Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 62
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. október 201862
Eldri blöð má
finna hér á PDF:
480 5600
Landstólpi - Egilsstöðum
Vélaval - Varmahlíð
Útsölustaðir:
Vantsdallur
SU10000370
Verð kr. 6.8507 83
UPPSTOPPUN
KRISTJÁN FRÁ GILHAGA
SÍMI 892-8154
Drekagili 9 603 Akureyri
@simnet.is
Bændablaðið
Smáauglýsingar.
563 0300
www.bbl.is
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa . Fáanlegir í
185–240 cm breidd.
TIL SÖLU
Hilltip Icestriker 120–200 L
Salt og sanddreifari fyrir jeppa,
pallbíla eða lyftara. Rafdrifin 12V.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótennur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegar í
165–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SML
Snjótennur fyrir minni vörubíla
ca. 7,5 tonn. Fáanlegar í 260–300
cm breidd.
Hilltip Rotating Sweeper
Vökvadrifinn sópur fyrir pallbíla
og minni vörubíla. Fáanlegur í
180-200-220 cm breiddum.
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S: 551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker 550–1600 L
Salt og sanddreifarari í þremur
stærðum, fyrir pallbíla sem og
minni vörubíla. Rafdrifin 12V.
Hitaveituvatn Akureyringa í vaxandi mæli sótt á Hjalteyrarsvæðið
Hjalteyrarlögn dugar samfélaginu
við Eyjafjörð næstu áratugi
„Stöðugur vöxtur hefur verið í
heitavatnsnotkun Akureyringa
undanfarin ár, það er komið að
ákveðnum þáttaskilum í rekstri
veitunnar, en yfir köldustu
vetrardagana er hún á fullum
afköstum og má lítið út af bregða,“
segir Helgi Jóhannesson, forstjóri
Norðurorku.
Fyrirtækið hefur í sumar staðið í
umfangsmiklum framkvæmdum við
lagningu Hjalteyrarlagnar sem svo er
nefnd, frá dælustöð Norðurorku við
Glerártorg á Akureyri, og nær fyrsti
áfangi verksins út fyrir Hlíðarbraut
í norðri og er honum nú að mestu
lokið.
Um 60% af hitaveituvatni koma
af Hjalteyrarsvæðinu
Hitaveitukerfið á Akureyri var í
upphafi hannað með það í huga
að aðveitulagnir kæmu sunnan úr
Eyjafjarðarsveit. Helgi segir að fyrri
áætlanir hafi gert ráð fyrir frekari
vatnsöflun í Eyjafjarðarsveit þar
sem allir innviðir séu til staðar.
Árangurslaus borun á vinnslusvæði
við Botn sumarið 2016 varð til
þess að ákveðið var að afla vatns
fyrir veituna á Hjalteyrarsvæðinu
svo mæta mætti aukinni þörf fyrir
orku. „Orkuþörf hitaveitunnar hefur
tvöfaldast frá því sem var árið 2000,“
segir Helgi.
Hjalteyrarsvæðið sem virkjað
var árið 2002 gefur nú þegar um
60% af hitaveituvatni Akureyringa.
Helgi segir að sú mikla afkastageta
sem fyrir hendi sé á því svæði geti
stafað af því að lekt bergs sé betri og
aðsteymi vatns greiðara en þekkist á
öðrum vinnslusvæðum Norðurorku.
Rekja megi það til sprungumyndunar
af völdum jarðskjálfta í brotabelti í
utanverðum Eyjafirði. „Afkastageta
jarðhitakerfisins við Hjalteyri er því
mun meiri en annarra jarðhitasvæða
sem við nýtum,“ segir Helgi.
Kostnaður við allt verkið ríflega
tveir milljarðar
Hann nefnir að mat Íslenskra
orkurannsókna sé að Hjalteyrarkerfið
geti staðið undir mun meiri
vinnslu en nú er, en flutningsgeta
aðveitunnar standi í vegi fyrir
nýtingu vinnslusvæðisins.
„Þetta er þannig að yfir köldustu
vetrarmánuðina þrýstum við mun
meira vatni gegnum lögnina en
eðlilegt er, það kostar öflugar
dælur og gríðarlega raforku,“ segir
Helgi. Nú þegar liggur að mestu
fyrir hönnun á nýrri aðveituæð frá
vinnslusvæðinu á Hjalteyri sem og
einnig hönnun á bættri tengingu
aðveitunnar við bæjarkerfið. Í því
felast m.a. breytingar á tengingum
við meginflutningskerfið innan
bæjarins og á dælustöð við Þórunnar-
stræti.
Helgi segir að næsta sumar sé
stefnt að því að tengja vatnið frá
Hjalteyri upp í miðlunartanka í
Þórunnarstræti.
„Við áfangaskiptum þessu
gríðarstóra verkefni, þetta er mikil
fjárfesting, kostnaður er áætlaður
ríflega tveir milljarðar króna í
heild, boranir og dælubúnaður er
þar meðtalinn,“ segir Helgi. Góður
árangur var nú í sumar þegar boruð
var viðbótarhola á jarðhitasvæðinu
við Hjalteyri, en sú borun var
eingöngu hugsuð til að fá varaholu
í byrjun og ná betra aðgengi niður í
núverandi vinnslupott.
Lögnin lögð undir Glerá í haust
„Við skiptum þessu verkefni upp á
fjóra áfanga og er sá fyrsti í gangi
núna, hann var boðinn út í vor og var
tilboði lægstbjóðenda, frá Finni ehf.,
tekið. Fyrsti áfangi felst í lagningu
nýrrar 500 mm lagnar innanbæjar, frá
dælustöð við Glerártorg og út fyrir
Hlíðarbraut. Lokaáfanginn í fyrsta
áfanga verkefnisins felst í að koma
lögninni undir botn Glerár og best
hentar að vinna að því þegar dregur
í vatnsmagni árinnar síðar í haust.“
Næsta vor, 2019, verður hafist handa
við annan áfanga verksins, sem er
frá Hjalteyri og suður að Ósi, sem
er norðan við ósa Hörgár.
Helgi segir að verkefnið sé stórt
og umfangsmikið, en almennt hafi
allt gengið með ágætum, alltaf komi
þó upp einhver atriði sem ekki var
hægt að sjá fyrir.
„Við vonum að ný Hjalteyrarlögn
muni duga samfélaginu við Eyjafjörð
næstu áratugina,“ segir Helgi og
bætir við að hún sé hönnuð með þann
möguleika í huga að lengja hana enn
frekar til norðurs, að jarðhitasvæði
við Syðri-Haga/Ytri Vík en það er í
eigu Norðurorku. /MÞÞ
Norðurorka stendur í umfangsmiklum framkvæmdum við lagningu Hjalteyrarlagnar. Fyrsti áfangi verksins nær frá
dælustöð við Glerártorg og út fyrir Hlíðarbraut. Myndir / MÞÞ
Eyjafjarðarsveit. Árangurslaus borun á vinnslusvæði við Botn sumarið 2016
svo mæta mætti aukinni þörf fyrir orku.
Þess er vænst að ný Hjalteyrarlögn
muni duga samfélaginu við Eyjafjörð
næstu áratugina.