Bændablaðið - 08.02.2018, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018
Uppgjöri á skýrslum fjárræktar-
félaganna fyrir árið 2017 er að
mestu lokið en þetta er fyrr en
verið hefur og munar þar helst
um að skýrsluhald er forsenda
allra greiðslna hjá þeim sem
njóta stuðnings á grunni
búvörusamninga. Þegar þetta er
ritað í byrjun febrúar er þó enn
eftir að ganga frá uppgjöri fyrir
um 3.500 ær sem hafa skráða
burðarfærslu vorið 2017.
Reiknaðar afurðir eru 0,6 kg
minni á hverja kind en árið 2016.
Munar þar eflaust mest um að
gróður féll snemma og haustbeitin
því ekki eins kraftmikil og árið á
undan.
Alls skiluðu 1.785 aðilar
skýrslum um 357.576 ær (347.268
– 2016). Veturgamlar ær í
skýrsluhaldinu voru 73.380 (74.799
– 2016). Fjöldi kinda í skýrsluhaldi
milli ára eykst því um tæpar 9.000
ær. Til viðbótar þessum tölum eru
svo tæplega 1.500 forystuær skráðar
í Fjárvís en þær eru undanskildar
formlegu afurðauppgjöri. Séu
þessar tölur bornar saman við
upplýsingar úr forðagæsluskýrslum
eru um 95% fjár á landinu skráð í
afurðaskýrsluhald.
Afurðir árið 2017
Frjósemi var svipuð og
undangengin ár, 1,83 fædd lömb
á hverja kind. Þetta er lítilsháttar
aukning sem liggur í auknu hlutfalli
fleirlembna en 7,7% áa áttu fleiri
en 3 fædd lömb síðasta vor. Flest
fædd lömb eru í Þingeyjarsýslum
eða 1,90 fædd lömb að meðaltali
en hæst hlutfall fleirlembdra
kinda er í Vestur-Húnavatnssýslu
(10,5%). Sífellt fleiri stærri bú ná
nú frjósemi uppá 1,90 fædd lömb
eða fleiri, vorið 2017 voru ríflega
129.000 ær á búum sem höfðu þessa
meðalfrjósemi en voru 112.000,
vorið 2016 og 100.000, vorið 2015.
Fjöldi lamba til nytja er 1,66 lömb
á hverja kind og er sami fjöldi og
árið 2016, hefur sú tala verið svipuð
síðustu ár, heldur lægri 2015 vegna
árferðis þá um vorið.
Afurðir eftir fullorðnar ær voru
27,7 kíló eftir hverja kind árið 2017
sem er 0,6 kílóum minna árið á undan
sem var metár (28,3 kg – 2016) en
heldur meira en meðalafurðir síðustu
fimm ára sem reiknast 27,5 kíló.
Á 1. mynd má sjá afurðir síðustu
tveggja ára (2017 rauð súla, 2016
græn súla) sýndar eftir sýslum ásamt
meðaltali áranna 2013-2017 (blá
súla) í viðkomandi héraði.
Mestu afurðir í einu héraði árið
2017 voru í Strandasýslu en þær
reiknast 30,5 kíló sem er heldur
hærra en meðaltal síðustu fimm
ára. Næstir Strandamönnum koma
Vestur-Húnvetningar með 29,8
kíló eftir hverja kind. Sé horft á
meðalafurðir síðustu fimm ára eru
aðeins fjórar sýslur sem ná meiri
en 29 kílóum eftir hverja kind
en auk Strandamanna og Vestur-
Húnvetninga eru það Eyfirðingar
og S-Þingeyingar sem skipa sér í
þann flokk.
Afurðahæstu búin
Afurðahæsta bú landsins árið
2017 er bú Eiríks Jónssonar í
Gýgjarhólskoti, Biskupstungum
með 48,1 kíló eftir hverja kind þar
sem fleiri en 100 ær eru á skýrslum.
Þær afurðir munu vera Íslandsmet í
afurðum frá upphafi skýrsluhalds.
Næst á listanum er bú Jóns og
Hrefnu á Hóli í Sæmundarhlíð með
40,4 kg eftir hverja kind. Munurinn
á þessu búum liggur fyrst og fremst
í framleiðslukerfinu. Fædd lömb
á hverja kind eru heldur fleiri hjá
Eiríki en lömbunum slátrað að
jafnaði 169 daga gömlum við 25
kílóa fallþunga. Hjá Jóni og Hrefnu
er lömbunum slátrað að jafnaði
135 daga gömlum við 20,2 kílóa
fallþunga. Vaxtarhraði lambanna er
ívið meiri á Hóli og afurðamunurinn
liggur fyrst og fremst í aldri
lambanna.
Í 1. töflu er listi yfir öll þau bú
sem hafa 36 kg eða meira eftir
hverja kind árið 2017 og fleiri en
100 ær í skýrsluhaldi.
Úrvalsbú
Á heimasíðu RML má finna lista
yfir Úrvalsbú en þau eiga það
sammerkt að ná góðum árangri fyrir
nokkra skýrsluhaldsþætti. Skilyrði
fyrir þeim lista eru: Bú með fleiri en
100 skýrslufærðar ær þar sem fædd
lömb eftir fullorðnar ær eru fleiri en
1,9, fædd lömb eftir veturgamlar ær
eru fleiri en 0,9, reiknað dilkakjöt
eftir fullorðna kind er landsmeðaltal
eða meira, gerðarmat sláturlamba
er yfir 9,2, fitumat sláturlamba á
bilinu 5,4-7,6, hlutfall gerðar og
fitu yfir 1,3.
Tæplega 200 bú ná þessum
skilyrðum fyrir árið 2017 og hafa
aldrei verið fleiri en þetta er fimmta
árið sem þessi listi er útbúinn.
Gæðamatið
Í skýrsluhaldinu eru upplýsingar um
tæplega 542.000 sláturlömb haustið
2017. Meðalfallþungi þeirra var 16,8
kíló litlu minni en árið á undan (17,0
kíló - 2016) og meðaltal síðustu
fimm ára er 16,5 kíló. Meðaltal
einkunnar fyrir holdfyllingu er
9,07 árið 2017 (9,05 - 2016), fimm
ára meðaltal 8,86 og meðaltal
einkunnar fyrir fitumat er 6,44
árið 2017 (6,71 - 2016), fimm ára
meðaltal 6,52. Oft er þetta skoðað
sem hlutfallstala holdfyllingar og
fitu, sú tala var 1,41 haustið 2017.
Hagstæðasta hlutfallið má finna í
Suður-Þingeyjarsýslu (1,50). Af
búum sem höfðu holdfyllingarmat
yfir 9,5 árið 2017 er þetta hlutfall
hagstæðast hjá Eyþóri Péturssyni,
Baldursheimi 3, Mývatnssveit með
hlutfallstölu 2,00. Í 2. töflu má finna
öll þau bú sem höfðu gerðarmat
11,0 eða hærra árið 2017 og fleiri
en 100 sláturlömb.
Erfiðara er að bera saman árangur
í fitumati vegna þess sambands sem
er á milli fallþunga og fitumats.
Stundum er þessi samanburður
gerður sem hlutfall milli fallþunga
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
ráðunautur
í sauðfjárrækt
eyjolfur@rml.is
24,0
25,0
26,0
27,0
28,0
29,0
30,0
31,0
32,0
Árið 2017 Árið 2016 Meðaltal 2013-2017
Helstu niðurstöðutölur sauðfjárskýrsluhaldsins árið 2017:
Frá 1996 hefur framleiðslugeta
hverrar kindar aukist um 21,3%
Eiríkur Jónsson
Jón og Hrefna
Elín Anna og Ari Guðmundur
Gunnar og Gréta
Félagsbúið Lundur
Guðbrandur og Lilja
Sigvaldi og Björg María
Sveinn Guðmundsson
Gunnar og Doris
Inga Ragnheiður Magnúsdóttir
Elín Heiða Valsdóttir
Ragnar og Sigríður
Eyþór og Þórdís
Sigurfinnur Bjarkarsson
Björn og Inga
Jón og Erna
Jökull Helgason
Ágúst Ingi Ketilsson
Félagsbúið
Eiríkur Jónsson
Þórhallur Bragason
Kjartan Sveinsson
Dagbjartur Bogi Ingimundarson
Guðrún Marinósdóttir
Elín Anna og Ari Guðmundur
Steinþór Guðmundsson
Jón og Hrefna
Urðarbúið
Guðbrandur og Lilja
Björn og Badda
Sveinbjörn Þór Sigurðsson
Magnús G Guðmundsson
Þráinn Ómar Sigtryggsson
Aðalsteinn Guðmundsson
Þorsteinn Axelsson
Olga Marta Einarsdóttir
Valur Guðmundsson
Ægir Sigurgeirsson
Dalsmynni sf
Tafla 1
Tafla 2
Tafla 3