Fréttablaðið - 09.05.2020, Qupperneq 12
Bretar hernámu Ísland 10. maí 1940 til þess að hindra að Þjóðverjar kæmu sér upp flug- og f lotabækistöðvum í landinu sem ógnað
gætu Bretlandseyjum og skipa-
leiðum á Norður-Atlantshafi.
Stuttur aðdragandi var að þess-
um sögufræga atburði en þýskir
herir gerðu innrás í Noreg mánuði
fyrr og brutu á nokkrum vikum á
bak aftur mótspyrnu norska hers-
ins og breskra og franskra hersveita
sem sendar höfðu verið til aðstoðar.
Sumt af breska herliðinu sem
hrökklaðist frá Noregi kom til
Íslands ásamt öðrum liðsauka í
júnímánuði og hóf varnarviðbún-
að. Skortur á heraf la varð til þess
að Kanadastjórn lagði til eitt stór-
fylki með tæplega 2.700 mönnum til
Íslandsdvalar sumarið 1940. Sigldu
f lestir þeirra áfram til Bretlands
um haustið þegar breskur liðsauki
barst til landsins. Herafli Breta náði
hámarki árið 1941 þegar um 28.000
liðsmenn landhers, flughers og flota
dvöldu í landinu.
Til verndar skipaleiðinni
Bandaríkin voru hlutlaus í styrjöld-
inni til ársloka 1941 en allmikils
stuðnings gætti þar við málstað
Breta. Ríkisstjórn Roosevelts Banda-
ríkjaforseta fann leið til þess að létta
undir með því að lána og leigja Bret-
um margvíslegan herbúnað sem þeir
sóttu í bandarískar hafnir.
Mikil hætta steðjaði þó að sigl-
ingunum og hugkvæmdist forset-
anum að senda bandarískt herlið til
Íslands og láta Bandaríkjaflota þar
með veita herskipavernd á siglinga-
leiðum austur á mitt Atlantshaf.
Sömdu ríkisstjórnir Íslands, Bret-
lands og Bandaríkjanna um það
sumarið 1941 að bandarískt herlið
skyldi taka við vörnum landsins og
leysa breska hernámsliðið smám
saman af hólmi.
Hernámi Breta lauk formlega 22.
apríl 1942 þegar meginliðsstyrkur
þeirra hvarf heimleiðis, en breski
f lotinn og f lugherinn, sem léku
aðalhlutverk í baráttunni við þýska
flotann á norðaustanverðu Atlants-
hafi, starfaði áfram í landinu með
Bandaríkjaher þar til eftir stríðslok.
Hvalfjörður lék stórt hlutverk
Bandamenn höfðu mikinn við-
búnað til þess að hefta siglingar
þýskra herskipa og kafbáta og verja
skipaleiðir á Atlantshafi. Varnir
landsins miðuðust fyrst og fremst
við svæði þar sem voru hafnir, eða
aðstaða til f lugvallagerðar og starf-
semi sjóflugvéla með vegartengingu
við aðra landshluta, svo sem á Suð-
vesturlandi, við Húnaflóa, Eyjafjörð
og á Austurlandi.
Viðbúnaður var mestur á höfuð-
borgarsvæðinu, en Reykjavíkur-
höfn var lykillinn að liðs- og birgða-
flutningum til landsins. Umsvifin
voru í meðallagi á Norðurlandi og
fremur lítil á Austurlandi, enda
vegatengingar við þá landshluta
fremur frumstæðar. Bretar lögðu
flugvelli í Kaldaðarnesi og Reykja-
vík en Bandaríkjamenn reistu stóra
flugbækistöð við Keflavík, sem lék
stórt hlutverk í miklum loftf lutn-
ingum þeirra til Bretlands.
Eftirlitsskip og fylgdarskip skipa-
lesta höfðu aðstöðu í Hvalfirði og
áðu einnig í Seyðisfirði. Hvalfjörður
lék stórt hlutverk í siglingum skipa-
lesta með hergögn og birgðir frá
Bretlandi og Bandaríkjunum til
sovéskra hafna á Kólaskaga og við
Hvítahaf er mest reið á, 1941 og 1942.
Heildarheraf linn í landinu var
nærri 50.000 þegar mest var, sumar-
ið 1943, og hafði um 80 prósent hans
aðsetur á höfuðborgarsvæðinu og
Suðvesturlandi. Landsmenn sjálfir
voru einungis um 120.000 í upphafi
hernámsins og íbúar Reykjavíkur
um 40.000.
