Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 2018 37
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Til sölu 67,3 fm einbýlishús auk 88 fm vélageymslu og þremur
litlum gistihúsum Einbýlishús, 2 herbergja, byggt úr timbri árið 1995
á eignarlandi sem er um 1 hektari. Vélageymsla með innkeyrsluhurð og
mikilli lofthæð, byggt 2006. Þrjú gistihús sem eru leigð út til ferðamanna.
Verð 47,5 milljónir. Nánari uppl. veitir Jón Óskar lögg. fasteignasali
í síma 693 9258 og netfang: jonoskar@ibudaeignir.is
Íbúðaeignir - Síðumúla 13, 108 Reykjavík - s: 577 5500 - www.ibudaeignir. is
Fasteignamiðlun
ÁSAHRAUN, FLÓAHREPPI
LÍF&STARF
Nýlega heimsótti Benedikt Benediktsson, framleiðslustjóri SS þau Grzegorz
Ziolkowski og Justina Ziolkowska sem eru fyrstu íbúar í nýju húsunum við
Gunnarsgerði á Hvolsvelli en þau starfa bæði hjá SS á Hvolsvelli. Mynd / SS
SS byggir 24 íbúðir á Hvolsvelli
fyrir starfsmenn sína
SS hefur afhent fyrstu 8 íbúð-
irnar sem byggðar hafa verið
sérstaklega fyrir stafsmenn fyrir-
tækisins Hvolsvelli. Um er að
ræða 24 leiguíbúðir við Gunnars-
gerði.
„Það er von fyrirtækisins að
íbúðirnar falli vel að þörfum
starfsmanna og samfélagsins á
Hvolsvelli. Það er mikil þensla
á húsnæðismarkaði á Hvolsvelli
eins og annars staðar á landinu og
því er það sérstakt ánægjuefni að
Rangárþin eystra og fyrirtækið nái
saman um að bjóða hagkvæman
valkost til starfsmanna með
þessum hætti“, segir Benedikt
Benediktsson, framleiðslustjóri SS.
Hver íbúð er um 50 fermetrar
að stærð með einu svefnherbergi,
baðherbergi, eldhúskrók og
setustofu, auk geymslu. Einnig er
útigeymsla við hvert hús. Íbúðirnar
eru afhentar fullbúnar utan- og
innahúss, með frágenginni lóð
og hellulögðum gangstéttum og
bílastæðum.
„Allt frá því að SS flutti
kjötvinnslu sína á Hvolsvöll árið
1991 hefurRangárþing eystra
stutt dyggilega við uppbyggingu
starfseminnar á Hvolsvelli, nú
síðast með úthlutun lóða undir
leiguíbúðirnar, samkvæmt
viljayfirlýsingu sem undirrituð var
á 110 ára afmæli félagsins þann 28.
janúar 2017“, bætir Benedikt við.
/MHH
Horft á norðurljósin úr rúminu
– 78 ný og glæsileg herbergi á Hótel örk
Hótel Örk í Hvera-
gerði hefur opnað nýja
og glæsilega byggingu
með 78 herbergum þar
sem lögð er áhersla á
nútímalega hönnun
ásamt öllum helstu
þægindum sem hótel-
gestir þurfa.
Nýju herbergin eru
allt frá tveggja manna
herbergjum að svítum.
Eftir stækkun hótelsins
eru þar 157 herbergi,
ásamt sjö fundar- og
veislusölum, ásamt
veitingastað, sundlaug
og heitum pottum.
Eftir stækkun er Hótel Örk eitt
stærsta hótel landsbyggðarinnar.
Hótel Örk er fjögurra stjörnu
hótel. /MHH
Nýju herbergin í nýju byggingunni eru glæsileg
í alla staði en hönnun þeirra var í umsjón T.ark
sem hefur mikla reynslu í hönnun hótela.
Ljósmyndir á veggjum í nýju herbergjunum eru
eftir Ingimar Þórhallsson listamann og ljósmyndara
frá University of the Arts London en þær eru af
hverasvæðum sem hentar sérstaklega vel við