Bændablaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 43

Bændablaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018 www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 RÚÐUR Í MIKLU ÚRVALI John Deere Zetor Case IH McCormick Steyr Claas Ford Fiat New Holland Deutz-Fahr Massey Ferguson EIGUM TIL Á LAGER RÚÐUR Í FLEST ALLAR GERÐIR DRÁTTARVÉLA – FRÁBÆR VERÐ SÉRPÖNTUM RÚÐUR Í ALLAR GERÐIR DRÁTTARVÉLA MEÐ SKÖMMUM FYRIRVARA mjaltaþjónabú ársins var með 121.063 frumur/ml að meðaltali. Á hinum enda skalans eru hins vegar heldur mörg bú og voru t.d. 39 bú með frumutölu sem var að meðaltali hærri en 275 þúsund frumur/ml og 18 bú voru yfir 300 þúsund frumum/ml. Hér má gera miklu betur og hafa erlendar rannsóknir sýnt fram á beint samhengi á milli frumutölu yfir 150 þúsund og afkomu. Að því gefnu að þetta gildi einnig hér á landi þá geta mörg mjaltaþjónabú aukið rekstarafkomuna með bættu júgurheilbrigði og þessum árangri er hægt að ná óháð því hvaða tegund mjaltaþjóns er notuð. 27 bú með meðaltal líftölu lægri en 20 þúsund Það hefur oft loðað við mjaltaþjónatæknina að líftala mjólkurinnar eigi það til að vera í hærri kantinum og var margfeldismeðaltal allra mjaltaþjónabúa sem lögðu inn mjólk allt síðasta ár 32.961/ml. Sé horft til einstakra búa þá voru 73 mjaltaþjónabú með lægri meðal líftölu en 30.000/ml og af þeim voru svo 27 með lægri meðal líftölu en 20.000/ml og 11 mjaltaþjónabú voru með lægri meðal líftölu en 15.000/ml. Lægsta meðal líftala á mjaltaþjónabúi árið 2017 var 11.285/ml. Framangreindar niðurstöður sýna að það er vel hægt að ná góðum gæðum með mjaltaþjóni og má t.d. geta þess að meðal þeirra búa sem voru að jafnaði með lægri líftölu en 20.000/ ml á síðasta ári þá voru þar á meðal allar gerðir mjaltaþjóna sem voru í notkun allt árið 2017, þ.e. bæði GEA, Lely og DeLaval og þá voru á meðal þessara búa fimm bú með 2 eða fleiri mjaltaþjóna. Á hinn bóginn eru alltof mörg mjaltaþjónabú sem virðast eiga í mesta basli með líftöluna og árið 2017 voru 21 bú með hærri líftölu að jafnaði en 50.000/ml og þar af voru 6 þessara búa með 2 eða fleiri mjaltaþjóna. Niðurstöður síðasta árs sýna að mikill breytileiki er á milli einstakra búa sem þó eru að nota afar áþekka tækni og bendir það til þess að stór hluti af þessum mun skýrist af bústjórnarlegum og mannlegum þáttum, þ.e. umgengni og almennu reglubundnu viðhaldi. Athyglisvert er að skoða framleiðslumagnið á bak við hæstu og lægstu meðal líftölur síðasta árs frá mjaltaþjónabúum. 15 bestu búin lögðu inn 6,4 milljónir lítra sem komu frá 16 mjaltaþjónum og skilar því hver mjaltaþjónn 376 þúsund lítrum að jafnaði. Mjaltaþjónabúin 15, sem skiluðu slökustu mjólkinni árið 2017, lögðu hins vegar inn 7,3 milljónir lítra sem komu frá 23 mjaltaþjónum og skilaði hver mjaltaþjónn á þessum búum því 319 þúsund lítrum að jafnaði sem er 15% minni framleiðsla á hvern mjaltaþjón á búunum á þessum enda skalans en á eftri hluta hans. Samantekt þessi byggir á upplýsingum frá Auðhumlu og Mjólkurafurðastöð KS auk þess sem notuð voru gögn sem aflað var í tengslum við gerð skýrslunnar Þróun fjósgerða og mjaltatækni 2. Þessi kálfur fæddist í byrjun desember 2017 og er hér nýfæddur með móður sinni á Hóli í Svarfaðardal. Mynd /HKr. Bretlandseyjar: Mikið af sýklalyfjaónæmum bakteríum í kjúklingakjöti í stórmörkuðum Samkvæmt Matvælastofnun Breta hefur sýking af völdum skaðlegra kamfýlóbakter-baktería margfaldast í kjúklingum á Bretlandseyjum. Sýnataka úr kjúklingakjöti í stórmörkuðum í landinu sýna metfjölda af sýklalyfjaónæmum bakteríum. Sumar þessara baktería sýna ónæmi við sterkustu sýklalyfjum á markaði samkvæmt nýjum rannsóknum. Málið er talið mjög alvarlegt þar sem sýklalyfjaónæmar bakteríur geta hæglega smitast í fólk og gert sýklalyfjameðferð ómögulega. Mun meiri sýking en fyrir tíu árum Sýni bresku Matvæla stofn un- arinnar voru úr stóru úrtaki af heilum og ferskum kjúklingum í fjölda stórmarkaða og minni matvöruverslana víðs vegar um Bretlandseyjar. Útkoma 400 sýna sýnir að mun fleiri kjúklingar voru sýktir af sýklalyfjaónæmum kamfýlóbakter-baktería núna en fyrir tíu árum. Rannsóknir á sýnunum sýndu að í mörgum tilfellum fundust leifar af sýklalyfinu í kjúklingakjöti í verslunum. Sýklalyfjanotkun ýtir undir ónæmi Niðurstöður mælinganna eru sagðar vera vísbending um aukna notkun sýklalyfja í kjúklingaeldi á Bretlandseyjum og að notkunin ýti undir sýklalyfjaónæmi baktería og aukinnar útbreiðslu þeirra. Kamfýlóbakter-bakteríur geta valdið alvarlegri matareitrun og jafnvel dauða í alvarlegustu tilfellum og eru sýklalyfjaónæm afbrigði þeim mun erfiðari en þau sem eru það ekki. Almenningur á Bretlandseyjum hefur í framhaldi rannsóknanna verið beðinn að gæta fyllsta hreinlætis við meðhöndlun matvæla og elda kjúklingakjöt vel þar sem rétt matreiðsla drepur bakteríurnar. Samkvæmt yfirlýsingu frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin er sýklalyfjaónæmi ein stærsta ógn við lýðheilsu jarðarbúa í dag. /VH Samkvæmt sýnatöku bresku Matvælastofnunarinnar er mikið um að hrátt kjúklingakjöt í stórmörkuðum í landinu sé smitað að sýklalyfjaónæmum UTAN ÚR HEIMI ALLAR GERÐIR YLEININGA FÁST HJÁ HÝSI ÞAK OG VEGGEINIGAR MEÐ STEINULL EÐA PIR KJARNA STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI FYRIR ÞAK OG VEGGI Hýsi-Merkúr hf. | Lambhagavegur 6, 113 Reykjavík Sími 534 6050 | hysi@hysi.is | www.hysi.is VIÐ FINNUM LAUSNINA MEÐ ÞÉR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.