Varpað í hringiðu hildarleiks
Götur höfuðborgarinnar og nær-
liggjandi bæja fylltust af einkennis-
búnum mönnum sem hrifnir voru
frá verkum sínum og varpað í hring-
iðu mesta hildarleiks mannkyns-
sögunnar.
Landsmönnum þótti í fyrstu
margt framandi í fari erlendu gest-
anna sem gerðu hlutina með sínum
hætti. Undruðust þeir ýmislegt
sem fylgdi varnarviðbúnaðinum
og rekstri herliðsins. Hentu margir
gaman að því sem ekki samræmdist
þeirra eigin háttum, en gáfu ef til
vill minni gaum að þeirri dauðans
alvöru sem bjó að baki.
Kærkomin umskipti
Þótt þröngt væri á þingi tókst sam-
búð landsmanna við hina framandi
gesti furðu vel. Í árslok 1942 var
ekki lengur talin hætta á innrás
Þjóðverja og sumarið eftir var stór
hluti bandaríska herliðsins f luttur
til Bretlands til þjálfunar fyrir inn-
rásina á meginland Evrópu. Nýr og
miklu fámennari liðsafli kom þá til
landsins en hélt að mestu sömu leið
árið 1944.
Flestir bresku og bandarísku her-
mennirnir sem eftir sátu í stríðslok
störfuðu á Reykjavíkur- og Kef la-
víkurflugvelli og hurfu þeir síðustu
til síns heima vorið 1947.
Síðari heimsstyrjöldinni hefur
verið lýst sem mesta umbrotatíma
í sögu Íslendinga. Markaðir opnuð-
ust í Bretlandi og Bandaríkjunum
fyrir f lestar útf lutningsafurðir á
margföldu verði og hleypti það,
ásamt atvinnu sem skapaðist við
fjölbreytt umsvif herliðsins, af
stað gríðarlegum efnahagslegum
uppgangi. Umskiptin voru kær-
komin eftir langvarandi stöðnun
og kreppu og grunnur var lagður
að nútímavæðingu og velmegun
þjóðarinnar.
Íslendingar voru ekki þátttak-
endur í hernaðinum en bækistöðvar
bandamanna og aðstaða í landinu
átti þátt í að flýta fyrir sigri í styrj-
öldinni. Landsmenn veittu mikil-
vægan stuðning, t.d. með sölu mat-
væla og annarra framleiðsluvara
sem kom Bretum afar vel.
Þótt styrjöldin færði þjóðinni
auðsæld og umbætur fór hún ekki
varhluta af ógnum hennar. Alls
fórust 151 Íslendingur af hern-
aðarvöldum, svo fullvíst sé talið,
og skjótur efnahagsuppgangur og
herseta höfðu langvarandi þjóð-
félagsumrót í för með sér.
Bandamenn misstu alls nærri
900 manns hér við land og í stríðs-
lok hvíldu 510 erlendir hermenn
og sjómenn í íslenskri mold. Þar af
voru rúmlega 200 Bandaríkjamenn
en líkamsleifar þeirra voru síðar
fluttar til heimalandsins.
Bábiljurnar leiðréttar
Hér hefur verið stiklað á stóru um
helstu staðreyndir, en margvís-
legar bábiljur sem snemma fengu
byr undir báða vængi heyrast enn.
Er því ekki úr vegi að skýra og leið-
rétta ýmislegt sem misskilningi
kann að valda.
Hernámi Breta lauk formlega 22.
apríl 1942 og við tók umsamin her-
vernd Bandaríkjanna.
Herliðið tók sér í fyrstu bólfestu
í f jölmörgum byggingum sem
sumar stóðu auðar, en reistu síðan
Friðþór Eydal
rithöfundur
og fyrrverandi
upplýsingafull-
trúi varnarliðs-
ins á Keflavíkur-
flugvelli.
Satt og logið
um hernámið
og hersetuna
Friðþór Eydal hefur rannsakað umsvif erlendra
herja á Íslandi, meðal annars í skjalasöfnum þeirra.
Margt reynist ekki eins og almannarómur hafði
fyrir satt og Friðþór varpar ljósi á staðreyndirnar.
Framhald á síðu 12
80 ÁR FRÁ HERNÁMI
9 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð