Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 2018 23
„Þurfum við að nota hanska?“
„Nei, nei, við erum sterkasti
bekkur í heimi, við þurfum þess
ekki,“ svarar Ingunn kennari.
„En er ekki auðveldara að slátra
ef það er búið að rýja kindina?“
spyr annar áhugasamur nemandi.
„Jú, það er rétt, það er léttara
að slátra ef það er búið, eða
réttara sagt þegar maður gerir að
skrokknum eftir slátrun,“ svarar
kennarinn.
Síðan hófst ferlið þar sem
feðginin skutu lambið með
deyfibyssu og þegar það var skorið
á háls fór um nokkra í hópnum.
Tveir nemendanna fengu það
hlutverk að safna blóði í könnu og
skál til að fylgjast með storknun
þess á meðan aðrir fengu sög í
hönd til að saga höfuð lambsins
í tvennt til að kanna heilann.
Feðginin héldu því næst áfram að
gera að og fengu aðstoð nemenda
til að ná öllum innyflunum út og
sturta þeim í hjólbörur, því næst
var þarmurinn mældur, lungu,
lifur, gallblaðra, nýrað og miltað
skoðað og útskýrð af kostgæfni
virkni þeirra. Að endingu fengu
unglingarnir að spreyta sig á að
skera í og rannsaka lambshjörtu
sem kennarinn hafði útvegað og
voru flestir mjög spenntir fyrir
þeirri iðju.
Margs konar lærdómur
eftir daginn
Í lok þessa sérstaka skóladags
grillaði bekkurinn saman ýmist
pylsur eða samlokur sem hver
og einn tók með sér ásamt
kennurunum. Þá sköpuðust ýmsar
umræður um hvað unglingarnir
höfðu upplifað þennan daginn og
í ljós kom að öll höfðu þau tekið
með sér mismunandi lærdóm eftir
þessa lífsreynslu.
„Ég lærði mikið um
meltingarfæri lambsins og að
kindur eru jórturdýr og hafa fjóra
magasekki,“ sagði Torbjørn Viking
Sætveit Torsvik.
„Það sem kom mér mest á óvart
er hvernig kerfið í líkama lambsins
starfar. Mér fannst þetta mjög
áhugavert og ég lærði mikið um
ferlið við að slátra lambi,“ sagði
Julie Carlsen Midtrød.
„Það er mikill matur sem maður
getur fengið af einu lambi og
maður verður að hengja skrokkinn
upp í nokkra daga áður en er hægt
að nýta kjötið af honum. Það
var mjög svalt að prófa að skera
í lambshjarta,“ sagði Sigbjørn
Steine.
„Mér fannst þetta frekar
ógeðslegt, sumt af þessu, en mér
fannst gott að vita að lambið var
deyft áður en það drapst,“ sagði
Glódís Björt Pálsdóttir.
„Nú veit ég betur að innyfli í
kindum og í mönnum eru ansi lík
og mér fannst ég læra mikið um
líffæri lambsins og hvernig það er
byggt upp,“ sagði Daniel Olsen.
„Núna veit ég betur hvaðan
maturinn kemur og hvað lambið
þarf að ganga í gegnum til þess að
við verðum södd af lambakjötinu.
Mér fannst líka áhugavert að læra
um hringrásina, pörun, burð og
slátrun,“ sagði Evelina Bu-Vik.
/ehg
Feðginin gera að skrokknum og fengu síðan aðstoð nemenda við að ná
ÍSLENSKUR
LANDBÚNAÐUR
2018
12. - 14. október
Tökum vel á móti ykkur!
TÖKUBÁSAR FYRIR NAUTGRIPI
Öflugir tökubásar fyrir nautgripi. Innbyggð vigt.
Tilboðsverð kr. 349.900 auk vsk.
.
Upplýsingar og
pantanir í símum
899 1776 og 669 1336. Meira fyrir aurinn