Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201822 Það voru blendnar tilfinningar hjá nemendum níunda bekkjar C við gagnfræðaskólann í Øystese í sveitarfélaginu Kvam í Noregi á dögunum þegar þeir fengu að heimsækja kennarann sinn, Ingunni Teigland, sem jafnframt er sauðfjárbóndi, og fylgjast með heimaslátrun á lambi, verkun og prófa sig við hjartarskurð svo fátt eitt sé nefnt. Þó að þónokkur „ojbara“ og „ógeðslegt“ hefðu heyrst hjá nemend unum við slátrunarferlið var alveg ljóst í lok skóladagsins að allir myndu taka með sér nýjan og reynslumikinn lærdóm heim eftir heimsókn í sveitina. „Ég hef fengið spurningu af hverju við séum að þessu og það er umhugsunarvert því það hefur ekki verið boðið upp á þetta áður. Krakkarnir komu til mín í vor til að fylgjast með sauðburðinum sem þeim fannst mjög gagnlegt og áhugavert svo þessi hugmynd kom upp á kennarastofunni, því ekki að leyfa þeim líka að upplifa þennan veruleika lambsins?“ útskýrir umsjónarkennari bekkjarins, Ingunn Teigland, sem rekur ásamt tveimur öðrum fjölskyldum sauðfjárbú með 250 vetrarfóðruðum kindum. Sjá hvaðan maturinn kemur Allir níundu bekkirnir þrír við skólann fengu að upplifa sama ferlið, hver bekkur fyrir sig, einn dag í einu. Faðir Ingunnar, Jon Teigland, sem er dýralæknir, var einnig viðstaddur slátrunina og fræddi unglingana um uppbyggingu og líffræði lambsins. „Það er mikilvægt, tel ég, að unglingarnir sjái hvaðan maturinn kemur og hvernig dýrið er byggt upp og lítur út. Þetta snýr einnig að náttúrufræði, samfélagsfræði, heilsufari eða leikfimi því þau ganga hingað til mín frá skólanum sem er um klukkustundarleið,“ segir Ingunn og bætir við: „Þetta er vissulega öðruvísi kennslustund og minnisstæð fyrir vikið. Áður en sjálf slátrunin fer fram fræði ég unglingana um náttúruauðlindir og matvælaframleiðslu ásamt því að fara yfir sláturferlið. Það hefur gengið mjög vel með alla bekkina, þeir sem vilja ekki horfa á til dæmis þegar lambið er skotið þá er það ekkert mál. Sumum hefur orðið óglatt eftir þessa upplifun en ég tel að það jafni sig fljótt, það er engum óhollt að átta sig á hvernig náttúran virkar.“ Deyfibyssa og innyfli Eftir að Ingunn útskýrði fyrir unglingunum hvernig ferlið færi fram var ekki eftir neinu að bíða en að sækja lambið sem féll í valinn þann daginn. Stuttu síðar sló þögn á hópinn eitt andartak, meðan á dauðastundinni stóð, sumir litu undan á meðan aðrir fylgdust með af miklum áhuga. „Þegar ég sæki lambið og er búin að grípa það í fang mitt er það ekki lengur lamb heldur matur í mínum huga. Það er mjög mikilvægt að vita fyrir ykkur að lambið kvelst ekki í þessu ferli,“ útskýrir Ingunn fyrir bekknum og einn nemandi spyr: Nemendum níunda bekkjar C við gagnfræðaskólann í Øystese í sveitarfélaginu Kvam í Noregi kynntu sér heimaslátrun: Sterk lífsreynsla sótt í sveitina UTAN ÚR HEIMI Ánægðir unglingar níunda bekkjar C við gagnfræðaskólann í Øystese eftir viðburðaríkan skóladag í sveitinni þar sem hver og einn fór heim með nýjan lærdóm um sauðfjárbúskap. Myndir / EHG Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is Áður en lambið var sótt og sjálft sláturferlið fór af stað útskýrði Ingunn Teigland, umsjónarkennari 9. bekkjar C við gagnfræðaskólann í sveitarfélaginu Kvam í Noregi, fyrir nemendunum hvernig það myndi fara fram. Faðir Ingunnar, Jon Teigland, sem er dýralæknir, aðstoðaði dóttur sína við slátrunina og ekki var laust við að það Lambið skorið á háls og um leið og blóðið byrjaði að renna voru nokkrir nemendur sem sneru sér undan og þögn sló á hópinn. Kennarinn Ingunn sækir lambið til slátrunar sem frá þeirri stundu var ekki lengur lamb í hennar huga heldur matur, útskýrði hún fyrir nemendunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.