Fréttablaðið - 09.05.2020, Side 38
Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir
eftirfarandi stöðu lausa til umsóknar:
Stöðu íþróttakennara
Við leitum að kennara sem:
- Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
- Hefur lausnamiðaða nálgun á viðfangsefnum
- Er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni
- Er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr
yfir frumkvæði
- Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi
verkefni
- Vill taka þátt í teymisvinnu
- Hefur reynslu af íþrótta- og sundkennslu
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli
með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leik-
skólanemendur á tveimur starfsstöðvum.
Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennslu-
hætti innan skólans. Rík tónlistarhefð er við skólann.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð
starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum
samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.
Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2020
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2020
Umsóknir skulu sendast á netfangið
johannrunar@thingeyjarskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson
skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið
johannrunar@thingeyjarskoli.is
Við Menntaskólann á Ásbrú er starfrækt eina stúdentsbraut
landsins með sérhæfingu í tölvuleikjagerð. Við námsbrautina
er mikil áhersla á nútímaleg vinnubrögð kennara og
nemenda, í nánu samstarfi við fyrirtæki í hugverkaiðnaði.
Námsbrautin er breiður grunnur til framhaldsnáms á
háskólastigi með færni til framtíðar að leiðarljósi.
Kennara vantar í eftirfarandi kennslugreinar fyrir
skólaárið 2020 - 2021:
Tölvuleikjagerð
Danska
Stærðfræði
Heimspeki
Eðlisfræði
Forritun
Margmiðlun
Enska
Listasaga
Spænska
Gerð er krafa um háskólamenntun í kennslugreininni og
fullgild kennsluréttindi á framhaldsskólastigi í
viðkomandi kennslugrein.
Skólameistari veitir nánari upplýsingar á nanna@keilir.net.
Sótt er um rafrænt á: www.menntaskolinn.is
Við hvetjum jafnt konur sem karla til þess að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2020.
Fullum trúnaði heitið.
MENNTASKOLINN.IS
GAMEDEV•
Samherji er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki
Evrópu, með fjölbreytta starfsemi víðsvegar um
heim. Samherji hefur á að skipa hæfu og
framtakssömu starfsfólki og stjórnendum,
öflugum skipaflota, miklum aflaheimildum og
fullkomnum fiskvinnslum í landi.
Samherji fiskeldi er dótturfyrirtæki Samherja og er fiskeldisfyrirtæki sem rekur fimm eldisstöðvar, tvær á Suðurnesjum,
eina í Ölfusi og tvær í Öxarfirði. Samherji fiskeldi er sérhæft í landeldi á laxi og bleikju og rekur eina fullkomnustu
fiskvinnslu landsins sem er sérhæfð til vinnslu á bleikju. Vinnslan var opnuð í febrúar 2018 og er í Sandgerði. Félagið er
stærsti bleikjuframleiðandi í heimi og selur afurðir sínar ferskar og frosnar til kröfuhörðustu stórmarkaða og veitingahúsa
víða um heim. Gæði og áreiðanleiki eldisferils Samherja fiskeldis er vottaður af óháðum aðila.
Nánari upplýsingar á www.samherji.is
Þróun og viðhald hátækni
vinnuþjarka og fiskvinnsluvéla,
framtíðarstarf í Sandgerði
Samherji fiskeldi auglýsir eftir rafvirkja, vélfræðingi eða einstaklingi með sambærilega menntun og/eða
reynslu til starfa í nýrri vinnslu félagsins í Sandgerði. Okkur vantar einstakling í liðið til að framleiða
vörur af bestu gæðum í fullkomnustu tækjum sem völ er á.
Nánari upplýsingar veitir Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri í síma 560 9000.
Vinsamlega skilið skriflegum umsóknum til Önnu Maríu Kristinsdóttur, Starfsmannastjóra Samherja hf Glerárgötu 30, 600 Akureyri eða með tölvupósti á
netfangið anna@samherji.is
Viðkomandi þarf að hafa:
• Metnað fyrir framleiðslu hágæða matvæla
• Getu til að starfa sjálfstætt og frumkvæði til að vinna að
fyrirbyggandi viðhaldi með nýtingu á viðhaldshugbúnaði
• Þekking á iðnstýringum
• Vera jákvæður, úrræðagóður og tilbúin að takast á við
nýjungar í tækni
• Starfið felst í að gangsetja og keyra vinnsluna, eftirliti, þróun, umhirðu og
viðhaldi véla og tækja í nýrri og fullkominni fiskvinnslu félagsins
• Menntun á sviði rafvirkjunar, rafeindavirkjunar eða vélvirkjunar er kostur
• Góð tölvukunnátta er skilyrði
• Enskukunnátta er skilyrði
Skólastjóri Hvassaleitisskóla
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Hvassaleitisskóla lausa til umsóknar.
Hvassaleitisskóli er hverfisskóli fyrir nemendur í 1.-7. bekk í grónu íbúðahverfi. Í skólanum eru um 170 nemendur og þar
starfa um 50 starfsmenn.
Áhersla er lögð á skólaþróun í takt við menntastefnu Reykjavíkurborgar, nýjar rannsóknir á námi og kennslu og þróun
samfélagsins. Skólinn starfar eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar þar sem lögð er áhersla á samábyrgð, virðingu
og samvinnu nemenda og starfsmanna skólans. Sérdeild fyrir einhverfa nemendur er starfrækt við skólann og unnið er að
eflingu í upplýsinga- og samskiptatækni. Mikil áhersla er lögð á læsi í víðasta skilningi, félagsfærni og sjálfseflingu. Unnið
er eftir kennsluaðferð Byrjendalæsis í yngri bekkjum skólans. Gott og markvisst samstarf er við leikskóla hverfisins með
verkefninu Sögurammi, Brúarsmíði en markmið þess er að auðvelda aðlögun leikskólanemenda að grunnskólanum.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur víðtæka reynslu og þekkingu á
grunnskólastarfi.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari, greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda á skólastarfið, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2020.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Ragnheiður E. Stefánsdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: soffia.vagnsdottir@reykjavik.is / ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi
skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu
Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar
sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið sam-
starf og fagmennska.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á
grunnskólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í
skólastarfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða
framsækna skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770
www.radum.is • radum@radum.is
Við ráðum
Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar
sniðnar að þörfum viðskiptavinarins.