Bændablaðið - 08.02.2018, Page 41

Bændablaðið - 08.02.2018, Page 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018 Fjaðrárgljúfur í Skaftárhreppi er svæði á náttúruminjaskrá og hefur landvörður á vegum Umhverfisstofnunar sinnt þar landvörslu frá því í lok maí 2017 fram til áramóta. Ásamt Fjaðrárgljúfri var landvörður með eftirlit með fimm öðrum náttúruverndarsvæðum í sveitar- félögunum Skaftárhreppi og Hornafirði. Fjaðrárgljúfur er um þessar mundir vinsælasti viðkomustaður ferðamanna í Skaftárhreppi. Sveitarfélagið óskaði eftir því á síðastliðnu ári að landvarsla yrði aukin á svæðinu vegna ágangs ferðamanna þar sem svæðið lætur mikið á sjá en einnig til að auka öryggi gesta, sérstaklega yfir vetrartímann. Dr. Rögnvaldur Ólafsson setti upp teljara við Fjaðrárgljúfur árið 2015. Allt árið 2017 komu samkvæmt teljaranum 282.423 gestir í Fjaðrárgljúfur, það er 82% fjölgun frá árinu 2016 þegar 154.948 gestir komu í gljúfrið, samkvæmt upplýsingum frá dr. Rögnvaldi Ólafssyni. Í desember síðastliðnum komu alls 5.465 gestir í gljúfrið, en í sama mánuði árið 2016 voru þeir 3.942, aukningin nemur 39% á milli ára. Meiri þjónusta á vegi að gljúfrinu Vegagerðin hefur nú aukið þjónustustig á veginum að Fjaðrárgljúfri svo gera má ráð fyrir enn meiri umferð um svæðið í vetur af þeim sökum. Landvörður hefur undanfarið verið í daglegu eftirliti. Helstu verkefni hafa verið að leiðbeina fólki um svæðið, veita upplýsingar og vara fólk við hættum, eins og hálku á göngustígum, sem voru oftar en ekki ófærir nema fyrir þá sem voru á mannbroddum. Landvörður hefur einnig reglulega verið í sambandi við Vegagerðina vegna hálku og ófærðar á veginum að Fjaðrárgljúfri þegar ferðamenn hafa lent í vandræðum. Þá var landvörður daglega í sambandi við starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs sem reka gestastofu á Kirkjubæjarklaustri þar sem ferðamenn fá m.a. upplýsingar um nærliggjandi náttúruverndarsvæði. Mikil þörf á landvörslu Þörfin á landvörslu í Fjaðrárgljúfri, sem og öðrum náttúruverndarsvæðum um allt landið, er mjög mikil á þessum árstíma. Landvarsla að vetri er meira krefjandi en yfir sumartímann sökum veðráttu. Þörfin fyrir upplýsingar, fræðslu og leiðsögn á náttúruverndarsvæðum er ekki síður mikilvæg að vetri en sumri og þá sérstaklega er varðar öryggi ferðamanna. Þá er samstarf stofnana, sveitarfélaga og viðbragðsaðila á fjölförnum ferðamannastöðum um land allt mjög mikilvægt þegar allra veðra er von, segir í frétt á vef Umhverfisstofnunar þar sem þetta kemur fram. /MÞÞ er algengast að lengra sé milli skurða. Þetta er auðvelt að skoða á skurðakorti LbhÍ sem er aðgengilegt á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands http://www.lbhi.is/vefsja. Sú ályktun þeirra að áhrif framræslu á gasbúskap nái aðeins 25 m frá skurði er ekki byggð á neinum gögnum og ekki í samræmi við þær úttektir sem gerðar hafa verið4. Að nota það sem viðmið til að reikna flatarmál framræsts lands felur í sér verulegt vanmat á umfangi framræstra svæða og það er hæpið að telja slíka „ágiskun“ réttmætari en töluleg gögn sem byggja á mælingum. Mat á stærð framræstra svæða er í núverandi skilum til loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna með mismunandi hætti eftir því hver landnotkunin er. Innan túna er matið byggt á úttekt Guðna Þorvaldssonar 1991–19935. Flatarmál framræstra svæða í úthaga er metið út frá fyrirliggjandi skurðakorti með landfræðilegri gagnavinnslu (GIS vinnslu) 6. Unnið er að heildarendurskoðun á skurðakorti og flatarmáli framræsts lands utan túna. Framræst land innan skóg- og kjarrlendis er metið á grundvelli Skógarúttektar skógræktar ríkisins. 