Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 1
19. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 4. október ▯ Blað nr. 524 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Staða íslenskra loðdýrabænda er grafalvarleg vegna viðvarandi verðlækkana á markaði undanfarin ár: Skinnaverð hefur lækkað um 50% frá 2015 og hrun blasir við í greininni – Gríðarleg verðmæti í húfi í búnaði, þekkingu, reynslu og nýtingu slátur- og fiskúrgangs sem annars verður að urða Hrun blasir við í minkarækt á Íslandi ef ekkert verður að gert. Ljóst er að við fjöldagjaldþrot í greininni munu tapast gríðarleg verðmæti í búrum, búnaði, þekkingu og dýrmætri reynslu. Frá árinu 2015 til dagsins í dag hefur skinnaverðið lækkað um 50% í íslenskum krónum. Um þriðjungur af þeirri lækkun er vegna sterkrar stöðu krónunnar. Þá er verðið nú ekki nema tæplega fjórðungur, eða innan við 25%, af verðinu 2013. Fimm minkabúum var lokað vegna ástandsins á síðasta ári og eru einungis 18 minkabú starfandi í dag, en þau voru 31 þegar best lét 2014. Eftir því sem búunum fækkar verður erfiðara að halda uppi fóðurframleiðslu sem skapar verðmæti úr sláturúrgangi frá landbúnaði og fiskúrgangi sem annars væri hent og urðað. Nemur fóðrið sem þannig er nýtt um 50 kg á hvert skinn sem framleitt er. Það snertir líka umhverfismál og markmið stjórnvalda í loftslagsmálum, en gert er ráð fyrir að þrengt verði að urðun á slíku hráefni árið 2020 með gjaldtöku og að hún verði síðan bönnuð í framhaldinu. Mjög þungt í mönnum Einar E. Einarsson, bóndi á Syðra- Skörðugili í Skagafirði, er formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda (SÍL), en hann rekur búið Urðarkött ehf. Hann segir að meðalskinnaverð síðustu fimm ára, að árinu 2018 meðtöldu, sé komið nær helming undir reiknaðan framleiðslukostnað. „Hljóðið er orðið mjög þungt í okkar félagsmönnum,“ segir Einar. „Það er blóðugt ef þetta þarf að leggjast á hliðina þegar við stöndum með í höndunum okkar góðu framleiðslu og mikil verðmæti í búnaði, reynslu og þekkingu. Ef ekkert verður að gert blasir hrun við í greininni.“ Greinin hefur skilað nær 11 milljörðum í þjóðarbúið frá hruni Frá 2008, þegar efnahagshrunið varð á Íslandi, og til ársloka 2017, skilaði minkaræktin tæpum 11 milljörðum króna í íslenska þjóðarbúið. Þegar skinnaverð stóð sem hæst, árið 2013, fengu íslenskir skinnaframleiðendur 12.593 krónur fyrir hvert skinn, en þá seldust 174.463 skinn. Á síðasta ári seldust 170.643 skinn og meðalverðið til framleiðenda var 3.826 krónur. „Árið í ár er síðan það allra versta en nú að afloknu septemberuppboði er meðalverð ársins til bænda um 3.100 krónur, sem er helmingur þess sem það kostar að framleiða eitt skinn en framleiðslukostnaður er um 6.000 krónur. Þar af er fóðurkostnaður um 2.500 kr. og vinnulaun um 1.200 kr.,“ segir Einar. Afar sterk staða íslensku krónunnar síðastliðin ár hefur líka ýkt niðursveifluna á markaðnum fyrir íslenska bændur. „Undanfarnar vikur hefur krónan verið að lækka, sem gefur vonir um að staða útflutningsgreina gæti hugsanlega farið batnandi ef krónan veikist áfram en fyrir því er engin trygging. Að mínu viti þarf krónan að veikjast um að minnsta kosti 15% í viðbót svo staða útflutningsgreina á Íslandi verði samkeppnishæf í kostnaði óháð heimsmarkaðsverði hverju sinni,“ sagði Einar. /HKr. – Framhald á bls. 4 Allir að hjálpast að í Tungnaréttum, talið frá vinstri: Róbert Þór Bjarndal Ívarsson, Ásdís Erla Helgadóttir, Adda Sóley Sæland og Sveinn Leví Kristinsson. Mynd / Ruth Örnólfdóttir Hafa byggt óbyggðasetur í skjóli fjallanna 32–34 Forstjóri Matís seldi kjöt af heimaslátruðu á bændamarkaði 10 Kynnir íslenskar matarkistur 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.