Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201854
Eftir að ég skrifaði um tvö
hagnýt ökutæki, torfæruhjól
og „buggybíl“, hafa nokkrir
innflytjendur ökutækja sem hjá
flestum eru álitin leiktæki, haft
samband við mig og boðið mér að
prófa mótorhjól, fjórhjól ásamt
fleiru.
Aldrei hefur mér leiðst að leika
mér og þegar Karl Gunnlaugsson
hjá KTM Íslandi bauð mér
1090cc. ferðahjól frá austurríska
framleiðandanum KTM var ég ekki
seinn að þiggja boðið.
KTM hefur í mörg ár verið
vinsælasta torfærumótorhjólið
á Íslandi
Laugardaginn 15. september fékk
ég hjólið og fór í mótorhjólaferð
við sjötta mann á vegum Ferða-
og Útivistarfélagsins Slóðavina
sem nefndist „stóruhjólaferð“. Við
ókum alls rúma 270 km á einum
degi og var reynt að keyra sem mest
af malarvegum í bland við bundið
slitlag.
Í fyrstu fannst mér hjólið
ekkert sérstakt, en eftir spjall við
fararstjórann Einar, sem var á eins
hjóli, var ég greinilega að snúa
mótornum of lítið og því ekki að
ná út úr hjólinu þeim eiginleikum
og kostum sem einkennir þetta hjól.
Við það að vera einum gír neðar
en ég hafði verið kom krafturinn,
þegar gefið var í kom þetta flotta
„greddu-hljóð“ úr mótornum og
minnti þetta mig einna helst á sjálfan
mig þegar ég var undir 10 ára aldri
og hugðist fara með veturgamlan
hrútinn í fyrsta skipti í tilhleypingar.
Eins og bóndinn á næsta bæ setti ég
spotta í hrútinn og opnaði grindina,
það skipti engum togum, hrúturinn
var margfalt kraftmeiri en ég réði
við. Hékk í spottanum og réði ekki
við allan þennan kraft í sprækum
hrútnum. Svipað gerðist þegar ég
gaf þessu KTM 1090 hjóli, hjólið er
einfaldlega kraftmeira og sprækara
en ég, gamli kallinn, sem var að
reyna að stjórna því og
átti fullt með að halda
mér á hjólinu, enda
skilar þessi mótor 125
hestöflum.
Aksturstölvan
býður upp á margar
stillingar
Á undanförnum
árum eru alltaf fleiri
mótorhjólafram leið-
endur komnir með hita
í handföngin, en flest
eru með tvö hitastig,
en á þessu hjóli eru
stillingarnar þrjár (ég
nota þetta sjaldan nema
í rigningu, en segi fyrir
mitt leyti, ómissandi
búnaður fyrir Ísland).
Hjólið er með ABS
bremsum sem mörg
önnur hjól eru með, en þetta er fyrsta
hjólið sem ég hef keyrt sem hægt er að
taka af ABS kerfið á afturbremsunni.
Kerfi sem ég mundi ætla að hentaði
nánast öllum mótorhjólaökumönnum
á malarvegum og að mínu mati
frábært kerfi fyrir jafnt vana sem
óvana mótorhjólamenn.
Ég var í lok ferðarinnar mjög
sáttur við hjólið fyrir utan að mér
fannst hjólið fullhátt fyrir mig (náði
bara niður með tánum hvort sínum
megin) og hnakkurinn fullharður.
Margt til viðbótar væri hægt að
nefna um hjólið, en vegna plássleysis
læt ég hér staðar numið og bendi á
söluaðila.
Verðið á hjólinu, sem er nú á
sérstöku hausttilboði, er 2.549.000,
en allar nánari upplýsingar má
nálgast á vefsíðunni www.ktm.is, eða
hringja í verslunina MOTO KTM.
Í síðustu viku bauð BL nokkrum
„bílablaðamönnum“ í prufu-
akstur á „prototype“ bílum af
svo nýjum Jaguar að hann er
ekki enn kominn í framleiðslu.
