í matarferðirnar á óvart hversu mikil