Bændablaðið - 08.02.2018, Síða 20

Bændablaðið - 08.02.2018, Síða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018 Greinilegt er að skoðanir eru mjög skiptar um hvort það sé í raun eins farsælt að moka ofan í framræsluskurði til að endurheimta votlendi og gjarnan er fullyrt. Ljóst er að mörgum veigamiklum spurningum hefur þar ekki verið svarað með ótvíræðum hætti. Þá virðast fullyrðingar sem margir stjórnmálamenn hafa gripið á lofti um ágæti skurðafyllinga byggðar á afar umdeildum forsendum. Það hefur verið varpað fram fullyrðingum um að endurheimt votlendis yrði stórtækasta aðgerðin sem Íslendingar geti ráðist í til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Allt annað sé nánast hjóm eitt í samanburðinum. Á þeim forsendum virðist framkvæmd íslenskra yfirvalda í þessum málaflokki byggjast. Í umræðum um kolefnisbindingu felast þó miklar þversagnir af hálfu stjórnvalda. Á sama tíma og menn ræða um að moka ofan í skurði með ærnum kostnaði, hafa stjórnvöld stöðugt verið að draga úr fjárveitingum til skógræktar sem þó þykir vísindalega sannað að sé ein áhrifamesta leiðin til að binda koltvísýring í andrúmslofti. Gagnrýnin hugsun afar mikilvæg Vísindi og öll vísindaleg framþróun byggir undantekninga- laust á gagnrýnni hugsun. Blind trú á kenningar eða fullyrðingar vísindamanna sem ekki byggja á sannreyndum gögnum, geta því reynst æði hættulegar. Nægir þar að nefna trú á fullyrðingar Bandaríkjamannsins Nathan Pritikins um að dýrafita væri orsök offitu, hjartasjúkdóma sem og annarra vestrænna lífsstílssjúkdóma. Kom hann fram með Pritkin næringarkúrinn (Pritikin Diet) og setti á fót heila stofnun á þessum forsendum 1967 sem bar nafnið Pritikin Longevity Center. Lögð voru fram svokölluð vísindalega rök fyrir þessu máli sem síðar reyndust ekki standast skoðun. Þar var aðallega um að ræða faraldsfræðilegar rannsóknir Bandaríkjamannsins Ancel Keys á tengslum mataræðis og hjartasjúkdóma (The Seven Countries Study). Niðurstaða hans var sú að mikil neysla mettaðrar fitu og kólesteróls yki hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum. Í framhaldinu kom nefnd, sem stýrt var af bandaríska öldungadeildarþingmanninum og forsetaframbjóðandanum GeorgeMcGovern. Nefndin sendi frá sér leiðbeiningar á árunum 1977 og 1980 um mataræði til bandarísku þjóðarinnar (Dietary Goals for The United States). Þar var lögð áhersla á að draga bæri úr fituneyslu, sérstaklega neyslu mettaðrar fitu og kólesteróls. Þessi hugmyndafræði var gerð að grundvelli lýðheilsumarkmiða Bandaríkjanna og flestra þjóða heims, þar á meðal íslenska heilbrigðiskerfisins. Ráku læknar á Íslandi og um allan heim harðan áróður fyrir framgangi þessarar stefnu áratugum saman. Létu stjórnmálamenn um allan heim einnig draga sig á asnaeyrunum í þessum málum með skelfilegum afleiðingum fyrir lýðheilsu almennings. Í dag viðurkenna flestir, en sumir kannski með semingi, að þessi lýðheilsustefna, sem byggði á fölskum vísindaniðurstöðum, var kolröng. Því hlýtur það að vera fagnaðarefni þegar vísindamenn setja fram rökstudda gagnrýni á viðteknum skoðunum, sem ekki virðast vera skotheldar vísindalegar sannanir fyrir. Það á m.a. við íslensku mýrarnar þar sem Bændablaðið hefur m.a. reynt með litlum árangri að fá svör við ákveðnum spurningum hjá vísindasamfélaginu. Það er kannski fyrst núna að einhver viðbrögð eru að fást við þeim spurningum. Gagnrýnin grein á fullyrðingar um íslensku mýrarnar Grein dr. Þorsteins Guðmundssonar, sem starfað hefur m.a. sem prófessor í jarðvegsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands, og dr. Guðna Þorvaldssonar, prófessors við LbhÍ í jarðrækt, í síðasta Bændablaði um íslensku mýrarnar, hlýtur því að hafa verið kærkomin fyrir vísindasinnað fólk, enda vakti hún mikla athygli. Greinin svarar m.a. að hluta framlögðum spurningum Bændablaðsins sem upphaflega voru lagðar fram af verkfræðingi sem áhuga hefur á þessum málum. Í greininni horfa þeir félagar mjög gagnrýnum augum á fullyrðingar um ágæti þess að moka ofan í framræsluskurði í tilraun til að endurheimta mýrar. Í grein sinni rökstyðja þeir mál sitt nokkuð ítarlega. Báðir þessir menn eru sérmenntaðir í jarðvegsfræðum. Gagnrýni á gagnrýni Dr. Auður Magnúsdóttir, forseti auðlinda- og umhverfisdeildar LbhÍ, og dr. Árni Bragason landgræðslustjóri rituðu grein á vefsíðu Vísis þann 29.1. 