9. Af greininni má skilja að höfundar hafi áhyggjur af því að með því að ráðast í aðgerðir til að draga úr losun frá framræstum votlendum verði sneitt að möguleikum til ræktunar. Aðeins lítill hluti af framræstu landi er í dag nýttur til ræktunar. Umræðan um endurheimt votlenda snýst ekki um það að bleyta upp í landi sem er notað til ræktunar, af nógu öðru er að taka. Hins vegar ætti það að vera sjálfsagt mál þegar nýtt land er tekið til ræktunar að hugað verði að umhverfisáhrifum þeirra framkvæmda eins og annarra. Að lokum: Umtalsverðar innlendar rannsóknir styðja við alþjóðlegar niðurstöður sem sýna mikla losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstum votlendum. Endurheimt votlendis er ekki ógnun við landbúnað í landinu. Við tökum undir þau sjónarmið sem koma fram í grein Guðna og Þorsteins að auka þurfi við rannsóknir á kolefnisbúskap votlendis á Íslandi, losun þeirra á gróðurhúsalofttegundum og á árangri endurheimtar votlendis. Um leið og fjármagni er veitt til endurheimtar er sjálfsagt að gera ráð fyrir rannsóknum sem tengjast málaflokknum. Þessi staða kom einmitt upp fyrir nálega 20 árum þegar ákveðið var að binda kolefni með landgræðslu og skógrækt í tengslum við loftslagsskuldbindingar landsins. Og það gekk eftir, öllum til heilla. Vonandi verður svo nú. Heimildir 1. Þorsteinn Guðmundsson og Guðni Þorvaldsson. Hugleiðingar um losun og bindingu kolefnis í votlendum (2018). Bændablaðið 2.tölublað 2018 38-39 2. Snorri Þorsteinsson (2011). Tengsl jarðvegsöndunar við magn kolefnis og niturs í jarðvegi. Umhverfisdeild, Landbúnaðarháskóli Íslands. BS: 27. 3. IPCC (2014). 2013 Supplement to the 2006 IPCC Guidelines for National Greenhouse Gas Inventories: Wetlands. T. Hiraishi, Krug, T., Tanabe, K., Srivastava, N., Baasansuren, J., Fukuda, M. and Troxler, T.G., IPCC, Switzerland. 4. Inga Vala Gísladóttir. (2010). Athugun á hentugleika WIV votlendisvístölunnar við íslenskar aðstæður. Umhverfisdeild, Landbúnaðar- háskóli Íslands. B.Sc: 36. 5. Guðni Þorvaldsson (1994). Gróðurfar og nýting túna. Fjölrit Rala: 32 6. Hellsing, V. Ú. L., et al. (2017). National Inventory Report 2017, Emissions of greenhouse gases in Iceland from 1990 to 2015; Submitted under the United Nations Framework Convention on Climate Change and the Kyoto Protocol, UST: 299. Höfundar: Jón Guðmundsson, Ólafur Arnalds, Gunnhildur Eva G. Gunnarsdóttir, Hlynur Óskarsson, Sunna Áskelsdóttir www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 VARAHLUTIR Í DRÁTTARVÉLAR John Deere New Holland Steyr Case IH Fiat EIGUM Á LAGER OG GETUM ÚTVEGAÐ VARAHLUTI Í FLESTAR TEGUNDIR DRÁTTARVÉLA Útvegum einnig varahluti í gömlu dráttarvélarnar KH Kuldagallar KH Vinnuföt Nethyl 2a 110 Reykjavík Sími: 577 1000 info@khvinnufot.is www.khvinnufot.is Nýr fatnaður frá KH Vinnufötum ehf, vattfóðraður galli í sýnileikastaðli ISO 20471:2013. Efnið er öndurnarefni með 10.000 mm vatnsvörn og öndunin er 5.000 gr/m²/sólahring og veitir mjög góða vörn gegn vindkælingu. Flott vara á góðu verði. Litir: Gulur/svartur Stærðir: S-4XL Verð: kr. 23.436,- Fjaðrárgljúfur nýtur vinsælda: Ferðamönnum hefur fjölgað um 82% milli ára Fjaðrárgljúfur er um þessar mundir vinsælasti viðkomustaður ferðamanna í Skaftárhreppi. Landvarsla að vetri er meira krefjandi Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 100% vatnsheldir og fóðraðir hanskar Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is Hjá Dynjanda færðu allt fyrir öryggið, svo sem hjálma, gleraugu, endurskins- og hlífðarfatnað. Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð. Slitsterkir pólýúreþanhanskar sem eru algjörlega vatnsheldir. Teygjanlegt spandex á handarbaki og flísfóðraðir. Hanskarnir henta því vel fyrir köld og blaut vinnuskilyrði. Stærðir: 9, 10 og 11. Verð: 1.798 kr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.