Bændablaðið - 08.02.2018, Qupperneq 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018
Íbúafundur á Hvammstanga:
Fyrirhugað að byggja fjölbýlishús
á hafnarsvæðinu
Deiliskipulagstillaga hafnar-
svæðisins á Hvammstanga var til
umfjöllunar á vel sóttum íbúafundi
á Hvammstanga í liðinni viku. Um
120 manns mættu á fundinn.
Óskar Örn Gunnarsson,
skipulagsfræðingur hjá Landmótun,
kynnti skipulagstillöguna og
Guðný Hrund Karlsdóttir fór
yfir valkostagreiningu vegna
staðsetningar fjölbýlishúss og
stöðuna á húsnæðismarkaðnum.
Þá fór Páll Gunnlaugsson arkitekt
yfir tegund og hönnun íbúða í
fyrirhuguðu fjölbýlishúsi.
Á vef Húnaþings vestra er
fjallað um fundinn sem og að mikið
hafi verið rætt um staðsetningu
fjölbýlishúss sem fyrirhugað sé
að byggja við hafnarsvæðið á
Hvammstanga en um hana séu
skiptar skoðanir.
Á fundinum var komið inn á
ýmis atriði, rætt um fornleifar,
smábátahöfn, bílastæði og fleira,
gagnlegum spurningum var varpað
fram sem og ábendingum sem nýttar
verða við áframhaldandi vinnu.
Nýtt skipulag var auglýst
síðastliðið vor, en við það bárust
athugasemdir og ábendingar og var
því í kjölfarið ákveðið að gera á
því breytingar og auglýsa á ný að
undangengnum íbúafundi. Helstu
breytingar frá fyrra skipulagi
eru þær að lóðir á Tanga eru
felldar út, lóðamörkum breytt,
ný rútustæði sett upp, mögulega
einnig göngubrú og gögn vegna
íbúðalóðar og fornleifaskráningar
voru endurbætt.
Gert er ráð fyrir að tillagan
verði afgreidd af sveitarstjórn þann
8. febrúar næstkomandi og fari í
framhaldi af því í auglýsingu og þá
málsmeðferð sem gildir samkvæmt
skipulagslögum. /MÞÞ
Aðalfundur SUB 2018
– kosið um formann og tvo stjórnarmenn
Samtök ungra bænda (SUB) boða
til aðalfundar laugardaginn 24.
febrúar næstkomandi í Vatnsholti
í Flóahrepp.
Á fundinum verður kosið um
formann og tvo meðlimi stjórnar,
en að öðru leyti verða hefðbundin
aðalfundarstörf á dagskrá. Frestur
til að senda inn mál á aðalfund er
tveimur vikum fyrir fund.
Það er Félag ungra bænda á
Suðurlandi sem heldur árshátíð
samtakanna að þessu sinni, sem
verður nánar auglýst síðar.
Samtök ungra bænda hvetja þá
sem hafa áhuga á að mæta sem
fulltrúar á fundinn að hafa samband
við formann síns aðildarfélags. Allir
áhugasamir meðlimir samtakanna
eru velkomnir með málfrelsi og
tillögurétt. Eða eins og segir í
tilkynningu stjórnar SUB:
„Sjáumst hress í Vatnsholti og
sláum tóninn fyrir Búnaðarþing.“
FRÉTTIR
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
ALHLIÐA
VÉLAVERKSTÆÐI
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
Í haust greindust tveir plöntu-
sjúkdómar í tómatrækt hérlendis.
Um er að ræða veiruna Pepino
Mosaic Virus (PepMV) og
spóluhnýðissýkingu (Potato
Spindle Tuber Viroid - PSTVd).
Niðurstöður rannsóknar
Matvælastofnunar gefa til kynna
að veirusmitið af völdum PepMV
eigi sér sameiginlegan uppruna og
sé útbreitt meðal tómatræktenda
hérlendis.
Sjúkdómarnir eru ekki skaðlegir
fólki en geta valdið miklum afföllum
í tómatrækt. Matvælastofnun
veit ekki til þess að veiran eða
veirungurinn hafi áður náð fótfestu
í garðyrkju hérlendis.
Tólf sýni jákvæð
Samkvæmt yfirlýsingu frá Mast
segir að við rannsókn voru tekin
22 sýni til hraðprófunar, af þeim
voru 12 jákvæð fyrir PepMV
veirunni. Ekki var skimað fyrir
spóluhnýðissýkingu í hraðprófun.
Einnig voru 16 ný sýni frá sömu
ræktendum send til frekari
rannsóknar, af þeim voru níu
jákvæð fyrir PepMV og eitt jákvætt
fyrir spóluhnýðissýkingu. Sex
ræktendur höfðu þegar tæmt hús
þegar sýnataka fór fram og ekki
fengust sýni frá þeim.
Spóluhnýðissýking greindist hjá
tveimur til viðbótar síðasta haust við
sýnatökur ræktenda.
Niðurstöður rannsóknar sýna
að PepMV veiran sem nú finnst
hérlendis er í öllum tilfellum af
afbrigði sem kallað er Chile 2 en
það bendir til þess að veiran geti
hafa borist hingað til lands með
sameiginlegum hætti.
