Fréttablaðið - 09.05.2020, Page 72

Fréttablaðið - 09.05.2020, Page 72
hún rétt skriðin yfir tvítugt. Með þeim tókust góð kynni og svo fór að Charlie bað um hönd Kristínar sumarið 1934. Hún játaðist honum en þegar áformin um brúðkaupið voru í bígerð snerist henni hugur og upp úr sambandinu slitnaði. Segir sagan að f ljóðið fagra frá Íslandi hafi veitt Charlie innblástur að því sem síðar varð. Árið 1935, þá 45 ára að aldri, urðu mikil tímamót hjá Charlie. Teikni- myndir voru að ryðja sér til rúms á hvíta tjaldinu um það leyti þó að f lestar væru þær í formi stutt- mynda. Mikill uppgangur var í iðn- aðinum og var leitað að hæfileika- fólki um gjörvalla Norður-Ameríku til þess að f lytja til Los Angeles og taka þátt í ævintýrinu. Fékk vinnu hjá Disney Sveimhuginn Teiknimynda-Kalli pakkaði því í töskur, hélt suður á bóginn og réð sig til spennandi kvikmyndastúdíós sem var í eigu ungra bræðra, Roy og Walt Disney. Ein af mikilvægustu heimildun- um um líf og starf Charlie Thorson byggist á bókinni Cartoon Charlie eftir kvikmyndafræðinginn Eugene Waltz. Bókin kom út 1998 og vakti mikla athygli í Kanada enda lá mikil rannsóknarvinna að baki henni. Hróður bókarinnar barst til Íslands og var talsvert fjallað um hana í íslenskum fjölmiðlum rétt fyrir aldamótin. Vonir stóðu til að bókin yrði þýdd yfir á íslensku sem því miður varð aldrei en Waltz heimsótti landið og veitti fjölmiðl- um viðtöl auk þess að halda fyrir- lestur á Akureyri um viðfangsefni bókarinnar. Í bókinni leggur Waltz drög að kenningu sinni um að Charlie hafi verið gríðarlega áhrifamikill þegar teiknimyndir voru í fyrsta skipti að verða að kvikmyndum í fullri lengd. Menn þurftu að búa yfir sérstökum hæfileikum til þess að ganga inn í vellaunað starf hjá Disney á þessum kreppuárum. Charlie kom inn í Disney-kvik- myndaverið og varð strax virtur meðal samstarfsmanna sinn. Þar spiluðu augljósir hæfileikar hans inn í en ekki síður sú staðreynd að Charlie var eldri og reynslumeiri en flestir samstarfsmenn hans. Waltz hefur bent á að á þessum árum hafi ofuráherslan verið á krúttlega karaktera. Enginn hafi verið betri en Charlie í að skapa slíka karaktera og þá sérstaklega með stór hlýleg augu sem bræddu áhorfendur. Að auki var hann frábær sögumaður og var hann því hvalreki fyrir Disney- kvikmyndaverið. Hjá Disney starf- aði hann við að hanna karaktera fyrir myndirnar en síðan tóku teiknarar og leikstjóri við keflinu. Það kann að skýra að einhverju leyti þá staðreynd að um langt skeið var þátttaka Charlie í verkefnunum gleymd og grafin. Charlie vann í tæp þrjú ár hjá Disney að undirbúningi kvikmynd- arinnar um Mjallhvíti og dvergana sjö, fyrstu teiknimyndar fyrirtækis- ins í fullri lengd. Sennilega hafa það verið ævintýralegir tímar. Á einum stað í bók Waltz er sagt frá því þegar Walt kíkir inn á skrifstofu Charlie og kynnir hann fyrir tveimur félög- um sínum, Charlie Chaplin og H. G. Wells. Það hefði eflaust verið áhuga- vert að hlera hvað fór á milli með Disney, Chaplin, Wells og Kalla úr Biskupstungunum! Reisti Walt Disney níðstöng En ógæfa Charlie var sú að hann átti erfitt með að lúta stjórn annarra og skömmu áður en kvikmyndin um Mjallhvíti kláraðist rauk hann út í fússi frá Disney. Segir sagan að það hafi meðal annars verið vegna þess að allar teikningar voru merktar Disney en ekki einstökum teiknur- um. Þegar teiknimyndin kom loks út sló hún öll aðsóknarmet og lagði í raun grunninn að því stórveldi sem Disney hefur verið síðan. Þrátt fyrir að hafa unnið hörðum höndum að myndinni var Charlie hvergi getið þegar myndin var sýnd á hvíta tjaldinu. Það særði hann djúpu sári. Eins og áður segir þótti Mjallhvít á hvíta tjaldinu sláandi lík myndum af Kristínu Sölvadóttur sem Charlie teiknaði á sínum tíma. Hundruð teiknara komu að þróun myndarinnar og því er fulldjarft að segja að Charlie hafi verið höfundur persónanna en áhrif hans voru eflaust mikil. Þá eru til skissur eftir Charlie af sex af þeim sjö dvergum sem vinguðust við Mjallhvíti. Í bókinni Dagstund á Fort Garry rifjar Haraldur Bessason, fyrrver- andi háskólarektor, upp kynni sín af Josep Thorson, bróður Charlie. Þar kemur fram að þegar upp úr sauð milli Charlie og Walt Disney hafi Íslendingurinn brugðist við í anda