2018. Auður er lífefnafræðingur og Árni er plöntuerfðafræðingur. Í greininni gefa þau ekki mikið fyrir greinarskrif dr. Þorsteins og dr. Guðna. Þar er samt ekki að finna neinn rökstuðning fyrir þeim fullyrðingum sem Þorsteinn og Guðni voru að gagnrýna, en þær eru forsenda talna sem notaðar eru af hálfu Íslands í alþjóðlegum samningum um loftslagsmál. Þar segja þau Auður og Árni m.a: „Þeir félagar draga ýmislegt fram varðandi óvissu og skort á rannsóknum á votlendi og endurheimt en efast ekki um að losun á sér stað á fjölmörgum stöðum. Ekkert af því sem þeir draga fram er nýtt eða kemur á óvart enda allt of lítið fé fengist til rannsókna og mælinga á gasjafnvægi á framræstu landi.“ Í greininni segja þau einnig: „Þeir Þorsteinn og Guðni velta fyrir sér hvort ekki sé vænlegra að auka ræktun á framræstu landi til að auka bindingu. Það getur að sjálfsögðu átt við í einhverjum tilvikum þar sem viðkomandi landeigandi á ekki kost á öðru landi. Við viljum og þurfum að ná árangri í loftslagsmálum og teljum því að endurheimta eigi framræst land sem ekki er í notkun og taka til ræktunar lítt gróið og illa farið land eins og fjölmargir bændur eru að gera í samstarfi við Landgræðsluna í verkefnunum Bændur græða landið og í verkefnum Landbótasjóðs. Fráleitt er að halda því fram að endurheimt votlendis hamli möguleikum bænda til túnræktar og annarrar landnýtingar enda er landeigendum frjálst að taka þátt í slíkum aðgerðum. Þar er verið að beita hræðsluáróðri sem á ekki við nein rök að styðjast. Endurheimt votlendis hefur af lítt skiljanlegum ástæðum verið mætt af mikilli andstöðu á Íslandi og ráðamenn hafa ekki enn tekið af skarið og valið endurheimt votlendis til þess að berjast við loftslagsvána. Þar hafa efasemdarmenn borið fyrir sig skort á rannsóknum á endurheimtaraðgerðum á Íslandi og óvissu í bæði tölum um losun og heildarflatarmál framræstra svæða. Eins og í öllum vísindarannsóknum er óvissa í mælingum og þegar um er að ræða líffræðileg kerfi er óvissan alltaf töluverð. Við vitum þó að á Íslandi voru grafnir tæplega 40 þúsund kílómetrar af skurðum á síðustu öld og af þeim hafa 34 þúsund kílómetrar verið kortlagðir. Flatarmál raskaðra votlenda er því augljóslega mjög stórt og hefur verið vel kortlagt. Við vitum líka að framræst votlendi losar mikið af gróðurhúsalofttegundum vegna ítarlega rannsókna síðastliðinna áratuga erlendis og á Íslandi.“ Votlendissjóður fyrir verkefni sem sagt er kosta 5–6 milljarða Athygli vekur að í niðurlagi greinar sinnar vekja þau athygli á sjóðsstofnun áhugafólks um mokstur í skurði og endurheimt votlendis, sem vel á minnst, byggir á hugmyndunum umdeildu og segja: „Landeigendur á Íslandi sem hafa áhuga á því að endurheimta votlendi í sinni eigu geta því núna strax farið af stað og lagt sitt af mörkum. Brýnt er að tryggja fjármagn til þessa og þar þarf ríkið en einnig einkaaðilar að koma að. Hópur áhugafólks hefur unnið að stofnun Votlendissjóðsins síðastliðna mánuði en hann hefur það markmið að tengja saman þá sem vilja leggja sitt af mörkum fjárhagslega í baráttunni gegn loftslagsvánni og eigendur raskaðra votlenda sem vilja endurheimta þeirra fyrri virkni.“ Hart er keyrt á stofnun Votlendissjóðs eins og sjá mátti m.a. í leiðara Fréttablaðsins fyrir skömmu og í umfjöllun Spegilsins hjá RÚV. Þar er m.a. haldið á lofti þeirri opinberu fullyrðingu að yfir 70 prósent af losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi komi frá framræstu votlendi, eða um 11 milljónir tonna af CO2. Þá er sagt að hægt sé að endurheimta 90 þúsund hektara og breyta í votlendi. Það kosti um 60 til 70 þúsund krónur á hektara. Verktakakostnaður er þá áætlaður 5,4 til 6,3 milljarða króna, en ekki er lagt mat á stjórnsýslukostnað í kringum verkefnið. Jón Guðmundsson, lektor við LbhÍ, Ólafur Arnalds, prófessor við LbhÍ, Gunnhildur Eva G. Gunnarsdóttir, rannsóknarmaður hjá LbhÍ, Hlynur Óskarsson, dósent hjá LbhÍ og Sunna Áskelsdóttir gagnrýna líka harðlega samstarfsmenn