Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201838
SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA
Ég dvaldi tvær vikur í Norðurþingi
um mánaðamótin júlí-ágúst og
varð margs vísari. Hef stöku
sinnum ekið þarna í gegn en aldrei
stoppað sem nú. Gróðurfarið vakti
athygli mína. Meiri gróður en ég
átti von á – margvíslegur gróður.
Heimsókn til Gunnars á
Daðastöðum
Ég var gestur Gunnars Einarssonar,
bónda á Daðastöðum, í sól og blíðu
2. ágúst sl. Ræddi einnig við Pétur
Þorsteinsson á Kópaskeri, Jóhann
Guðjónsson líffræðing og fleiri.
Gunnar bauð mér í skoðunarferð
í jeppanum sínum, til að skoða lítið
brot af landi hans og kynna mér
hugsjón hans á Daðastöðum, sem er
uppgræðsla, skógrækt, nýting lands
til sauðfjárbeitar – gróðurframvinda
frá snauðum mel í auðugan lyngmóa
og síðan birkiskóg, þar sem fé er
beitt hóflega.
Gunnar Einarsson er Hafn-
firðingur, tengdur föðurætt minni
þar, og gekk í bændaskólann á
Hólum. Vann sem girðingarvörður
við Vogaafleggjara 1980–1982,
en þá var búið að friða ytri hluta
Reykjanesskaga fyrir beit. Á þeim
tíma sáði hann smituðu lúpínufræi,
sem hann fékk hjá Landgræðslunni,
bæði við skúrinn við Vogavegamót
þar sem hann hélt til og líka á
Vogastapa. Sú mikla lúpína sem nú
vex þar væri efni í aðra grein.
Gunnar keypi Daðastaði af
Pétri Þorsteinssyni 1983 og nokkru
síðar tvær aðliggjandi eyðijarðir,
Arnarstaði og Arnarhól, samtals
7.000 ha frá sjó og inn í landið. Pétur
er uppalinn á Daðastöðum og var
faðir hans þar með um 200 fjár og
vetrarbeit eins og þá tíðkaðist. Pétur
hafði tekið við búinu, stækkað það
og byggt, ásamt öðrum, fjárhús fyrir
1000 fjár.
Gunnar byrjaði fljótt uppgræðslu
á Daðastöðum í samvinnu við
Landgræðsluna, fyrst með áburði
og fræi, síðan einnig skít, en hann
setti um tíma 20% af skítnum sem
til fellur á mela nálægt bænum.
Hann hóf lúpínusáningu um 1990
og sáði í stór svæði 1992–1995,
nálægt því sem skíturinn fór á. Hann
sýndi mér þessi svæði. Skítábornu
melarnir voru nú fallega gróinn mói
með mikið af grösum, beitilyngi,
holtasóley og stöku birkiplöntum,
sjá mynd 1.
Gunnar sýndi mér langan og
frekar háan mel þar sem lúpínu var
sáð 1992. Þar virðist lúpínunni hafa
hnignað. Margar lúpínuplönturnar
voru smáar og veiklulegar, blómgast
lítið, með frekar fáa fræbelgi –
strjálli lúpína en ég á að venjast á
SV-landi og alls kyns gróður innan
um, sjá mynd 2.
Í jaðrinum og í lægðum var
hún kröftug og þétt. Hæsti hluti
lúpínumelsins er fölur yfir að líta,
líkt og hálf skrælnaður og/eða skortir
næringu (nitur). Úrkoma mun hafa
verið jöfn og góð þarna í sumar svo
varla getur þetta eingöngu skrifast
á þurrk. Þarna sagði Gunnar hafa
verið öfluga lúpínu lengi vel og er
óánægður með hve mikið henni hefur
farið aftur þarna, það komi m.a. niður
á beitargildinu.
Innan um þessa smávöxnu, fölu
og tiltölulega strjálu lúpínu voru
nokkrar tegundir, m.a. holtasóley,
mýrasóley, vegarfi, kornsúra,
krækilyng, grasvíðir, nokkrar
grastegundir (túnvingull, blávingull,
vallarsveifgras, vallhæra, lógresi ...)
og svolítið af mosa (mynd 3). Það
kom mér á óvart hvað tegundirnar
voru margar. Ég hef ekki áður séð svo
vesæla lúpínu, enda aðallega skoðað
hana á Suður- og Vesturlandi, en hef
þó oft séð að hún þrífst best í lautum
og ver á þurrum melum og hafði lesið
um að hún ætti það til að hnigna sums
staðar, ekki síst norðaustanlands.
Pétur Þorsteinsson hefur veitt
því eftirtekt að lúpínan skríður
ekki mikið út í móana hjá Gunnari.
Skríður að vísu niður skorninga og
lægðir af melunum en ekki mikið út
í móana.
Gunnar sýndi mér annan mel
sem hann sáði lúpínu í 1994, lét ýta
niður rofabörðum og sáði og bar á
þau líka. Þarna var svipað ástand á
efstu melunum, þó kröftugri lúpína,
en talsvert um annan gróður inn á
milli, sjá mynd 5.
Skammt frá var gamalgróið birki
að sá sér í gamalgróinn lyngmóa
og í eyður í lúpínubreiðunni (mynd
6). Á milli þessara tveggja svæða
er gamalgróinn lyngmói, með
þéttum lyng- og blómgróðri og
lágvöxnu, skriðulu birki. Gunnar
taldi þennan móa dæmdan til að
breytast í birkiskóg. Að honum sækir
birkiskógurinn á annan veginn (nær
fjallinu) og lúpínan á hinn veginn,
og telur Gunnar fullvíst að hvort
tveggja endi í birkiskógi. Hann sagði
að innar í landinu (sem er beitt) væri
víðir og birki smám saman að leggja
undir sig móana, þeir myndu enda
sem kjarr eða skógur. Mér gafst
ekki tími til að skoða þann hluta
landsins, en á þeim slóðum stundar
hann uppgræðslu hin síðari ár með
grasfræi, áburði og lúpínu. Þar bíða
enn stórir melar og rofabörð þess að
vera grædd upp.
Við gengum inn í þéttan
birkiskóg, meira en mannhæðar háan
(mynd 7) og svo þéttan að Gunnar
hafði klippt leið fyrir sauðfé svo
það kæmist þar í gegn! Hann vissi
um tæki sem hægt væri að setja á
traktor til að opna slóðir gegnum
skóg og kurla trén. Sagðist ekki
óttast frumskóg, hægt væri að opna
hann eftir þörfum.
Faðir Péturs var með vetrarbeit
á Daðastöðum þegar Pétur var þar
strákur. Hann beitti m.a. skóginn,
sem þá var heldur lágvaxnari
en gróskumikill og þéttur með
blágresi í botninum. Snjóþyngsli
dró eitthvað úr vetrarbeitarþunga í
skógarbotninum.
Erfitt var að smala skóginn, þá
sem nú. Pétur man að hann reið á
hesti á ás meðfram skóginum, en
þaðan sá hann kindurnar og sendi
hundinn eftir þeim. Hundurinn
stuggaði þeim út úr skóginum og
kom aftur til Péturs sem sendi hann
í næsta hóp, en sat sjálfur rólegur á
hestinum og reykti pípu!
Allt þetta heimaland er beitt á
haustin en ekki lengur á veturna.
Fé var hátt í 1000 þegar flest var en
hefur fækkað, Gunnar er þó með 500
vetrarfóðraðar ær.
Gunnar vill sjá sem mest af
sínu landi verða að birkiskógi af
þessu tagi. Skógurinn geti staðist
beitarálag án þess að sjái á honum,
skýlt fénu og skilað þannig góðum
arði. Þetta sé eins og landið hefur
verið áður en menn spilltu því.