Íslendingasagnanna, sem hann dáði svo mjög, og reist Disney níðstöng með viðeigandi kveðskap áföstum í miðri Hollywood. Disney tók það óstinnt upp og þurfti að skilja hann og Charlie að síðar um daginn. Alls starfaði Charlie í tíu ár í kringum teiknimyndageirann, frá 1935-1945. Títtnefnt óþol hans fyrir yfirboði annarra sem og f lökku- eðlið gerði það að verkum að hann flakkaði ört á milli framleiðslufyr- irtækja og oftar en ekki fyrir feita launatékka. Starfaði hann meðal annars á næstu árum fyrir Harm- an-Ising, MGM og síðan Warner Bros. Þaðan fór hann og starfaði hjá Fleischer-Brothers, Terrytoons, Columbia og George Pal. Þetta f lakk Charlie milli staða er ekki síst ástæðan fyrir því að hann var svo áhrifamikill að mati Walz. Hann bar þekkingu og kunn- áttu milli myndveranna og vegna reynslunnar og hæfileikanna var á hann hlustað. Kanínan hans Bugs Hjá Warner Bros bjó Charlie til sinn þekktasta karakter, kanínuna Bugs Bunny eða Kalla kanínu, sem nánast hvert mannsbarn þekkir enn þann dag í dag. Nafnið var til- komið af því að yfirmaður Charlie, Ben Hardaway, var kallaður Bugs. Hann fól Charlie það verkefni að búa til spennandi karakter í kan- ínulíki sem Íslendingurinn innti samviskusamlega af hendi. Eftir að hafa teiknað upp tillögu sína lagði Charlie myndina á skrif borð Har- daway og merki hana „Bugs Bunny“. Þannig festist nafnið við hina kjaft- foru en krúttlegu kanínu. En það var líka önnur ástæða fyrir því að Charlie var ráðinn til Warner-bræðra. Þar var honum falið að kenna ungum leikstjóra hand- bragðið við gerð teiknimynda, per- sónusköpun og söguþráð. Þessi ungi maður var Chuck Jones sem er nærri jafn þekktur og Walt Disney fyrir framlag sitt til teiknimyndanna. Það er þó til marks um hversu erfitt það var að fá viðurkenningu fyrir verk sín í teiknimyndabransanum á þess- um árum að Jones minntist aldrei á Charlie sem sérstakan áhrifavald og gerði lítið úr þessum fyrstu árum sínum hjá Warner Bros þegar hann var að læra fagið. Sjaldan launar kálfurinn ofeldið. Myndver Fleischer-bræðra var í Miami og á þann sólríka stað hélt Charlie nokkru síðar. Þar átti hann þátt í að endurhanna karakterinn Popeye, eða Stjána bláa, auk þess sem hann kom að sköpun Steinald- armannanna í The Flint stones þó að frægðarsól þeirra hafi ekki tekist á loft fyrr en síðar í höndum William Hannah og Josep Barbera. Hér hvílir víkingur Þegar kvikmyndaárum Charlie lauk fluttist hann fljótlega aftur til Winnipeg og tók upp fyrri iðju við auglýsingagerð. Þar skapaði hann tvo karaktera sem eru sem greyptir í þjóðarsál Kanadabúa þó að Íslend- ingar kannist lítt við þá. Annars vegar er það björninn Punkinhead sem Charlie teiknaði fyrir vörulista Eatons. Björninn sló í gegn í Kanada og með hann í forgrunni voru framleiddar aug- lýsingar, lög og teiknimyndir auk þess sem hann birtist á margs konar varningi. Í markaðslegum tilgangi var ákveðið að tengja björninn jól- unum og því var framleidd ný bók um björninn um hver jól næsta ára- tuginn. Sú framleiðsla hætti þegar Charlie lenti í fyllerísrifrildi við yfirmann Eatons og hætti hjá fyrir- tækinu í fússi. Hinn karakterinn var krúttlegi fíllinn Elmer sem Charlie teiknaði í sjálf boðavinnu fyrir lögregluyfir- völd í Toronto. Elmer átti að kenna börnum umferðarreglurnar og hann gerði gott betur en það, því hann vann hug og hjörtu barna um allt Kanada og sinnir hlutverki sínu enn þann dag í dag. Þegar Charlie var kominn á eftirlaunaaldur flutti hann til Van- couver í Bresku-Kólumbíu til þess að vera nær syni sínum, Stephen, og fjölskyldu hans. Hann lést þar í borg árið 1967. Það er vel við hæfi að eftir róstur- sama en ævintýralega ævi standi á legsteini hans: „Hér hvílir víkingur.“ HAFI ÍSLENDINGURINN BRUGÐIST VIÐ Í ANDA ÍSLENDINGASAGNANNA OG REIST DISNEY NÍÐ- STÖNG MEÐ VIÐEIGANDI KVEÐSKAP ÁFÖSTUM Í MIÐRI HOLLYWOOD. ÞÁ VAR HANN SAGÐUR DRYKKFELLDUR, GEFINN FYRIR KONUR, FJÁR- HÆTTUSPIL OG LÍFSINS LYSTISEMDIR. Framhald af síðu 30  Svona leit Charlie Thorson út með eigin augum. Myndina má finna á Íslendingaveggnum á Ellice-vegi í Winnipeg. Kalli kanína, eða Bugs Bunny, er líklega þekktasti karakter Charlie. Hinn kanadíski Punkinhead er minna þekktur. 9 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.