Bændablaðið - 08.02.2018, Qupperneq 2

Bændablaðið - 08.02.2018, Qupperneq 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018 Eftirlegukindum smalað til byggða á Austurlandi eftir áramótin: Óstand á fjallskilum vegna fækkunar sauðfjárbænda – Ástandið er svipað á nánast öllu Austurlandi, segir Þorsteinn Bergsson, dýraeftirlitsmaður MAST Fjölda fjár hefur verið smalað til byggða á Austurlandi eftir áramót. Greinilegt er að fjallskil eru ekki í lagi þegar fjöldi fjár sem rekið er á afréttir á vorin skilar sér ekki við smölun að hausti. Bent hefur verið á að fækkun sauðfjárbænda er víða það mikil að erfitt er að manna göngur við fjallskil á haustin. Þorsteinn Bergsson, fyrrverandi sauðfjárbóndi við Héraðsflóa og núverandi dýraeftirlitsmaður MAST, sagði í samtali við Bændablaðið að ein af ástæðunum fyrir þessu væri að fólki hefði fækkað í sveitum, þannig að ekki er hægt að smala eins stór svæði í einu lagi og áður var. Þá þarf að skipta svæðunum upp og smala þau á lengri tíma, sem eykur líkur á að eitthvað verði eftir. „Ástandið er svipað á nánast öllu Austurlandi. Ég hef heyrt um manneklu við smölun á Vopnafirði, í Fljótsdal, Loðmundarfirði og Seyðisfirði og einnig á Suðurfjörðunum frá Berufirði og suður úr til Hornafjarðar. Það er því víða á Austurlandi sem smalamennskur geta verið geypilega erfiðar.“ Ábyrgðin hjá sveitarfélögunum Að sögn Þorsteins er löngu tímabært að taka á málinu og finna einhvers konar lausn á því. „Eins og staðan er í dag er þetta ófremdarástand. Samkvæmt lögum um fjallskil, eins og þau eru í dag, liggur ábyrgðin hjá sveitarfélögunum og mjög misjafnt hvernig þau standa undir þeirri ábyrgð og hvað þau hafa mikinn áhuga á því.“ Fé í afgirtum hólfum Komið hefur upp sú hugmynd að settar verði reglur um sauðfjárhald sem fela í sér að bændur sem ekki geti framvísað lista að vori yfir nauðsynlegan fjölda leitarmanna fyrir viðkomandi svæði næsta haust, verði bannað að reka á fjall og gert skylt að hafa sitt fé í afgirtum beitarhólfum til að forðast svona vandræði. Þorsteinn vill ekki tjá sig um hvort sú hugmynd sé raunhæf en segir að sums staðar á landinu sé búið að koma smölun þannig fyrir að það séu ekki endilega bændur sem smala. „Það geta verið björgunarsveitir eða sérstök félög eins og í Svarfaðardal þar sem er gangnamannafélag sem sér um fjallskil á haustin. Það má því segja að þar sé búið að útvista smöluninni.“ Misgott ástand á eftirlegufénu Að sögn Þorsteins hefur hann ekki á hraðbergi hversu margt fé hefur verið að heimtast á Austurlandi frá því eftir leitir í haust en hann segist hafa heyrt að í Fljótsdal séu það um tvö hundruð eftir áramót. „Í Fljótsdal er mikið um skóga sem erfitt er að ná fénu úr. Þar hefur féð það gott og er því ekki að hrekjast heim vegna þess að það sé illa haldið. Annars staðar eru aðstæður fjárins verri, það er kannski að lokast af í fönnum til fjalla og þá þarf að bjarga því af fjalli. Auk þess að valda bændum og öðrum landsmönnum áhyggjum af skepnunum geta þessi slöku fjallskil einnig valdið talsverðu fjárhagslegu tjóni.“ /VH FRÉTTIR Þorsteinn Bergsson, fyrrverandi sauðfjárbóndi við Héraðsflóa og núverandi dýraeftirlitsmaður MAST. Mynd /smh Fé bjargað af fjalli eftir hrakninga fyrir nokkrum árum. Í uppgjöri afurðastöðvanna, vegna sauðfjárslátrunar síðastliðið haust, kemur fram að meðalverð fyrir hvern dilk var frá 340,99 krónur á kílóið upp í 425,5 krónur á hvert kíló. Bændablaðið leitaði til sláturleyfishafa og bað um upplýsingar um meðalverð á kíló til bænda fyrir hvern innlagðan dilk. Einnig var óskað eftir upplýsingum um fjölda slátraðra dilka og meðalþunga – og hvort vænta mætti endurskoðunar á verðskrám. Sláturfélag Vopnfirðinga slátraði rúmum 30 þúsund Að sögn Þórðar Pálssonar, skrifstofustjóra hjá Sláturfélagi Vopnfirðinga, var innlagt magn dilkakjöts á síðustu sláturvertíð 467.434 kíló. Meðalafurðaverð fyrir hvert kíló var um 377 krónur með breyttri gjaldskrá, en alls var slátrað 30.430 dilkum þar sem meðalvigtin var 15,91 kíló. Fjallalamb slátraði tæpum 28 þúsund Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs, segir að heildarmeðalverð á öllum keyptum dilkum hafi verið 347,69 krónur á kílóið. Meðalþungi dilka hjá Fjallalambi var 15,73 kíló og alls var slátrað 27.731 dilkum. Hann tekur fram að Fjallalamb hafi ekki hækkað sláturkostnað á heimteknu ef tekið var eitthvert magn. „Flest húsin hækkuðu sláturkostnað verulega ef heimtaka bænda fór yfir ákveðið magn og gerði þá bændum erfiðara að taka í heimtöku og selja.