Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 56

Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201856 LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Eftir að hafa lokið námi hófu ábúendur á Torfastöðum fljót lega að leita sér að jörð til búskapar. Þau duttu niður á þessa jörð, sem er í eigu fyrr verandi ábúenda hennar. Engin ábúð hafði verið á henni í nokkur ár þegar þau fluttu þangað 22. apríl 2017. Síðan þá hafa þau jafnt og þétt verið að byggja upp. Býli: Torfastaðir. Staðsett í sveit: Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði. Ábúendur: Árni Jón Þórðarson og Sigurlaug Jónína Ólöf Þorsteinsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við eigum tvo syni; Þórð Þorstein, 4 ára og Elvar, 2 mánaða. Svo er hundurinn Rúna einnig á bænum. Stærð jarðar? Hún er 1.867 ha, þar af 45–50 ha ræktaðir. Gerð bús? Sauðfjárbú. Fjöldi búfjár og tegundir? 200 vetrarfóðraðar kindur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Þeir eru misjafnir eins og þeir eru margir dagarnir og í sjálfu sér enginn hefðbundinn vinnudagur. Þórður Þorsteinn fer í leikskólann í Brúarási á morgnana, aðrir heimilismeðlimir ganga í þau verkefni sem liggja fyrir á býlinu, nú eða stunda vinnu utan þess. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Að taka á móti ungviðinu á vorin er með því skemmtilegasta. Að ganga frá og þrífa/moka út eftir veturinn eru svona með þeim leiðinlegustu. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Með svipuðu sniði en þó vonandi búin að fjölga fénu eitthvað og bæta aðstöðuna. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Það er ýmislegt sem mætti betur fara. Bændur þurfa að standa betur saman og vinna meira sem ein heild. En svo er líka margt gott sem er verið að gera. Hvernig mun íslenskum land búnaði vegna í framtíðinni? Vonandi sem allra best. Sér í lagi ef íslenskir neytendur taka sig á í því að versla innlendar vörur höfum við trú á því að hann muni geta dafnað mjög vel. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Ætli þau séu ekki bara í Kína og Japan? Annars liggja þau eflaust víða. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Nýmjólk, rjómi, smjör, skyr og Trópí. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Það er fátt sem slær góðu lambalæri út. Eftirminnilegasta atvikið við bú - störf in? Mörg eftirminnileg atvik hafa gerst þetta fyrsta búskaparár okkar, en sennilega eftirminnilegast þegar bóndinn á næsta bæ þurfti að koma og draga upp bæði Zetorinn og Hil uxinn sama daginn. Bláberja-bollakökur með kínóakorni og döðlum Íslensk bláber eru holl ofurfæða og henta vel í þessar orkumiklu bollakökur, sem eru glútenfríar með því að nota kínóa í stað hveitis. Gott er að fylla frystinn af þeim til að eiga til haustsins. Gott er að nota náttúrulegt sætuefni eins og döðlur eða hunang en kínóa er eitt vinsælasta heilsufæðishráefnið í dag. Fljótlegt er að gera bollakökur og auðvelt. Kínóa er glútenfrítt, með mikið magn af próteini, ein af fáum plöntum sem innihalda allar þær níu nauðsynlegar amínósýrur sem líkaminn þarfnast. Það er einnig trefjaríkt og inniheldur magnesíum, B-vítamín, járn, kalíum, kalsíum, fosfór, E-vítamín og ýmis heilsusamleg andoxunarefni. Kínóa í uppskriftum getur bætt blóðsykurinn og kólesterólmagn í blóði. Talið er að kínóa (quinoa) hafi fyrst verið notað til manneldis fyrir þrjú til fjögur þúsund árum síðan, á Andessvæðinu í Bólivíu, Perú og Kólumbíu. Þetta korn hefur verið undirstaðan í mataræði Inka sem kalla það „Móðurkornið“.Það er líka glútenlaust, ljúffengt og auðvelt að elda og að bæta í rétti. Í þessari uppskrift eru kínóa- kornin elduð eins og grautur eða hafragrautslummur og sett í muffins- form, bökuð og svo hituð eða borðuð köld eftir hendinni eða þegar gestir kíkja í heimsókn. Bláberja-bollakökur með kínóakorni og döðlum › 1/3 bolli ( 80 g ) kínóa ósoðið › 2/3 bolli (225 g) kókosmjólk › 2 msk. kókosolía › 3 msk. hunang › 2 stór egg › 1/2 tsk. vanilluþykkni › Ögn af salti › 1/2 bolli (170 g) vanillu grænmetis- eða sojapróteinduft › 1/4 bolli döðlur (100 g ), saxaðar eða teningar › 1/2 bolli eða um 170 g fersk bláber helst aðalbláber Aðferð Forhitaðu ofninn í 200 gráður og settu muffinsmót í ofninn. Blandið saman hráu kínóa og kókosmjólk í miðlungsstórum potti og látið sjóða við háan hita. Þegar suðan er komin upp, lækkið hitann og látið malla rólega. Eldið þar til mjólkin er að mestu horfin og grautaráferð er náð, í um 20–25 mínútur. Látið kólna. Bræðið kókosolíu og hunang saman í plast- eða keramikskál í örbylgjuofni þar til það er orðið slétt og fljótandi. Setjið eggin saman við og hrærið vel. Þá er vanilluþykkni bætt saman við og klípu af salti. Blandið vel saman. Bætið kældu soðnu kínóa saman við og kókosmjólkurblöndunni og hrærið vel í þessu. Setjið döðlurnar í skál og blandið próteinduftinu saman við. Blandið döðlum, próteinduftinu, og bláberjum vel saman við kínóa- blönduna. Skiptið blöndunni upp í sjö hluta og setjið í muffinsformin, næstum full. Bakið þar til toppurinn er gullinn og tannstöngull kemur hreinn upp þegar honum er stungið í miðjuna, eða í um 17–20 mínútur. Látið kólna alveg í forminu. Skrautleg berjakaka með smjörkremi Að blanda saman Nutella og jarðarberjum hefur lengi verið uppáhaldssamsetningin mín. Súkkulaði-heslihnetubragðið með ferskum berjum er bara of gott. Það má nota öll ber í þessa köku. Hvít svampkaka › 2 bollar (500g) sykur › 4 egg › 2 1/2 bolli (625 g) hveiti › 1 bolli (250 g) mjólk › 3/4 bolli (175 ml) jurtaolía › 2 1/4 teskeiðar (11 g) lyftiduft › 1 tsk. (5 ml) vanilludropar eða duft › Nutella eftir smekk Hitið ofninn í 180 gráður, tvö kringlótt kökuform (23 cm) eða eitt (23 x 33 cm) eru smurð og bökunarpappír settur í botninn. Smjörpappírinn er smurður aftur og hliðarnar á formunum líka vel. Í hrærivél er sykri og eggjum þeytt saman þangað til grunnurinn hefur örlítið þykknað, um eina mínútu. Bætið hveiti, mjólk, olíu, lyftidufti og vanillu saman við og hrærið í eina mínútu, eða bara þar til deigið er slétt og loftmikið. Ekki ofþeyta. Hellið deiginu í formin. Bakið í forhituðum ofni í 30 til 40 mínútur, eða þar til topparnir eru gullnir og tannstönglar sem stungið er í miðju á deiginu koma út hreinir og deiglausir (eitt fullt form tekur lengri tíma að baka en tvær hringir eða minni form). Losaðu meðfram kökuhliðinni með litlum hníf og hvolfið kökunni úr formunum á borðið eða grind og fjarlægið smjörpappírinn. Látið kólna alveg áður en kakan er smurð með Nutella og kremi (sykurmassa). Fyrir jarðarberja-smjörkremið: › ½ bolli jarðarberjamauk (marin ber) › ¾ bolli ósaltað smjör, stofuhita › ½ bolli kókosfita (eða viðbótarsmjör) › 5 bollar flórsykur › Ögn af salti › Jarðarber, til skrauts og fyllingar › smjörkremið Setjið jarðarberjamauk (eða sultu) í lítinn pott og hitið á miðl ungs hita í um það bil 15-20 mín útur, eða þar til maukið hefur minnkað um helming. Setjið í kæli og látið kólna alveg. Blandið saman smjöri og kókosfeiti í stórri hrærivélskál og hrærið þar til blandan er slétt. Bætið helmingi af flórsykrinum saman við, þar til blandan er slétt. Bætið matskeið af kældu jarðarberjamauki (sultu) saman við og blandið þar til grunnurinn er vel sléttur. Bætið restinni af flórsykrinum saman við og hrærið þar til kremið er slétt og fínt. Bætið við 2-3 matskeiðum af sultu eftir smekk, eftir þörfum, til að ná réttu samræmi og bragði. Bætið við klípu af salti eða eftir smekk. Þegar kökubotnanir eru kólnaðir, smyrjið Nutella og smjörkremi yfir. Svo má rúlla út tilbúnu sykurdeigi sem fæst í ýmsum búðum og gera munstur, til dæmis í kúalitunum eða á þann veg sem þinn innri listamaður segir þér. En kakan er líka góð án sykurdeigs. MATARKRÓKURINN Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari Torfastaðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.