Ekki hægt að útloka frekari
útbreiðslu
Niðurstöður rannsóknar sýna
að sýkingarnar eru bundnar við
Suðurlandsundirlendið en ekki er
hægt að útiloka frekari útbreiðslu í
öðrum landshlutum.
Í kjölfar sýkinga voru smitvarnir
auknar og settar takmarkanir á
samgangi milli ræktunarstaða.
Matvælastofnun vekur einnig athygli
á því að innfluttir tómatar geta borið
með sér smit. Til þess að stemma
stigu við frekari útbreiðslu mun
Matvælastofnun vinna að auknum
smitvörnum á býlum sem greinst
hafa með ofangreinda sjúkdóma.
Gæta þarf ýtrustu smitvarna til að
fyrirbyggja frekara smit. Mikilvægt
er að býli þar sem sjúkdómarnir hafa
ekki gert vart við sig efli einnig
smitvarnir þar sem sjúkdómarnir geta
valdið talsverðum afföllum í ræktun.
Matvælastofnun brýnir fyrir öllum
ræktendum garðyrkjuafurða að
fylgja leiðbeiningum stofnunarinnar
um smitvarnir við garðyrkjurækt.
Veiran og veirungurinn eru
ekki skaðleg fólki eða dýrum.
Spóluhnýðissýking getur hins vegar
borist í kartöflur með tilheyrandi
afföllum. Matvælastofnun beinir
því til kartöfluræktenda að gæta
að mögulegu krosssmiti frá
einstaklingum og aðföngum sem
borið gætu smit úr tómatrækt.
/VH
Veirusýking í tómötum orðin
útbreidd á Íslandi
– MAST segir að veiran og veirungurinn séu ekki skaðleg fólki eða dýrum
Tómatur smitaður af Pepino Mosaic
Virus.
Samstarfsnefnd vegna
sameiningar Djúpavogshrepps,
Sveitarfélagsins Hornafjarðar
og Skaftárhrepps hefur lokið
störfum.
Nefndin er sammála um að
viðræður sem staðið hafa yfir frá
því um mitt ár 2016 hafi verið
lærdómsríkar og aukið skilning
milli sveitarfélaganna varðandi
stjórnsýslu, stöðu og fyrirkomulag
hinna ýmsu málaflokka innan þeirra.
Sú staða sem kom upp í
lands málum á tímabilinu með
alþingiskosningum, stjórnarmyndun
í kjölfarið, og þeirri óvissu sem þeim
fylgdi varð til þess að ekki náðist
að ljúka viðræðunum í tíma fyrir
komandi sveitarstjórnarkosningar.
Á það sérstaklega við um ýmis
áhersluverkefni sem sveitarfélögin
vildu koma á laggirnar með
stuðningi stjórnvalda og nýtt
fyrirkomulag um stjórnskipulag
sameinaðs sveitarfélags. Af
þessum sökum varð það samhljóða
ákvörðun nefndarinnar að ljúka
störfum án þess að skila formlegu
áliti um mögulega sameiningu
sveitarfélaganna.
Nefndin aflaði gagna og ræddi
um ýmsa þætti er tengjast mögulegri
sameiningu sveitarfélaganna
þriggja. Í ljósi þessara gagna og
umræðna innan nefndarinnar
var samþykkt að ljúka störfum
nefndarinnar án þess að skila
formlegu áliti um mögulega
sameiningu sveitarfélaganna.
Það verður nýrra sveitarstjórna
að meta hvort viðræðum verði
haldið áfram síðar. /MÞÞ
Djúpavogshreppur, Hornafjörður og Skaftárhreppur:
Sameiningarviðræður slegnar af
Selasetrið á Hvammstanga:
Fleiri gestir en minni velta
Alls litu tæplega 42.500 gestir inn
á upplýsingamiðstöð Húnaþings
vestra sem er til húsa á sama stað
og Selasetur Íslands. Það er 8%
aukning á gestafjölda frá árinu
2016.
Sú aukning er þó heldur lítil ef
miðað er við árin á undan, á milli
áranna 2015 og 2016 fjölgaði um
44% og árin þar á undan, 2014
og 2015, nam fjölgunin 35%.
„Það er því ljóst að mjög dróst úr
aukningu ferðamanna á síðasta ári,
sem eitt og sér skiptir ekki öllu, en
alvarlegur fylgifiskur er sá að 29%
veltusamdráttur var á milli ára sem
bráðabirgðatölur okkar sýna að
hafi átt sér stað,“ segir í frétt á vef
Selasetursins.
Inn á safnið borguðu sig 13.417
gestir árið 2017, sem er 12%
aukning miðað við árið 2016. Þó
nokkur veltusamdráttur varð, þó
svo að fleiri hafi borgað sig inn
á safnið varð samdráttur í veltu
þó nokkur, eða tæplega 30%, „og
má af því ráða að árið 2017 hafi
ferðamenn haldið mikið í við sig í
minjagripaverslun og afþreyingu.“
/MÞÞ