Bændablaðið - 08.02.2018, Side 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 8. febrúar 2018
Startup Tourism er svokallaður
viðskiptahraðall og er ætlaður
sprotafyrirtækjum í ferðaþjónustu
á Íslandi. Á hverju ári eru tíu
aðilar valdir til þátttöku og
þeim gert fært að þróa áfram
viðskiptahugmyndir sínar. Um
miðjan janúar síðastliðinn var
valið inn í hraðalinn í þriðja sinn
og voru bændur meðal þeirra
útvöldu.
Meðal þeirra aðila sem fara
inn í hraðalinn er lífrænt vottaða
býlið Karlsstaðir í Berufirði, sem
framleiðir vörur undir merkjum
Havarí, og Kúabúið Garður í
Eyjafirði, þar sem Kaffi kú er rekið.
Sækir Havarí um undir yfirskriftinni
Gisting og viðburðir á lífrænu býli
í Berufirði, en Kaffi kú leggur upp
með Ferðaþjónustu og upplifun í
Eyjafjarðarsveit.
Hvatt til nýsköpunar í
ferðaþjónustu
Um tíu vikna verkefni er að
ræða sem sniðinn er að þörfum
nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Markmiðið er að hvetja til
nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu,
styrkja stoðir nýrra fyrirtækja,
fjölga afþreyingarmöguleikum og
stuðla að dreifingu ferðamanna um
landið, allan ársins hring. Bakhjarlar
verkefnisins eru Isavia, Íslandsbanki,
Bláa Lónið og Vodafone. Icelandic
Startups sér um framkvæmd á
verkefninu í samstarfi við Íslenska
ferðaklasann.
Bárust 113 umsóknir í
viðskiptahraðalinn að þessu sinni,
en það er 20 prósenta aukning á
milli ára. Umsóknarfrestur rann
út þann 11. desember en opnað
var fyrir umsóknir 15. september.
Af þeim hópi sem sótti um voru
25 umsækjendur teknir í viðtöl og
síðan tíu valdir til þátttöku úr þeim
hópi. Lokadagur hraðalsins er svo
23. mars næstkomandi, en þá kynna
aðilarnir viðskiptatækifæri sín fyrir
fullum sal gesta.
Góð aðstaða og aðgengi að
sérfræðingum
Viðskiptahraðallinn verður til húsa í
nýju húsnæði Íslenska ferðaklasans
að Fiskislóð 10 þar sem þátttakendur
fá aðgang að fullbúnu skrifstofurými
og aðgang að fjölda sérfræðinga.
Þátttakendur í Startup Tourism
árið 2018 eru eftirtaldir:
Arctic Surfers - Sérhæfð
ferðaþjónusta fyrir brim-, róðra- og
snjóbrettaiðkendur í ævintýraleit.
Havarí - Gisting og viðburðir á
lífrænu býli í Berufirði.
Igloo Camp - Einstök tjaldhótel
í stórbrotinni náttúru.
Kaffi Kú og The Secret Circle
- Ferðaþjónusta og upplifun í
Eyjafjarðarsveit.
Propose Ice land -
Viðburðaþjónusta fyrir ferðamenn
á biðilsbuxum.
Pure Magic - Leikhúsupplifun
byggð á íslenskum sagnaarfi.
basicRM - Sjálfvirkni í
verðlagningu fyrir ferðaþjónustu.
Stórsaga - Víkingaheimur í
Mosfellsdal.
Under the Turf - Þjóðleg upplifun
í gömlum torfbæ í Borgarnesi.
When in Iceland - Veflausn
sem tengir erlenda ferðamenn við
einstaklinga sem vilja bjóða upp á
afþreyingartengda ferðaþjónustu.
Mt. Karlsstaðir í Berufirði. /smh
REYKJAVÍK
414-0000
www.VBL.is
AKUREYRI
464-8600
Deutz-Fahr MP 235
Árgerð: 2007
Notkun: 24.000 rúllur
Verð kr. 2.600.000 án vsk.
Lely Nautilus
mjólkurtankur
12.000 lítra
Árgerð: 2008
Stök kælivél
Uppl. 896-2866 - Sverrir
Verð kr. 2.900.000 án vsk.
Kverneland
Pökkunarvél
Árgerð: 2000
Góð vél
Verð kr. 450.000 án vsk.
Samaz sláttuvél KDT 340
Árgerð: 2013
Vinnslubreidd: 3,4 m
Reimdrifin vél. Létt og
þægileg. 825 kg.
Útlit mjög gott !
Verð kr. 450.000 án vsk.
414-0000 464-8600
Avant 635 með húsi
Árgerð: 2014
Góð vél með skotbómu.
Notkun: 2600 vst.
Verð kr. 2.950.000 án vsk.
Lely 360M
Árgerð: 2015
Miðuhengd vél. Sem ný !
