Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 2018 15
Föstudaginn 12. október
næstkomandi verða 100 ár liðin
frá því að eldgos hófst í Kötlu í
Mýrdalsjökli.
Kötlugosið 1918 var eitt af
stærri eldgosum í Kötlu og fylgdu
jökulhlaup og öskufall á stóru
landsvæði umhverfis eldstöðina. Í
tilefni þess að öld er liðin frá gosinu,
verður þess minnst með veglegri
ráðstefnu í Vík í Mýrdal dagana
12.–13. október. Til umfjöllunar
verður megineldstöðin Katla og
áhrif hennar á náttúru og samfélag
á Suðurlandi. 12. október verða
erindi flutt af helstu sérfræðingum
landsins sem best þekkja til og hafa
rannsakað Kötlu. Vísindin verða
færð til almennings og verða helstu
umfjöllunarefni ráðstefnunnar áhrif
Kötlu á landslag, náttúrufar og
mannlíf á svæðinu. Einnig verða til
sýnis veggspjöld frá Jarðfræðafélagi
Íslands og munu sérfræðingar frá
Veðurstofu Íslands mæta með
vöktunarbúnað og segja frá því
hvernig fylgst er með Kötlu í dag.
13. október verður svo farið í stutta
3–4 klst. skoðunarferð með leiðsögn
um svæðið þar sem ummerki eftir
gosið verða skoðuð. Allir eru
velkomnir á ráðstefnuna og er hún
ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá
sig með því að senda tölvupóst
á Berglindi Sigmundsdóttur,
berglind@katlageopark.is eða
Beata Rutkowska, beata@vik.is.
Ráðstefnan fer fram í íþróttahúsinu
í Vík. /MHH
4.-11. október
STAMPAR SALTSTEINAR SAG
STALDRENHUNDAMATUR KATTAMATUR
Sendum um
allt land
Hafðu samband
5709800
FB Verslun Selfossi
Austurvegi 64a
5709840
FB Verslun Hellu
Suðurlandsvegi 4
5709870
FB Verslun Hvolsvelli
Ormsvellir 2
5709850
www.fodur.is FÓÐURBLANDAN - GÆÐI Í HVERRI GJÖF
TILBOÐSDAGAR
GLAÐNINGUR
* ÞÚ KAUPIR SAG & FÆRÐ
10KG STALDREN FRÍTT MEÐ
Á meðan birgðir endast
20%
* Afsláttu
r af
neðangrei
ndum vör
um
FRÉTTIR
Vík í Mýrdal:
Tveggja daga ráðstefna um Kötlugosið 1918
Eyjafjarðarsveit:
Aukin áhersla á
ferðaþjónustu
„Það sem vakir fyrir okkur er
einfaldlega að benda á land-
búnaðartengda ferðaþjónustu
sem skiptir landsbyggðina mjög
miklu máli,“ segir Karl Jónsson,
formaður landbúnaðar- og
atvinnumálanefndar Eyjafjarðar-
sveitar.
Nefndin lagði fram bókun
á fundi sínum nýverið þar sem
fagnað er þróun og vinnu við
tvö verkefni; Áfangastaðaáætlun
og Norðurstrandarleið og telur
nefndin þau til þess fallin að vekja
aukna athygli á Norðurlandi sem
áfangastað ferðamanna til framtíðar
litið. Jafnframt bendir nefndin á
þá miklu möguleika sem felast í
landbúnaðartengdri ferðaþjónustu
líkt og þeirri sem er í uppbyggingu
í Eyjafjarðarsveit.
Áhugaverð verkefni en gagnast
ekki öllum
„Í flestum eða öllum sveitum
er að finna mjög áhugaverða
ferðamannaáningarstaði auk
gistingar og veitinga. Við teljum
einfaldlega að það sé kominn tími
til að draga þessa sérstöðu okkar
út. Þessi tvö verkefni eru góðra
gjalda verð og áhugaverð en þau
gagnast okkur lítið sem erum ekki
við Þjóðveg 1 eða strandlengjuna,“
segir Karl.
Skorar landbúnaðar- og
atvinnumálanefnd Eyjafjarðarsveitar
á Markaðsskrifstofu Norðurlands
að beita sér fyrir framgangi
markaðsverkefnis sem dregur
fram sérstöðu landbúnaðartengdrar
ferðaþjónustu á Norðurlandi
og yrði góð viðbót við önnur
markaðstengd verkefni sem eru til
þess fallin að fjölga ferðamönnum
í landshlutanum og magna upplifun
þeirra af svæðinu. /MÞÞ
Mynd / HKr.