Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 53

Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 53
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 2018 53 og ræktendur eru Anna Kristín Geirsdóttir og Vignir Siggeirsson. 87 stóðhestar í sex vetra flokki Í sex vetra flokki stóðhesta voru sýndir 87 hestar og voru þeir 8.5% sýndra hrossa. Með þriðju hæstu einkunn ársins, 8,76, var klárhesturinn Kveikur frá Stangarlæk 1 úr ræktun Rögnu Björnsdóttur, undan Sjóði frá Kirkjubæ og Rakettu frá Kjarnholtum. Kveikur er einn fegursti hestur í reið sem fram hefur komið og er einstaklega skrokkmjúkur og fjaðurmagnaður í hreyfingum. Hann hlaut 10 fyrir tölt á Landsmótinu og verður mýktin og gegnumflæðið sem hann býr yfir að vera viðmið þegar háar tölur eru gefnar fyrir tölt, hvort sem það er í kynbótadómi eða keppni. Kveikur er sérstaklega framhár og burðarmikill í sköpulaginu og það gerir honum kleift að ganga svona reistur og frjáls í fasi án þess að tapa burði í baki. Hann hlaut 9.5 fyrir brokk, stökk og fegurð í reið og 10 fyrir vilja og geðslag enda einstaklega aðgengilegur og þjáll og var samstarf þeirra Kveiks og Aðalheiðar Önnu til mikillar fyrirmyndar. Með aðra hæstu einkunn ársins var svo Atlas frá Hjallanesi eða 8.76 (hærri en Kveikur á aukastöfum), hann er undan Spuna frá Vesturkoti og Atley frá Reykjavík og er úr ræktun Guðjóns Sigurðssonar. Atlas er sterkbyggður hestur með 9.0 fyrir bak og lend og fótagerð, þá er hann skrefmikill og rúmur alhliðahestur og hlaut hæst á árinu 9.0 fyrir tölt og skeið og 9.5 fyrir stökk. Með hæstu einkunn ársins var svo Þráinn frá Flagbjarnarholti, undan Álfi frá Selfossi og Þyrlu frá Ragnheiðarstöðum en hann hlaut 8.70 fyrir sköpulag, 9.11 fyrir hæfileika sem var hæsta hæfileikaeinkunn ársins og 8.95 í aðaleinkunn. Þráinn er afar vel gerður hestur með mikla framhæð í byggingunni; hátt settan og reistan háls og afar gott samræmi, hlutfallaréttur sterkbyggður og lofhár. Þá er Þráinn glæsilegur, skrefmikill og virkjamikill í reið með 9.0 fyrir tölt, 9.5 fyrir skeið og 9.0 fyrir vilja og geðslag og fegurð í reið. Elsti flokkur hryssa Í elsta flokki hryssna voru sýndar 267 hryssur og voru þær 26% sýndra hrossa. Þetta var magnaður hópur efstu hryssna og þessi hópur á Landsmóti var með ólíkindum sterkur. Með þriðju hæstu einkunn ársins eða 8.73 var Tign frá Jaðri, úr ræktun Kristbjargar Kristinsdóttur og Agnars Reidars Róbertssonar en var efst í þessum flokki á Landsmóti. Tign er undan Kjarna frá Þjóðólfshaga og Sylgju Orradóttur frá Ytri-Skógum. Tign er einstaklega falleg hryssa með 9.5 fyrir háls, herðar og bóga og 9.0 fyrir samræmi, þá er Tign afar hreyfingafalleg, fjaðurmögnuð í reið og hefur mikla útgeislun enda hlaut hún 8.81 fyrir hæfileika, m.a. 9.0 fyrir tölt og brokk, 8.5 fyrir skeið og 9.0 fyrir fegurð í reið. Með aðra hæstu einkunn ársins var Kolka frá Breiðholti í Flóa úr ræktun Kára Stefánssonar. Hún er undan Grun frá Oddhóli og Gunnvöru frá Miðsitju og hefur því mikið Miðsitjublóð í æðum. Kolka er stórbrotinn gæðingur og hlaut hæstu hæfileikaeinkunn hryssna á árinu eða 9.10 (og einnig hæstu hæfileikaeinkunnina á Landsmótinu). Kolka er afar skrokkmjúk, býr yfr skörungslund og miklum vilja, hlaut 9.0 fyrir tölt, brokk og skeið, 10 fyrir fet og 9.5 fyrir vilja og geðslag. Með hæstu einkunn ársins í þessum flokki var svo Hansa frá Ljósafossi eða 8.77 og var hún sýnd á Miðsumarssýningu á Selfossi. Hansa er undan Hákoni frá Ragnheiðarstöðum og Sunnu- Rós Keilisdóttur frá Úlfljótsvatni. Hansa er orkumikill gæðingur með afar virkjamikið skref enda hlaut hún 9.5 fyrir skeið og vilja og geðslag og 9.0 fyrir tölt og brokk. Elsti flokkur stóðhesta Í elsta flokki stóðhesta voru sýndir 82 hestar eða 8% sýndra hrossa. Með þriðju hæstu einkunn ársins var Rauðskeggur frá Kjarnholtum úr ræktun Magnúsar Einarssonar í Kjarnholtum. Rauðskeggur hlaut 8.76 í aðaleinkunn og er undan Kiljan frá Steinnesi og Heru frá Kjarnholtum. Rauðskeggur er glæsilega gerður hestur með hátt settan háls, burðarmikið bak og einstaklega vel gerður í samræminu, hlutfallaréttur, léttbyggður, vöðvaður og lofhár. Þá er hann skrefmikill gæðingur með 9.0 fyrir tölt, stökk og skeið. Með aðra hæstu einkunn ársins var hálfbróðir Rauðskeggs að móðurinni, Kolskeggur frá Kjarnholtum I. Kolskeggur er undan Kvisti frá Skagaströnd og Heru frá Kjarnholtum I. Ræktandi Kolskeggs er Magnús Einarsson í Kjarnholtum. Kolskeggur er afar fríður hestur, framfallegur og fótahár, enda með 9,5 fyrir bæði höfuð og samræmi. Þá er Kolskeggur viljugur og skrefmikill rýmishestur með 8.77 í aðaleinkunn. Hæst dæmdi hestur ársins í elsta flokki og einnig efstur í þessum flokki á Landsmóti var Glúmur frá Dallandi. Hann er undan Glym frá Flekkudal og Orku Orradóttur frá Dallandi og er úr ræktun Gunnars Dungal og Þórdísar Sigurðardóttur. Glúmur er afar reiðhestslega gerður hestur með sterka yfirlínu og mikinn prúðleika sem hann hlaut 10 fyrir. Þá er þetta úrvalsganghestur og sameinar það sem er svo verðmætt í alhliða hesti að vera með 9.0 fyrir tölt, hægt tölt og skeið. En gæði á öllum hraðastigum á tölti er eiginleiki sem er afar verðmætur og hlutur sem þarf að leggja aukna áherslu á til framtíðar. Heilbrigðisskoðanir kynbótahrossa Heilbrigði kynbótahrossa var skoðað eins og undanfarin ár, bæði fyrir og eftir dóm. Allir áverkar sem hrossin hlutu í dómi voru stigaðir í þrjá flokka og átti þetta við bæði særindi í munni og ágrip á fótum. Fyrsta stigs athugasemdir teljast ekki vera eiginlegir áverkar en eru t.d. særindi í munni sem ná ekki í gegnum slímhúð eða strokur á fótum sem ná ekki í gegnum húð og eru án eymsla eða bólgu. Annars stigs athugasemdir eru áverkar, s.s. lítil sár í munni eða á ágrip á fótum sem ná þó ekki einum cm. Þriðja stigs athugasemdir eru alvarlegir áverkar og á þá lund að hrossið hlýtur ekki reiðdóm og getur ekki mætt til yfirlitssýningar. Skráð voru ágrip á fótum í 14.5% tilfella sem er svipað og var í fyrra en þá var tíðni ágripa 15%. Megnið af þessu athugasemdum eða 68% voru í flokki 1, tíðni eiginlegra áverka á fótum (flokkar 2 og 3) var því 4.5% þar sem áverkar af þriðja stigi voru 3 á árinu eða innan við 0.5%. Þá voru skráð særindi eða blóð í munni í 4% tilfella og var í nær öllum tilfellum um 1. stigs særindi að ræða. Það má því segja að staðan á þessum málum sé ásættanleg og hefur verið árleg minnkun í tíðni áverka almennt ár frá ári núna síðastliðin fimm ár. Þetta skýrist væntanlega fyrst og fremst af hestvænni sýningum og