Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201810 FRÉTTIR Forstjóri Matís seldi lambakjöt af heimaslátruðu á bændamarkaði á Hofsósi – segir tilganginn meðal annars hafa verið að vekja athygli á að breyta þurfi regluverki um heimaslátrun og sölu Bændur á bænum Birkihlíð í Skaga firði slátruðu lömbum heima í síðustu viku. Slátrunin fór fram í samstarfi við Matís og var framkvæmd hennar í samræmi við verklag sem Matís hefur lagt til að gildi um örsláturhús. Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, seldi síðan kjötafurðir af lömbunum á bændamarkaði á Hofsósi síðastliðinn sunnudag. Óheimilt er að selja afurðir af heimaslátruðum gripum, en Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, segir tilganginn hafa meðal annars verið að vekja athygli á að þörf sé á breytingum á þessu sviði að ýmsu leyti. „Tilgangurinn var í rauninni margþættur; í fyrsta lagi vorum við að láta reyna á hvort hægt sé að slátra heima á bóndabýli við aðstæður í samræmi við tillögur okkar um fyrirkomulag á svokallaðri örslátrun. Staðfest var, fyrir sölu afurðanna, að örverufræðileg staða kjötsins var með miklum ágætum og má því segja að það sé búið að staðfesta að þetta er hægt. Á næstu vikum verður unnið frekar úr mælingum, meðal annars á meyrni kjötsins og arðsemi örslátrunar og þær birtar, en lögð var áhersla á það við framkvæmd tilraunarinnar að meta hversu mikinn tíma það tók að fylgja ferlinu,“ segir Sveinn og bendir á að nálgast megi tillögurnar á vef Matís, matis.is. Miklir möguleikar fyrir bændur að auka verðmæti „Við viljum líka benda á mikla þörf fyrir að fram fari heildstætt, vísindalegt áhættumat, við ákvarðanir og áhættustjórnun tengt matvælaöryggi á Íslandi. Einnig að benda á möguleika til að auka verðmætasköpun fyrir bændur og um leið prófa Matarlandslagið. is sem vettvang til að stuðla að beinum viðskiptum á milli bænda og neytenda. Að mínu mati eru miklir möguleikar fyrir bændur til að auka verðmæti með þessum hætti og þannig stuðla að jákvæðri þróun í byggðum landsins,“ segir Sveinn. Gagnagrunnurinn á vefnum matarlandslagid.is mun gefa möguleika á heildrænni sýn á matvælaframleiðslu úr auðlindum lands og sjávar á Íslandi. Auk þess er stefnt að því að um nýjan vettvang beinna viðskipta neytenda við bændur og aðra framleiðendur verði að ræða, þar sem öryggi og upprunaleiki upplýsinga um afurðir verður tryggt með svokallaðri „blockchain-tækni“, til að tryggja rekjanleika. Áhugi á örslátruðu kjöti beint frá bónda Að sögn Sveins fólst einnig í uppátækinu óformleg könnun á áhuga neytenda á lambakjöti sem slátrað er hjá bónda. „Þó ekki sé hægt að segja að um eiginlega markaðsrannsókn sé að ræða þori ég að fullyrða, eftir viðtökur þeirra sem komu á matarmarkaðinn í gær [sunnudag], að það er mikill áhugi á því að kaupa örslátrað kjöt beint af bónda. Jafnframt er mikill áhugi á því að vita meira um kjötið og fólk sýndi mikinn áhuga á að kynna sér gögnin sem eru geymd á blockchain- forminu, ekki síst þegar rætt var um þann möguleika að hægt verði að nálgast GPS-staðsetningargögn í framtíðinni, um hvar lömb hafa gengið. Við viljum með þessu ýta undir umræðu um aukna verðmætasköpun í sveitum landsins og hvernig aðlaga þurfi regluverk til þess að slíkum markmiðum megi ná fram. Líka viljum við að neytendur hafi aðgengi að fjölbreyttri flóru afurða, en geti á sama tíma treyst matvælaöryggi í landinu.“ Verðmætaaukning og matvælaöryggi Sveinn segist ekki hafa sérstakar skoðanir á því hvort Matís hafi vísvitandi verið að brjóta lög. „Hlutverk Matís er að auka verðmæti og á sama tíma stuðla að matvælaöryggi. Við höfum í drjúgan tíma bent á möguleikana sem gætu falist í að örva nýsköpun í sveitum landsins með því að leyfa bændum að slátra sjálfir heima, samanber tillögu okkar, en þær ábendingar hafa ekki leitt til breytinga. Það er engum til góðs að núverandi staða verði raunin til framtíðar, þar sem bændur eiga í erfiðleikum með að ná endum saman í rekstrinum, neysla á lambakjöti dregst saman samkvæmt opinberum tölum og fyrir hendi er umtalsverð heimaslátrun. Mér þykir því afar mikilvægt að það verði tekið á málunum að þessu sinni.“ Að sögn Hjalta Andrasonar, fræðslustjóra Matvælastofnunar, hefur stofnunin fengið upplýsingar um málið og það sé til skoðunar. Segir hann að afstaða verði tekin út frá málsatvikum. /smh Eva Margrét Jónudóttir, starfsmaður Matís, skoðar hliðarafurðir. Með nýtingu hliðarafurða geta bændur skapað sér aukin tækifæri. Myndir / Matís Valur N. Gunnlaugsson mælir sýru- stig. Meyrni lambakjöts fer meðal annars eftir meðhöndlun við slátrun. Fylgst með magni örvera. Þekking á áhættu er grunnur að áhættumati og matvælaöryggi. Milliliðalaus viðskipti á Facebook milli framleiðenda og neytenda: Smáframleiðendur og bændur koma með vörur sínar í þéttbýlið – Fyrsta afhending svokallaðra REKO-hópa verður næstkomandi laugardag Milliliðalaus sala á matvælum færist í vöxt. Ein birtingarmynd þess er svokölluð REKO-hugmyndafræði sem rekin er í gegnum Facebook- hópa. Laugardaginn 13. október ætla bændur, heimavinnsluaðilar og smáframleiðendur á Suðvesturlandi að leggja leið sína í þéttbýlið og afhenda kaupendum vörur sínar sem þeir hafa lagt inn pantanir fyrir í gegnum Facebook-hópana REKO Reykjavík og REKO Vesturland sem voru nýlega stofnaðir. REKO er tekið úr sænsku og er stytting á „vistvænir og heiðarlegir viðskiptahættir“. Matarauður Íslands – í samvinnu við Bændasamtök Íslands - hefur unnið að því að koma REKO- hugmyndafræðinni af stað hér á landi og eru nú að myndast hópar um land allt. Markaðstorgið er í Facebook-hópnum Stjórnendur hópanna, þær Arnheiður Hjörleifsdóttir bóndi (REKO Reykjavík) og Hlédís Sveinsdóttir hjá Matarauði Vesturlands (REKO Vesturland), vinna að skipulagningu viðburðanna í samvinnu við Oddnýju Önnu Björnsdóttur ráðgjafa sem vinnur að verkefninu fyrir Matarauð Íslands. Að sögn Oddnýjar er enn tími fyrir bændur og framleiðendur að taka þátt. „Hægt er að selja allar tegundir löglegra matvara eins og kjöt, fisk, egg, sjávarfang, grænmeti, brauð og kökur, osta, sultur og sælgæti. Í hvorum hóp fyrir sig hefur verið stofnaður sérstakur viðburður fyrir fyrstu afhendinguna, en planið er að hafa slíka viðburði reglulega. Hve reglulega mun fara eftir framboði og eftirspurn. Fyrirkomulagið er þannig að framleiðendur setja inn færslur inn í þá viðburði sem þeir vilja taka þátt í þar sem þeir tilgreina hvað þeir hafi í boði og hvað það kosti. Undir hverja færslu setja áhugasamir kaupendur inn athugasemd þar sem þeir tilgreina hvað þeir vilji kaupa og hve mikið. Þeir geta einnig gert það í einkaskilaboðum til framleiðenda. Kaupendur greiða framleið- endunum svo rafrænt fyrir það sem þeir ætla að kaupa – fyrir afhendingardaginn. Á afhendingardeginum afhenda framleiðendur kaupendum síðan vörurnar milliliðalaust,“ segir Oddný. Milliliðalaus viðskipti Tilgangurinn með REKO er að efla nærsamfélagsneyslu og færa framleiðendur og kaup endur nær hver öðrum; gera matarhandverki og heima vinnslu hærra undir höfði og færa smáframleiðendur ofar í virðiskeðjunni. Fyrsta afhending REKO Vesturlands verður laugar- daginn 13. október klukkan 11-12 á bílaplani Krónunnar á Akranesi og REKO Reykjavík sama dag klukkan 13-14 á bílaplani Krónunnar í Lindum. Sömu framleiðendur geta tekið þátt í báðum hópum. Þeir framleiðendur sem hafa áhuga á að taka þátt, eða vilja nánari upplýsingar, geta haft samband við þær Hlédísi, Arnheiði eða Oddnýju í gegnum Facebook. Neðangreindir framleiðendur höfðu boðið vörur til sölu og afhendingar næstkomandi laugardag þegar blaðið fór í prentun. /smh REKO Reykjavík framleiðendur: • Korngrís frá Laxárdal með svínakjöt. • Lindarbrekka með kálfakjöt og fleira. • Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi með lamba- og kindakjöt. • Súrkál fyrir sælkera. • Litla gula hænan með kjúkling. • Mýrarnaut með nautakjöt. • Ragnheiður Hallgrímsdóttir með heimagerðan brjóstsykur. • Bjarteyjarsandur með lambakjöt og fleira. REKO Vesturland framleiðendur: • Matarhandverk Fram-Skorradal. Með birkireyktan silung, sultur og salza. • Sauðfjárbúið Ytri-Hólmi. Kofareykt sveitabjúga, kindahakk og fjölbreytt úrval lambakjöts. • Súrkál fyrir sælkera. Fimm gerðir af ljúffengu súrkáli. Klassískt með kúmeni og lauk, Curtido, Kimchi, karrýkál og sítrónukálið ljúfa. • Lindarbrekka. Alikálfakjöt, kálfahakk, gr ísakjöt, landnámshænuegg, hrútaberjahlaup og handgerður brjóstsykur. • Bjarteyjarsandur. Kindabjúgu ömmu Kollu, kryddað lambafillet, úrbeinað og fyllt lambalæri, kindahakk, birkireyktur bláberjabiti, grafinn geitavöðvi og heimagert mintuhlaup. • Mýranaut. Nautasteikur, ribeye, sirlon, entrecote og innralæri. • Hjarðarfellsbúið. Hamborgarar af snæfellsku nauti. Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi. Mynd / Sauðfjárbúið Ytra-Hólmi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.