sína, þá Þorstein og Guðna, í athyglisverðri grein hér í blaðinu á bls. 40 og 41. Í þeirri grein er byrjað í inngangi á því að gera afskaplega lítið úr fræðiþekkingu þeirra félaga og þeirra athugasemdum líkt við það sem þau kalla „afneitunarfræði“. Þau fara síðan yfir grein Þorsteins og Guðna lið fyrir lið. Það vekur þó athygli að lítið er þar minnst á metangas sem er þó veigamikil gastegund sem losnar í mýrum og margfalt áhrifameiri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur. Efasemdir rafmagnsverkfræðings um að moka ofan í skurði Í ljósi þessara skrifa hámenntaðra vísindamanna, sem eru greinilega ekki sammála um meint ágæti þess að moka ofan í skurði, er ekki úr vegi að rifja upp forsendur fyrirspurnar Bændablaðsins sem upphaflega var send til Landbúnaðarháskóla Íslands á síðastliðnu sumri og ekki fengust þá svör við. Þær forsendur eru vangaveltur Ágústs H. Bjarnasonar, rafmagnsverkfræðings hjá Verkís, sem hefur mikið velt þessum málum fyrir sér og skrifað um það greinar. Þar á meðal er grein sem birtist í 5. tbl. blaðsins Heima er bezt 2017. Ágúst og fjölskylda hafa mikinn áhuga á þessum málum og hafa m.a. prófað sig áfram með landbætur og trjáplöntun á um 10 hektara landi skammt frá Geysi í Haukadal. Þá vann Ágúst t.d. á sínum unglingsárum við skógrækt í Haukadal. Hann útlistar sig þó alls ekki sem sérfræðing í málefnum mýra, en spyr bara sem leikmaður eðlilegra spurninga og reynir að rökstyðja sínar vangaveltur. Í greininni í Heima er bezt og á vefsíðu sinni varpaði hann m.a. fram mjög athyglisverðum spurningum sem ráðamenn hljóta að verða að svara áður en lengra er haldið. Það er að segja ef menn vilja yfirhöfuð grundvalla sínar ákvarðanir á vísindalegum rökum. Ágúst segir m.a.: „Oft hefur mér komið til hugar að „endurheimt votlendis“ með því að fylla í skurði sé ekki endilega rétt aðferð til að minnka losun koltvísýrings.“ Vísar hann m.a. til þess að þar sem land hafi verið þurrkað upp sé víða farið að binda kolefni með ræktun trjáa. Á öðrum svæðum sem fengið hafi að vera í friði fyrir beit sé farinn að vaxa upp sjálfsprottinn trjágróður. „Til þess að flýta fyrir að skógur vaxi upp nánast af sjálfdáðum mætti planta fáeinum birkiplöntum hér og þar, jafnvel aðeins 100 stk. í hvern hektara, þ.e. um 10 metrar milli plantnanna. Eftir nokkur ár fara þessi tré að bera fræ og verða frælindir. Sjálfsáðar plöntur fara að skjóta upp kollinum vítt og breitt. Á fáeinum áratugum verður birkiskógurinn þéttur og fallegur. Þetta kostar lítið sem ekkert, eða þrjá bakka af birkiplöntum í hvern hektara.“ Losun metangass stoppar ekki við að moka ofan í skurði Ágúst velti líka upp spurningum sem skipta sennilega mestu máli í þessu samhengi: „Hve lengi losar mýri sem hefur verið þurrkuð CO2? Að því hlýtur að koma að órotnuðu jurtaleifarnar í fyrrum mýrinni rotni og breytist í frjósama gróðurmold. Það tekur ekki mjög langan tíma. Eftir það er losunin ekki meiri en frá venjulegum úthaga og þörfin fyrir að endurheimta votlendið til að minnka losun á CO2 þá engin. Ekki er ólíklegt að losun þurrkuðu mýrarinnar fylgi veldisfalli eins og algengt er í náttúrunni. Losunin væri þá mest í byrjun, en færi hratt minnkandi. Ef til vill er hún orðin óveruleg eftir fáeina áratugi. Að bleyta upp land sem breyst hefur úr mýrarjarðvegi í frjósaman jarðveg hefur því ef til vill ekki nokkurn tilgang. Það hjálpar auðvitað ekkert að stöðva losun sem af náttúrulegum ástæðum er orðin lítil sem engin. Svo má ekki gleyma því að þó að blautar mýrar losi ekki nema takmarkað af CO2, þá losa þær metan. Metan er um 25 sinnum virkara gróðurhúsagas en koltvísýringur, svo Gagnrýnin hugsun hlýtur að vera forsenda vísindalegra niðurstaðna og bakgrunnur pólitískra ákvarðana: Er endurheimt votlendis töfralausn eða er þörf á að skoða málið betur? FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Helmingunartími losunar koltvísýrings úr mýri sem sem þurrkuð hefur verið með skurðgreftri. Mynd / úr grein Ágústs H. Bjarnarsonar verkfræðings. Hér var áður votlendi. Nú er það fallegur sjálfsáður skógur. Mynd / Ágúst H. Bjarnarson

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.