betri undirbúningi hrossa til dóms. Þá hefur verið reynt að taka betur á grófri reiðmennsku sem sífellt ber minna á en alls voru fjórir knapar sem hlutu áminningu fyrir grófa reiðmennsku á árinu. Eistnaskoðun var framkvæmd á öllum stóðhestum sem komu til dóms þar sem mæld er stærð eistnanna, stinnleiki þeirra metin og kannað með frávik svo sem snúninga. Þéttleiki eistna er metinn í þremur flokkum þar sem flokkur I var þétt og eðlilegt, II aðeins lin og flokkur III grautlin. Mikill meiri hluti stóðhestanna er með þétt og eðlileg eistu eða yfir 90% hestanna. Þá var restin af hestunum með stinnleika II og enginn hestur með stinnleika III. Merkt var við eistnagalla hjá 11 stóðhestum á árinu, samanborið við 6 stóðhesta í fyrra (13 hestar árið 2017) og var þá um að snúninga á eistum að ræða (bæði eistun snúin: tveir hestar), of mikla smæð (TSW mál undir 8.0 cm: fimm hestar), misstór eistu (1 hestur) eða eineistni (þrír hestar). Starfsfólk og staðarhaldarar Að lokum er rétt og ljúft að þakka öllu starfsfólki sýninganna fyrir vel unnin störf á árinu en þetta er mikið til sama fólkið ár frá ári og orðin samhentur og góður hópur; hvort sem það eru dómarar, sýningarstjórar og ritarar. Einnig vil ég þakka gott samstarf við staðarhaldara á hverjum stað en alls staðar er verkefninu tekið af áhuga og metnaði og reynt að hafa alla þætti sýninganna sem besta. Einnig vil ég að þakka sýnendum, ræktendum og eigendum hrossanna fyrir skemmtilega viðkynningu og gott samstarf á árinu. Hið alþjóðlega kynbótamat fyrir íslenska hestinn var reiknað eftir alla dóma ársins eftir miðjan september og birt í WorldFeng. Þar kom í ljós að fimm hryssur á Íslandi hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár en til að hljóta verðlaunin þarf hryssan að eiga að lágmarki fimm dæmd afkvæmi og vera með 116 stig í aðaleinkunn kynbótamatsins. Efsta hryssan í ár er Djörfung frá Ketilsstöðum undan Álfasteini frá Selfossi og Framkvæmd Hrafnsdóttur frá Ketilsstöðum og hlýtur hún því Glettubikarinn, Bergur Jónsson er ræktandi hennar. Djörfung er með 123 stig í kynbótamatinu og á nú fimm dæmd afkvæmi. Djörfung var sjálf gæðingur og náttúrubarn á skeiði, var sýnd fjögurra vetra og hlaut hæst 8.23 í aðaleinkunn, 8.68 fyrir hæfileika og m.a. 9.5 fyrir skeið og vilja geðslag. Fjögur afkvæma hennar hafa hlotið fyrstu verðlaun og er Hugmynd frá Ketilsstöðum hæst dæmda afkvæmi hennar en hún er undan Aðli frá Nýja- Bæ. Hugmynd var hæst dæmda fjögurra vetra hryssan í fyrra, frábær mýktargæðingur en öll afkvæmi Djörfungar hafa verið sýnd fjögurra eða fimm vetra og sýnir að eiginleikinn að koma fljótt til er sannarlega arfgengur. Önnur í röð í ár með 121 stig er Dögg frá Breiðholti í Garðabæ. Hún er undan Orra frá Þúfu og Hrund Safírsdóttur frá Torfunesi en Hrund hlaut sjálf heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2016. Ræktandi Daggar er Gunnar Yngvason en eigandi er Hjarðartún ehf. Dögg er stórglæsileg hryssa, bæði í sköpulagi og framgöngu, fasmikil og fönguleg undir manni en hún hlaut m.a. 9.5 fyrir háls, herðar og bóga og fegurð í reið og stóð efst í fimm vetra flokki hryssna á Landsmóti 2006. Dögg er fyrst og fremst að gefa glæsileg klárhross en í sumar var t.d. sýnd undan henni hryssan Dáð frá