Fréttablaðið - 09.05.2020, Page 66
Krían er sá farfugl sem flýgur lengst.
Í dag er Alþjóðlegi farfugladagur-inn en hann hefur verið haldinn frá árinu 1993. Af því tilefni eru
haldnir viðburðir víða um heim til
að fræða almenning um farfugla.
Meirihluti varpfugla á Íslandi eru
farfuglar. Samkvæmt vef Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands eru 47
tegundir farfugla á Íslandi en um
34 tegundir staðfugla. Sumir fuglar
eru bara farfuglar að hluta til, það
þýðir að þeir dvelja einhvern hluta
vetrarins á Íslandi.
Krían er sá farfugl sem líklega
flýgur lengst á ævi sinni. Árlega
ferðast hún vegalengd sem sam-
svarar flugi í kringum hnöttinn.
Elstu kríur eiga því að baki f lug
sem er í kílómetrum talið jafn-
langt og ferð til tunglsins og til
baka og aftur til tunglsins. Það er
óhætt að kalla það töluvert afrek
hjá litlum fugli.
Alþjóðlegi
farfugladagurinn
Tinder fer í myndspjall á árinu.
Stefnumóta-appið Tinder hefur greint frá því að boðið verði upp á myndspjall síðar
á þessu ári, jafnvel í sumar. Hingað
til hefur Tinder einungis verið
textaspjall milli notenda. Þetta eru
stórtíðindi fyrir þá sem notfæra
sér appið. Margir hafa þó bent á að
þetta geti líka verið varasamt þar
sem möguleikar til misnotkunar
séu meiri í „lifandi“ spjalli. Hvernig
Tinder ætlar að leysa það hefur
ekki verið gefið upp. Einhverjar
stefnumótasíður hafa boðið upp á
slíka þjónustu.
Match Group, eigandi Tinder,
sagði þegar ný ársfjórðungsskýrsla
fyrirtækisins var kynnt að vegna
COVID-19 sé mikil þörf á þessum
möguleika. Fólk sé lokað inni
heima hjá sér og geti ekki farið
á stefnumót. Myndspjall sé því
nauðsynlegt. „Félagsleg fjarlægð
hefur krafist aðlögunar af okkar
hálfu,“ segir Mark og bendir á að
COVID-19 hafi áhrif á hvernig
sambönd fólks hefjast. „Ein-
hleypir hafa breytt venjum sínum
á þessum tíma og margir hafa skipt
yfir í stefnumót í gegnum síma eða
myndband.“
Þá bendir Mark á að að virknin á
Tinder hafi aukist verulega undan-
farið, sérstaklega meðal þeirra sem
eru undir þrítugu. „Þetta er sá vett-
vangur sem fólk notar til að hitta
aðra á þessum sérstöku tímum.
Við viljum bregðast við með því að
gera þjónustuna betri.“
Tinder með myndspjall vegna COVID
Fallbirnir láta sig falla á grunlausa
ferðamenn sem tala með öðrum
hreim en áströlskum.
Kóalabirnir er ein krúttlegasta dýrategund veraldar. Dýrin eru flokkuð með poka-
dýrum og þrátt fyrir nafngiftina,
alls óskyld björnum. Þeir finnast
eingöngu náttúrulega í Ástralíu
og eru í f lestum tilfellum friðsælar
jurtaætur. Til eru sögusagnir um
„dropbears“ eða fallbirni sem
líkjast kóalabjörnum, en eru frá-
brugðnir í ákveðnum grundvall-
aratriðum. Fallbirnir eru óvenju
stórir og árásargjarnir með langar
og beittar tennur. Þeir láta sig falla
niður úr trjám á bráð sína, hvort
sem um ræðir mannfólk eða önnur
gómsæt dýr.
Til eru leiðir til þess að koma í
veg fyrir fallbjarnaárásir. Meðal
algengra fallbjarnavarna er að
láta beitta gaffla standa upp úr
hári, smyrja Vegemite grænmetis-
smyrju bak við eyrun og undir
hendur, spreyja á sig pissi og tala
ensku með áströlskum hreim. Hér
er um að ræða stórsnjalla lygasögu
sem Ástralar segja ferðamönnum.
Þó svo ekki þurfi að óttast árásir
fallbjarna í Ástralíu er full ástæða
til þess að varast eitruð skordýr,
krókódíla og snáka.
Fallbjarnaárásir
í Ástralíu
- meiri upplifun!
SUMARNÁMSKEIÐ
SMÁRABÍÓS
HVERT NÁMSKEIÐ ER Í VIKU Í SENN
Mánudaga til föstudaga frá 8. júní til 17. ágúst
kl. 12:30 -16:00 á Skemmtisvæði Smárabíós
TILVALIÐ FYRIR BÖRN Á ALDRINUM 6 TIL 10 ÁRA
Verð: 20.000 kr.
15% systkinaafsláttur
Frekari upplýsingar á
smarabio.is/namskeid
Leikjasalur Lasertag Ratleikir Andlitsmálun Virtualmaxx
Blöðrugerð Útilasertag Rush Hópleikir Bíóferðir
SKIPULÖGÐ DAGSKRÁ ER ALLA DAGANA
„Kári Jökull sagði að
þetta væri skemmtilegasta
námskeið sem hann hefur
nokkurn tímann farið á :)“
“Snilldarnámskeið!
Minn er svakalega ánægður
og bara takk kærlega
fyrir minn dreng”
“Frábært námskeið!„
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R