Bíllinn kemur til með að fara í
framleiðslu í febrúar á næsta ári
og fyrstu bílarnir verða afhentir
í mars.
Nú eru staddir á landinu fjögur
eintök af frumgerð af þessum
bílum sem verða til sýnis í Jaguar
sýningarsalnum á Hesthálsi til 3.
nóvember.
Á að komast 470 km á einni
rafmagnshleðslu
Bíllinn verður útbúinn
með tvær rafmagnsvélar (ein
fyrir framhjóladrifið og önnur
afturhjóladrif), en þessar vélar skila
um 400 hestöflum samanlagt og
sem dæmi þá er bíllinn ekki nema
4,5 sek. að fara úr kyrrstöðu upp í
hundrað km hraða. Rafhlaðan er
alveg ný hönnun og tekur það mikla
hleðslu að bíllinn ætti að komast allt
að 470 km á hleðslunni við bestu
aðstæður. Á hraðhleðslustöð er sagt
vera hægt að hlaða rafhlöðuna um
80% á nálægt 40 mínútum.
Prufuakstrinum hefði verið hægt
að lýsa í einu orði - VÁ
Þar sem að bílarnir voru ekki nema
fjórir og blaðamennirnir átta var
skipt niður á bílana, þ.e. tveir
blaðamenn og einn leiðbeinandi.
Leiðin sem var ekin var yfir
Mosfellsheiði á Þingvöll og austan
við vatnið og á Nesjavelli. Ég
valdi að taka seinni hlutann þar
sem að þar var malarvegur. Að
sitja fyrrihlutann í aftursætinu
og finna margsinnis herðablöðin
borast inn í sætisbakið þegar
hinn blaðamaðurinn var að prófa
upptakið og snerpuna magnaði upp
spennuna fyrir því að ég fengi að
setjast undir stýri.
Þegar ég settist undir stýrið við
þjónustumiðstöðina á Þingvöllum
gantaðist hinn blaðamaðurinn
með það að hér væri bara 50 km
hraðamörk og hann væri búinn með
besta kaflann.
Þrátt fyrir hæga ferð, þröngan,
hlykkjóttan og ónýtan veginn í
þjóðgarðinum var gott að aka bílnum.
Loftpúðafjöðrunin og stór dekkin
tóku holurnar vel og þegar austur fyrir
vatnið var komið eru töluverð hvörf í
veginum sem sannaði enn betur ágæti
loftpúðafjöðrunar. Við botngjöf úr
kyrrstöðu tekur ekki nema sex sek.
að komast á sviptingarhraða og um
10 sek. að koma sektarupphæðinni
í mánaðarlaun og sennilega langa
sviptingu ökuskírteinis.
Forsala hafin á bílnum
á góðu verði
Á malarvegi er sáralítið malarhljóð
upp undir bílnum og venjulegar
pottholur á malarvegi finnast varla
þegar yfir þær er ekið. Á malarvegi
er bíllinn stöðugur og ótrúlega gott
að keyra hann, þrátt fyrir að hann
hafi verið á 22 tommu felgum, enda
er þyngdarhlutfallið á hvorn öxul
50/50.
Þessi bíll er fyrsti rafmagnsbíllinn
sem ég hef ekið sem uppfyllir þær
kröfur sem ég geri varðandi drægni
á hleðslu.
Grunnverð á Jaguar I-Pace er
frá 9.000.000 upp í 12.000.000, en
eins og áður segir verða þessir fjórir
bílar á Íslandi til sýnis í sýningarsal
Jaguar, en aðeins til 3. nóvember.
Fyrir áhugasama er þessi bíll algjört
augnayndi sem allir bílaáhugamenn
og -konur ættu að skoða og kynna
sér. Hugmyndin hjá mér er að taka
þennan bíl í fullnaðar reynsluakstur
síðar því að bíllinn er að mínu mati
verulega spennandi kostur sem
eigulegur rafmagnsbíll og þessi
stutti prufuakstur var bara svo
skemmtilegur að ég vil endurtaka
hann við fyrsta tækifæri.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Myndir / HLJ
–
Myndir / HLJ