Fréttablaðið - 09.05.2020, Page 6
Þótt samanlagt fylgi
stjórnarflokkanna þriggja
sé tæp 43 prósent sögðust
um 60 prósent þeirra sem
tóku afstöðu styðja ríkis-
stjórnina.
Samgöngustofa auglýsir laus til umsókna
19 leyfi til leiguaksturs fólksbifreiða á
höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum
og 1 leyfi á Akureyri.
Þau ein geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda
akstur leigubifreiðar að aðalatvinnu og hafa lokið
námskeiði fyrir leigubifreiðastjóra. Til að öðlast
leyfi þurfa umsækjendur að uppfylla leyfisskilyrði,
skv. 5. gr. laga nr. 134/2001 og rg.nr. 397/2003 um
leigubifreiðar, með síðari breytingum.
Úthlutun leyfis fer fram á grundvelli starfsreynslu
við akstur leigubifreiðar, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu
Samgöngustofu, www.samgongustofa.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2020.
Sími: 480 6000 . www.samgongustofa.is
AUGLÝSING
VEGNA ÚTHLUTUNAR
ATVINNULEYFA
TIL AKSTURS
LEIGUBIFREIÐA
Samgöngustofa
Café
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Við gætum fyllsta hreinlætis og fylgjum ráðleggingum
um sóttvarnir í öllum okkar viðskiptum.
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnarf lokk-
arnir þrír bæta allir við sig fylgi í
könnun sem Zenter rannsóknir
gerðu fyrir Fréttablaðið og greint
var frá fyrr í vikunni. Samanlagt
fylgi þeirra er nú tæp 43 prósent.
Það hefur ekki mælst meira í könn-
unum Zenter frá því í júní í fyrra.
Flokkarnir þrír mælast þó sam-
tals með rúmlega tíu prósentu-
stigum minna fylgi en þeir fengu í
kosningunum haustið 2017.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið
stærsti f lokkurinn í öllum könn-
unum Zenter frá því að sú fyrsta
var gerð fyrir Fréttablaðið í byrjun
desember 2018. Í könnuninni nú
mælist flokkurinn með 22,4 prósent
og hefur ekki mælst stærri síðan í
lok júní í fyrra.
Vinstri græn mælast nú með 11,8
prósent sem er það mesta síðan um
miðjan október á síðasta ári. Enn á
f lokkurinn þó langt í land með að
ná kjörfylgi sínu sem var 16,9 pró-
sent.
Framsóknarflokkurinn bætir 0,2
prósentustigum við sig og er nú með
8,4 prósent. Flokkurinn hefur ekki
fengið meira fylgi síðan í könnun í
byrjun mars í fyrra.
Samfylkingin virðist vera að festa
sig vel í sessi sem stærsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn og næststærsti
f lokkur landsins. Þeirri stöðu hefur
Samfylkingin haldið frá lokum júlí
í fyrra. Flokkurinn missir að vísu
rúm tvö prósentustig frá síðustu
könnun en hefur mælst yfir kjör-
fylgi allt tímabilið sem kannanirnar
ná yfir.
Píratar mælast nú með 11,9 pró-
sent og hafa líkt og Samfylkingin
mælst yfir kjörfylgi allt umrætt
tímabil. Flokkurinn fékk 9,2 pró-
sent í kosningunum en fór hæst upp
í rúm 15 prósent í könnun í lok júní
í fyrra.
Töluverðar sveif lur hafa verið
á fylgi Miðf lokksins í könnunum
Zenter fyrir Fréttablaðið. Flokkur-
inn fékk 10,9 prósent í kosningun-
um en mælist nú með 8,6 prósent.
Í kjölfar Klaustursmálsins féll fylgi
f lokksins niður í 4,3 prósent í des-
ember 2018. Í lok júlí í fyrra var það
hins vegar komið upp í 13,4 prósent.
Viðreisn er þriðji stjórnarand-
stöðuflokkurinn sem hefur mælst
yfir kjörfylgi í öllum könnununum.
Flokkurinn fékk 6,7 prósent í kosn-
ingunum en mælist nú með 9,8 pró-
sent. Hæst fór fylgið í september í
fyrra þegar það var rúm 12 prósent.