Lítil notkun
Verð kr. 1.190.000 án vsk.
Scheffer 2024 SLT
Árgerð: 2016
Vél með skóflu og greip.
Notkun: 46 vinnust.
Aðeins 110cm á breidd.
Vélin er sem ný !
Verð kr. 2.140.000 án vsk.
Varahlutir og viðgerðarþjónusta fyrir JCB traktorsgröfur
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
Arentsstál leitar að starfsmönnum
á verkstæði í bæði inni- og útivinnu.
Um er að ræða framtíðarstarf og er vinnutími frá 8.00–16.15.
Hæfniskröfur:
• Viðkomandi þarf að hafa sveinspróf/menntun eða mikla
reynslu af störfum tengdum járn- og rennismíði.
• Stundvísi.
• Sjálfstæð vinnubrögð, framtakssemi og jákvæðni.
• Góða þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Lyftararéttindi eða önnur vinnuvélaréttindi eru kostur.
Upplýsingar eru gefnar í síma 587 5650 eða arentsstal@arentsstal.is.
Magnús og Gauti
Bændur valdir til þátttöku
í Startup Tourism
– Viðskiptahraðall í ferðaþjónustu
Markaðsskrifstofa Vesturlands:
Bæta þarf uppbyggingu og gæði innviða
Niðurstöður opinna funda
vegna áfangastaðaáætlunar á
Vesturlandi, sem haldnir voru í
nóvember síðastliðnum gefa til
kynna að fólk sé almennt mjög
ánægt með þá framþróun sem
orðið hefur undanfarin ár í
ferðaþjónustu á Vesturlandi, bæði
varðandi fjölgun ferðamanna
og aukið framboð á gistingu,
afþreyingu og veitingum.
Skýrt kom hins vegar fram að
bæta þyrfti uppbyggingu og gæði
innviða og grunngerðar sem lýtur
að aðgengi, upplýsingum, öryggi og
upplifun fólks, sem og þolmörkum
náttúru og samfélags. Niðurstöður
fundanna voru notaðar til að vinna
grunn að framtíðarsýn ferðamála á
Vesturlandi. Þetta kemur fram á vef
Ferðamálastofu.
Innviðir efst á baugi
Á fundunum sköpuðust miklar
umræður um innviði. Í því
samhengi var sérstaklega talað
um umferð, vegi og útivistarstíga,
fjarskiptasamband og raforkuöryggi,
merkingar og upplýsingagjöf,
almenningssamgöngur, vetrar-
þjónustu vega og einbreiðar brýr,
löggæslu og heilbrigðisþjónustu,
almennt þjónustuframboð,
verðlagningu, gjaldtöku og gestrisni.
Einnig var mikið rætt um dreifingu
ferðamanna um landið, áherslur í
markaðssetningu og mismunandi
aðstæður og aðstöðu á milli staða
og svæða.
Jafnframt var kallað eftir samtali
á milli ferðaþjónustugreinarinnar og
ráðamanna varðandi lagaumgjörð,
eftirlit, stefnumótun og stýringu
ferðaþjónustunnar. Fundarmenn
kölluðu einnig eftir meira
samráði milli markaðsgeirans,
f e rðask ipu legg jenda og
ferðaþjónustuaðila, og einnig auknu
samtali milli atvinnugreinarinnar og
samfélagsins.
Fræðsla, vöruþróun og gæðastarf
Fundarmenn voru einnig áfram um
að ferðamenn fengju meiri fræðslu
um samfélagið og lífið í landinu, að
rétt mynd væri gefin af landi og þjóð
í stað glansmyndar og að samfélagið
væri frætt um ferðaþjónustuna.
Mikið var rætt um mikilvægi þess
að koma á fót virkum vettvangi
þar sem ferðaþjónustuaðilar á
Vesturlandi gætu starfað markvisst
saman að vöruþróun, gæðastarfi og
markaðsmálum. Síðast en ekki síst
var samhljómur um að allir sem
kæmu að ferðamálum á einhvern hátt
þyrftu að sýna ábyrgð í verki og voru
hlutverk stjórnvalda, samfélagsins
og greinarinnar sjálfrar rædd í þaula.
Grunnur að framtíðarsýn
Úr gögnum sem söfnuðust á
þessum fundum hefur verið unninn
grunnur að framtíðarsýn ferðamála á
Vesturlandi. Nú í janúar var þessari
vinnu fram haldið m.a. með opnum
vinnufundum, þar sem unnið var að
markmiðasetningu og undirbúningi
aðgerðaáætlunar sem byggir á þeirri
framtíðarsýn. /MÞÞ
Unnið var að markmiðasetningu og undirbúningi aðgerðaráætlunar á opnum
vinnufundum nú fyrr í þessum mánuði.