Hjarðartúni, undan Hróa frá Flekkudal, með 9.0 fyrir tölt og brokk og 9.5 fyrir fegurð í reið. Einnig má nefna undan henni hestinn Dag frá Hjarðtúni, undan Sæ frá Bakkakoti. Dagur er glæsilegur klárhestur með m.a. 9.0 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið en hann er einnig búinn að vera að standa sig vel í keppni. Þriðja í röð er hryssan Arndís frá Feti með 117 stig en hryssurnar í 3. og 4. sæti eru báðar með 117 stig og eru það aukastafir sem skilja þær að. Arndís er undan Orra frá Þúfu og Vigdísi frá feti og eru því foreldrarnir báðir heiðursverðlaunahross. Ræktandi Arndísar er Brynjar Vilmundarson og eigendur eru Fet ehf og G. Jóhannsson ehf. Arndís hlaut sjálf 8.21 í aðaleinkunn og á nú fimm dæmd afkvæmi en þar af eru tvö með fyrstu verðlaun. Hún hefur verið að gefa ágæt alhliða hross með góða reisingu en hæst dæmdu hrossin undan henni er Keila frá Árbæ, Keilisdóttir og Fífa frá Feti, undan Héðni frá Feti. Fjórða í röð er hryssan Eva frá Hvolsvelli úr ræktun Þormars Andréssonar sem ræktar nú hross á Strandarhjáleigu. Eva er undan Ögra frá Hvolsvelli og Björk frá Hvolsvelli, Ófeigs Flugumýrardóttur og er Eva því náskyld Orra og Bjarkardótturinni Birtu frá Hvolsvelli sem er einnig heiðursverðlaunahryssa. Eva hlaut sjálf í dómi 8.25 í aðaleinkunn, m.a. 9.0 fyrir tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið. Hún á nú fimm dæmd afkvæmi og eru þau öll með fyrstu verðlaun. Fimmta í röð er svo hryssan Elding frá Lambanesi með 116 stig, úr ræktun Agnar Þórs Magnússonar og Camillu Ripa en Agnar býr nú og ræktar hross á Garðshorni á Þelamörk. Elding hefur verið að hækka sig jafnt og þétt í kynbótamatinu á undanförnum árum út á árangur afkvæmanna, hún byrjaði frekar lágt í kynbótamatinu en hefur svo sannarlega sannað sig sem frábær ræktunarhryssa. Hún er með afar hátt afkvæmafrávik í kynbótamatinu, 9 stig, en það sýnir hvaða áhrif dæmd afkvæmi hafa á kynbótamatið, umfram upplýsingar frá forfeðrum og skylduliði og eigin dómi. Elding hlaut sjálf 8.03 í kynbótadómi, hún á nú átta dæmd afkvæmi og eru sex af þeim með fyrstu verðlaun. Hæst dæmda afkvæmi hennar er Adrían frá Garðshornim undan Hágangi frá Narfastöðum, afar glæsilegur hestur og flinkur á tölti en hann stóð efstur fimm vetra hestanna á Landsmóti í sumar sem fyrr segir. Einnig má nefna undan Eldingu Hersi frá Lambanesi en hann stóð efstur fjögurra vetra stóðhesta á Fjórðungsmóti Vesturlands árið 2013. Þetta er góður hópur hryssna sem hljóta heiðursverðlaun í ár en eigendur þeirra taka við viðurkenningum fyrir sínar heiðurshryssur á árlegri hrossaræktarráðstefnu fagráðs í hrossarækt sem haldin verður í Spretti laugardaginn 27. október. Ég hvet allt áhugafólk um hrossarækt að mæta á ráðstefnuna en dagskrá hennar er auglýst í blaðinu. Heiðursverðlaunahryssur Djörfung frá Ketilsstöðum hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á árinu og stendur efst að stigum. Mynd / Eiríkur Jónsson. Kolka frá Breiðholti í Flóa hlaut hæstu hæfileikaeinkunn hryssna á árinu og einnig á Landsmóti – hér uppteiknuð á skeiði. Mynd / Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir Glúmur frá Dallandi stóð efstur í elsta flokki stóðhesta á Landsmóti. Mynd / Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.