Flokkur fólksins hefur ekki náð
kjörfylgi sínu í neinni af könnun-
unum en flokkurinn fór nálægt því
í mars síðastliðnum. Í kosningunum
fékk f lokkurinn 6,9 prósent en
mælist með 4,4 prósent nú. Flokk-
urinn hefur mælst undir fimm pró-
senta markinu allt frá júní í fyrra ef
könnunin í mars er undanskilin.
Sósíalistaflokkurinn hefur sótt í
sig veðrið í könnunum á þessu ári. Í
janúar mældist f lokkurinn með 5,2
prósent en hefur verið með 4,5 pró-
sent í síðustu tveimur könnunum.
sighvatur@frettabladid.is
Stjórnarflokkarnir
rétta úr kútnum
Þótt samanlagt fylgi stjórnarflokkanna þriggja hafi ekki mælst meira frá því
í júní á síðasta ári er það enn um tíu prósentustigum undir kjörfylgi flokk-
anna. Rýnt er í þróun fylgis flokkanna í könnunum Zenter fyrir Fréttablaðið.
Framsókn með 16 prósent á landsbyggðinni
Ef rýnt er í niðurstöður síðustu könnunar Zenter
rannsókna kemur ýmislegt fróðlegt í ljós. Misjafnt
er hvernig fylgi flokkanna skiptist eftir búsetu fólks.
Þannig styðja 16 prósent íbúa landsbyggðarinnar
Framsóknarflokkinn, en aðeins rúm fjögur prósent
íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Miðflokkurinn sækir einnig fylgi sitt frekar á
landsbyggðina þar sem flokkurinn nýtur tæplega 12
prósenta stuðnings. Á höfuðborgarsvæðinu styðja
rúm sjö prósent flokkinn.
Dæmið snýst við hjá Viðreisn. Flokkurinn er með
tæplega 13 prósenta stuðning á höfuðborgarsvæð-
inu en rúmlega fjögur prósent á landsbyggðinni.
Samfylkingin er einnig mun sterkari á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem flokkurinn mælist með rúm
17 prósent, á móti tæpum 11 prósentum á lands-
byggðinni.
Munurinn er minni hjá öðrum flokkum en þó eru
Sjálfstæðisflokkur, Vinstri græn og Píratar heldur
sterkari á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni.
Sem fyrr skera Vinstri græn og Miðflokkurinn sig
úr, þegar horft er á stuðning eftir kyni. Þannig styðja
rúm 19 prósent kvenna Vinstri græn en aðeins rúm
sex prósent karla. Miðflokkurinn nýtur stuðnings
tæplega 11 prósenta karla en tæplega sex prósenta
kvenna.
Ef horft er á tekjur einstaklinga kemur í ljós að
stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn fer vaxandi með
auknum tekjum. Þannig styðja 35 prósent þeirra
sem hafa tekjur yfir 800 þúsund á mánuði flokkinn.
Stuðningurinn er hins vegar 15 prósent hjá þeim
sem eru með minna en 400 þúsund.
Mynstrið er svipað hjá Viðreisn þar sem stuðn-
ingurinn er 17 prósent í hæsta tekjuhópnum en sex
prósent í þeim lægsta. Píratar sækja sinn stuðning
aftur á móti frekar í tekjulægri hópana. Í lægsta
tekjuhópnum styðja 17 prósent Pírata en um níu
prósent í þeim hæsta.
Stuðningur við Sósíalistaflokkinn og Flokk
fólksins er áberandi mestur í lægsta tekjuhópnum,
en Miðflokkurinn sækir frekar fylgi sitt til tekjuhærri
hópa. Vinstri græn og Samfylkingin njóta mests
stuðnings hjá þeim sem eru með 600-799 þúsund á
mánuði en minna í öðrum hópum.
✿ Þróun á fylgi flokkanna í skoðanakönnunum frá kosningum 2017
5%
10%
15%
20%
25%
30%
Kosningar 2017 01.03.2019 27.06.2019 26.07.2019 09.09.2019 14.10.2019 15.01.2020 04.03.2020 04.05.2020
n Sjálfstæðisflokkurinn n Vinstri græn n Samfylkingin
n Miðflokkurinn n Framsóknarflokkurinn n Píratar
n Flokkur fólksins n Viðreisn n Sósíalistaflokkurinn
DAG HVERN LESA
93.000
ÍSLENDINGAR
FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019
9 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð