Bændablaðið - 08.02.2018, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018
Blönduós:
Íbúum fjölgar og verktakar hugsa
sér til hreyfings með nýbyggingar
– Það hefur verið afskaplega dauft yfir byggingamarkaði hér á Blönduósi allt frá hruni, segir bæjarstjóri
„Það hefur verið afskaplega
dauft yfir byggingamarkaði hér
á Blönduósi allt frá hruni, líkt
og gildir um marga aðra staði á
landinu. Nú sjáum við merki þess
að breyting verði á, verktakar eru
að hugsa sér til hreyfings og vilja
gjarnan byggja,“ segir Arnar
Þór Sævarsson, bæjarstjóri á
Blönduósi.
Lítið sem ekkert hefur verið
byggt á Blönduósi undanfarin
áratug, en fyrirspurnir hafa borist
bæjarstjórn þar sem óskað er eftir
lóðum, bæði undir íbúðir og eins
iðnaðarstarfsemi. Einkahlutafélagið
Uppbygging hefur óskað eftir
lóð sem afmarkast af Húnabraut
4, austurenda íþróttavallar,
Holtabrautar og Melabrautar, til að
byggja þar 20 íbúða fjölbýlishús
á fimm hæðum. Félagið er í
eigu Engilberts Runólfssonar
byggingaverktaka.
Þá hefur hlutafélagið Húnaborg
á Blönduósi sótt um tvær lóðir
fyrir atvinnu- og geymsluhúsnæði
að Ennisbraut 5 og 7 á Blönduósi.
Félagið hefur einnig sótt um lóðir
fyrir þriggja íbúða raðhúsi að
Sunnubraut 13 til 17 og lóð fyrir
fjögurra íbúða raðhúsi að Smárabraut
19 til 25. Tekið var jákvætt í
umsóknirnar á fundi skipulags-,
umhverfis- og umferðarnefndar
Blönduóss á dögunum, en ráðið
mælti með því að lóðunum yrði
úthlutað til félagsins.
Í umsóknum um atvinnulóðir er
gert ráð fyrir að hvort hús um sig
verði 375 fermetra stálgrindahús
á steyptum sökklum, klætt með
samlokueiningum og þeim skipt upp
í nokkrar einingar, frá 75 fermetrum
að stærð. Hvað íbúðarhúsin varðar
er gert ráð fyrir þremur 100 fermetra
íbúðum með innbyggðum bílskúrum,
lágreistum timbureiningahúsum
á staðsteyptum grunni. Stefnt er
að því að hefja framkvæmdir á
vormánuðum og að verkið taki
um eitt ár frá því þær hefjast. Við
Smárabraut er einnig gert ráð fyrir
lágreistum timbureiningahúsum á
staðsteyptum grunni. Fyrirhugað er
að hefja framkvæmdir næsta haust,
í október og ljúka verkinu á einu ári.
„Íbúum á Blönduósi hefur
fjölgað undanfarið, staðan er sú að
hvert einasta rými er nýtt sem til
er, það hefur því skapast mikil þörf
hér í bænum fyrir nýtt húsnæði.
Eitthvað er um að húsnæði sé notað
til útleigu fyrir ferðamenn, það hefur
í för með sér að leiguverð hefur
hækkað og það virkar sem hvati
fyrir byggingaverktaka að bæta
við sig húsnæði. Hjá því verður
reyndar ekki horft að staðan er
auðvitað sú hér og víða annars
staðar í hinum dreifðu byggðum
að byggingakostnaður er um það
bil helmingi hærri en markaðsverð
eignanna. Það er bara staða sem
við verðum að horfast í augu við,“
segir Arnar Þór.
„Á heildina litið er bjartsýni
ríkjandi hér á svæðinu, hér hefur
íbúum fjölgað og það er vaxandi
atvinna, t.d. í þjónustugeiranum
og í ferðaþjónustu. Okkur vantar
mannskap en til að fá fólk til okkar
þarf húsnæði fyrir það að vera til
staðar. Við eigum lausar lóðir og
fyrir liggur að hefja vinnu við að
skipuleggja ný svæði,“ segir hann.
/MÞÞ
Blönduós. Myndir / HKr.
Verktakar hafa sótt um lóðir fyrir 20 íbúða blokk, raðhús og atvinnuhúsnæði.
Arnar Þór Sævarsson.
Skútustaðahreppur:
Nýjar hugmyndir í fráveitumálum
Nýjar hugmyndir um lausn á
fráveitumálum í Mývatnssveit,
sem felst í söfnun svart vatns,
frárennslis úr klósettum í
lokaðan tank og endurnýtingu
næringarefna til uppgræðslu á
Hóla sandi, hafa verið kynntar
umhverfis- og auðlindaráðherra
og Umhverfisstofnun.
Ef af breyttum áformum verður,
yrði þetta talsvert tryggari og
hagkvæmari lausn en hreinsistöðvar
og sjálfbærari á allan hátt, með
nýtingu næringarefna til uppgræðslu
í nágrenninu.
Áfram er unnið að þróun
þessara lausna í samvinnu við
hagsmunaaðila. Sveitarstjórn
Skútustaðahrepps hefur samþykkt
að umbótaáætlun sveitarfélagsins í
fráveitumálum verði endurskoðuð í
samvinnu við hagsmunaaðila, með
það fyrir augum að útfæra umræddar
hugmyndir og skila inn nýrri áætlun
til heilbrigðiseftirlitsins 1. mars
næstkomandi. /MÞÞ
Umsókn um orlofsdvöl
Undirrituð/Undirritaður sækir hér með um:
Umsóknina skal senda fyrir 15. apríl nk. á
netfangið ho bondi.is
eða á póstfang Bændasamtaka Íslands:
Bændahöllin v/Hagatorg,
107 Reykjavík, merkt Orlofsdvöl sumarið 201
Sumarið 201
Nafn umsækjanda Kennitala
Heimilisfang Símanúmer
Undirskrift félaga og dagsetning
Póstnúmer og staður
Hefur þú áður fengið úthlutað orlofsdvöl í
sumarhúsi hjá Bændasamtökunum?
Já Nei
Orlofsdvöl að Hólum - Tímabilið:
Orlofsdvöl á Flúðum - Tímabilið:
Hér að neðan er að finna umsóknareyðublað um orlofsdvöl í húsunum að Hólum í
Hjaltadal og á Flúðum, Hrunamannahreppi sumarið 2018. Það gildir fyrir
félagsmenn Bændasamtaka Íslands. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 15.
apríl 2018.