Gunnar er einnig skógarbóndi.
Hefur sett niður um 10.000 plöntur
árlega, aðallega lerki og furu, í
kílómeters fjarlægð frá bænum,
og vill með því m.a. skapa skjól
við bæinn. Skógræktarlandið er
girt og friðað fyrir beit fyrstu
árin og skilgreint beitarskógur.
Honum er kunnugt um tilraun
sem Guðríður Baldvinsdóttir
gerði sem prófverkefni frá
Landbúnaðarháskólanum, á jörðinni
Garði í Kelduhverfi árin 2015 og
2016, þar sem lerkiskógur var beittur
og sýndi sig að létt beit hafði engin
áhrif á vöxt og viðgang lerkisins (sjá
frétt í 14. tbl. Bændablaðsins 2018,
bls.12). Gunnar vissi til að kindur
sem komast í nýgróðursett lerki eiga
það til að kippa plönturnar upp með
rót án þess að éta þær.
Gróðurfar í Norðurþingi
– og lúpínan
Það kom mér á óvart hvað láglendið
í Öxarfirði og Kelduhverfi er
vel gróið. Fjölbreyttur kjarr- og
lynggróður og stór svæði laus við
lúpínu (mynd 8). Pétur Þorsteinsson
álítur að gróskan aukist stig af stigi
frá Melrakkasléttu til suðvesturs
með hverjum fjallgarðinum af
öðrum. Gróskan sé einkum að þakka
skjóli fyrir norðaustanátt sem hafi
verið þrálát hér þar til sjórinn fór að
hlýna, nú sé norðvestanáttin verst.
Núpasveit er út með Öxarfirði
að austan og þar er eyðilegra um að
litast og af veginum gefur víða að
líta kraftmikla og einsleita lúpínu,
sjá mynd 9.
Lúpína virðir engin landamæri
og Gunnar á Daðastöðum er
heppinn að nágrannar hans amast
ekki við henni og engin friðlönd
eru nálægt Daðastöðum. Það er
öllu verra með lúpínu sem vex í
jaðri Vatnajökulsþjóðgarðs, nálægt
Jökulsá að austanverðu, austan
vegar þó, bæði á Hólssandi í
nágrenni Dettifoss og líka sunnan
hans og austan upp að Grímstöðum
á Fjöllum (nærri 400 mys). Mikil
hætta er á að fræ þessarar lúpínu
komist í Jökulsá, berist niður með
henni og skjóti rótum á eyrum og
Gróður í Norðurþingi
– um sauðfjárbeit, landgræðslu, skógrækt og lúpínu
Mynd 2. Umræddur melur þar sem sáð var lúpínu 1992 og hún óx þar vel framan af. Daðastaðir og Valþjófsstaðafjall í baksýn.
Mynd 1. Melur skammt frá bænum sem græddur var upp með miklum skít
fyrir 1990.
Mynd 3. Tekin á áðurnefndum mel,
þar sem hvað minnst bar á lúpínu.
Aðrar plöntur ríkjandi (ekki síst
mýrasóley), en smávaxin lúpína
innan um og lúpínusina.
Mynd 4. Við stungum upp fáeinar
litlar lúpínur og kíktum á rætur. Þær
voru frekar grannar, fremur lítið
um bakteríuhnýði og þau fremur
smá, ólíkt því sem ég hef séð á
Reykjanesskaga.
Mynd 5. Á myndinni sjást m.a. leifar af girðingu sem áður friðaði landið
öðru megin fyrir beit fyrstu árin eftir að lúpínu var sáð þar. Þá stöðvaðist
lúpínan við girðinguna því féð hélt aftur af henni þeim megin sem beitt var.
Seinna þegar Gunnar tók vírinn af girðingunni og hleypti fénu einnig á friðaða
hlutann náði lúpínan fótfestu þar líka.
Mynd 6. Lyngmói á milli birkiskógar og lúpínugróins mels.