“ Björn Víkingur segir að þegar endanleg útkoma ársins 2017 liggi fyrir mun Fjallalamb ákveða með uppfærslu á verðskrá . Meðalþungi 16,36 kíló hjá Norðlenska Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska, segir að hjá þeim hafi 97.851 dilki verið slátrað. Meðalþungi hjá Norðlenska var 16,36 kíló á dilk og meðalverð um 356 krónur á kílóið. „Þeirri verðskrá sem gefin var út í lok sumars hefur ekki verið breytt, en breytingar gætu orðið fljótlega,“ segir Ágúst Torfi. KS slátraði tæplega 98 þúsund dilkum Ágúst Andrésson, forstöðumaður Kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga, segir að meðalverð fyrir innlagða dilka hafi verið 399,7 krónur á kílóið. Kjötafurðastöðin slátraði 97.778 dilkum og var meðalþyngdin 16,33 kíló. Að sögn Ágústs verður verðskráin endurskoðuð í næsta mánuði. Hann segir að rétt sé að setja verð frá SKVH sér inn í þennan samanburð, þar sem að þeir greiða álag á hluta slátrunar. Á Hvammstanga var 100.139 lömbum slátrað, þar sem meðalvigt var 16,7 kíló. Þar var meðalverð á lamb 425,5 krónur á kílóið. SAH afurðir slátruðu rúmlega 96 þúsund dilkum Hjá SAH afurðum á Blönduósi var 96.256 dilkum slátrað. Meðalþungi dilka var 16,52 kíló og meðalverð fyrir dilk var 340,99 krónur á kílóið, miðað við fyrirliggjandi verðskrá. Eiður Gunnlaugsson, stjórnarformaður Kjarnafæðis, sem á og rekur SAH afurðir, segir að endurskoðun á verðskrá liggi ekki fyrir. „Við komum til með að fara yfir þetta með eins góðum hug og hægt er, svo mikið er víst, en erum ekki búnir að því og ég get ekki sagt hvenær við gerum það,“ segir hann. SS staðgreiddi rúmar 422 krónur fyrir kílóið Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, segir að 103.204 dilkum hafi verið slátrað hjá þeim í síðustu sláturtíð. Meðalþyngd slátraðra dilka var 16,49 kg og meðalverð sem greitt var fyrir innlagða dilka var 422,65 krónur á kílóið. „SS staðgreiddi allt sauðfjárinnlegg föstudag eftir innleggsviku,“ segir Steinþór, sem reiknar ekki með breytingu á þeirra verðskrá. /smh KS styður sína félagsmenn Afurðaverð til sauðfjárbænda fyrir sláturtíðina 2017: Greitt var frá tæpri 341 krónu til um 425 króna á innlagt kíló – Afurðastöðvar liggja undir feldi með endurskoðun á verðskrám SS staðgreiddi rúmar 422 krónur fyrir kílóið af dilkakjötinu. Á Facebook-síðunni Sauðfjár­ bændur hefur spunnist allnokkur umræðuþráður um fyrirgreiðslusamninga sem Kaupfélag Skagfirðinga (KS) hefur boðið sauðfjárbændum sem eru í viðskiptum við félagið. Er þar rætt um hagkvæma lánasamninga, auk þess sem hagstæð kaup á áburði eru talin í boði. Telja sumir sem tjá sig á þræðinum að sauðfjárbændur sem eigi í viðskiptum við KS sitji ekki allir við sama borð og þá eru uppi sjónarmið um að slíkir samningar skekki stöðu sauðfjárbænda í landinu. Ingólfur Jóhannsson, fjármála­ stjóri KS, segir að það sé ekkert nýtt að KS styðji við bændur sem séu félagsmenn í félaginu. „Þetta hafa verið lánafyrirgreiðslur til skamms tíma á hagstæðum kjörum; til dæmis vegna kaupa á greiðslumarki – hvort sem það er í sauðfé eða mjólk. Við höfum líka lánað vegna framkvæmda, en þá eingöngu á framkvæmdatíma.“ Á við innleggjendur og félagsmenn í KS „Þetta sem nú er í umræðunni á við þá sauðfjárbændur sem leggja inn og jafnframt eru félagsmenn í KS. Þeim var boðið að skuldbreyta hluta af viðskiptastöðu við KS til þriggja ára,“ segir Ingólfur. Hann segir það misskilning að það sé veittur afsláttur við áburðarkaupin, heldur sé áburðarpöntunin komin inn í viðskiptastöðuna og er þar af leiðandi hluti af skuldbreytingu hluta viðskiptastöðunnar. Varðandi það hvort verið sé að mismuna bændum í Skagafirði segir Ingólfur að það sé ekki rétt. „Það stendur öllum sauðfjárbændum þetta til boða, sem leggja inn hjá KS og eru jafnframt félagsmenn. Við lögðum þetta með þessum hætti upp fyrir bændur en erum ekki búnir að ganga frá þessum málum endanlega. Við fengum deildarstjóra hjá KS til þess að koma á fundum þar sem þetta var kynnt fyrir bændum og þeir sem hafa áhuga leita svo til okkar.“ Jafnræði ekki raskað Ingólfur segir að það sé ekki hægt að segja að jafnvægi í greininni sé eitthvað raskað með slíkum samningum. „Í sjálfu sér er það ekki nýtt að KS aðstoði félagsmenn sína með lánum á hagstæðum kjörum. Við erum að bjóða félagsmönnum þetta og félagssvæði okkar er Skagafjörður. Ákvörðun þessi er ekki tekin af kjötafurðastöð KS heldur af fjármáladeild í samráði við stjórn félagsins,“ segir hann. /smh Höfuðstöðvar Kaupfélags Skag- firðinga á Sauðárkróki.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.