Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Page 9
þeirra. - Með því að líta á þau eins og
annað fólk, í staðinn fyrir að segja:
„Sjáðu vitleysinginn." - Hafa lyftur á
fleiri stöðum. - Taka tillit til annarra
sem eru fatlaðir í umferðinni,
skólanum og bara alls staðar.
6) Af hverju valdirðu þetta
verkefni?
Dæmi um svör:
Vegna þess að ég held að það sé
mjög skemmtilegt að vinna með fötl-
uðum bömum. Það getur líka kennt
manni margt. - Af því ég hef áhuga á
því máli og af því að frænka mín er
fötluð. Egvil læraaðhjálpafötluðum.
Frá samvinnunefnd Ö.B.Í
og Þroskahjálpar
Samvinnunefnd Öryrkjabandalags
Islands og Landssamtakanna Þroska-
hhjálpar hefur fundað nokkuð stíft í
vetur enda í mörg hom að líta að því er
snýr að samvinnu þessara tveggja sam-
taka fatlaðra í landinu.
Hér í blaðinu hefur áður verið sagt
frá samvinnunni við fræðsluvarpið um
myndaflokkinn „Haltur ríður hrossi",
sem nú hefur runnið sitt skeið í sjón-
varpinu. Gerður hefur verið góður
rómur að þessum myndum og margir
rætt um að sýna þyrfti þær á venju-
legum dagskrártíma og hefur sam-
vinnunefndin ákveðið að reyna að fá
þvíframgengt.
Hinn 3. febr. sl. kom forsætisráð-
herra á fund samvinnunefndar sam-
kvæmt beiðni hennar og vom honum
afhentir minnispunktar er vörðuðu
ýmis málefni fatlaðra sem ekki hafa
enn litið dagsins ljós, þrátt fyrir að
frétst hafi af undirbúningsvinnu í
félagsmálaráðuney tinu. Þykir samtök-
unum súrt í broti að hafa ekki verið
kölluð neitt til ráðuneytis í þessu sam-
bandi.
Þá var kynnt fyrir forsætisráðherra
það neyðarástand sem ríkir í vistun-
armálum mikið fatlaðra einstaklinga,
þ.e. þeirra sem þurfa á sambýlisvist að
halda. Þessir einstaklingar búa margir
hverjir í heimahúsum hjá öldruðum
foreldrum, enn aðrir eru inni á stórum
stofnunum en myndu bjargast full-
komlega á sambýli með góðum stuðn-
ingi. Fyrir nú utan það hve miklu
heimilislegra er fyrir fólk að dvelja á
smærri stöðum jafnvel þó deila megi
um hvort sambýli skuli teljast stofn-
anireðurei.
Forsætisráðherra tók málaleitan
samtakanna vel og gaf sér góðan tíma
til þess að ræða málin og bað um
áætlun samtakannaum þessi mál.
Samvinnunefndin lét síðan vinna
upp neyðaráætlun - hringt var í allar
svæðisstjómir og þær beðnar að gefa
upp fjölda þeirra sem væru í brýnustu
þörfinni fyrir vistun á sambýli. Þær töl-
ur sem fengust voru um 100 manns.
Nokkrar umræður urðu um tölu þessa
utan samtakanna og voru menn ekki á
eitt sáttir um réttmæti hennar. Það
breytti hins vegar ekki þeirri staðreynd
að þetta fólk er í brýnni þörf og eru
margir orðnir langþreyttir á hve hægt
miðar þó ekki sé kastað rýrð á það sem
þegarhefurveriðunnið.
I framhaldi af fundinum með forsæt-
isráðherra, komu á fund samvinnu-
nefndar, þeir Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB og Öm Friðriksson,
varaforseti ASÍ. Var kynnt fyrir þeim
áðumefnd neyðaráætlun og þeir beðn-
ir um að reyna að þoka málefnum fatl-
aðra áfram í tengslum við kjarasamn-
inga þá er nú fæm í hönd. Vom þeir
félagar fræddir um margt í sambandi
við málefni fatlaðra og tóku þeir vel
málaleitan samtakanna ekki síst að í
sínum umræðum gætu þeir komið að
baráttu fatlaðra fyrir bættum kjörum,
því hvað eru hagsmunasamtök fatlaðra
annað en stéttarfélög þeirra fötluðu.
Var það mál manna innan sam-
vinnunefndarinnar að fundimir með
þessum þremur stórveldum hefðu ver-
iðafhinugóða.
Þessi umræddu baráttumál voru síð-
an kynnt bréflega fyrir fleiri aðilum,
þ.ám. að sjálfsögðu félagsmálaráð-
herra, sem er sá aðili sem málefni fatl-
aðra snúa fyrst og fremst að.
Formenn samtakanna gengu síðan
á fund félagsmálaráðherra og kynntu
og ræddu þessi mál. Sá fundur hefur
sjálfsagt eytt ýmsum misskilningi, því
í hita leiksins er stundum ýmislegt
misskilið viljandi eða óviljandi.
Þessum ágæta fundi með félagsmála-
ráðherra lauk með því að hún bauð að
hitta fulltrúa samtakanna á 2ja til 3ja
mánaða fresti til skrafs og ráðagerða
- Mér leist á það. - Ég fékk ekki að ráða.
Allir hinir hópamir voru fullir. - Vegna
þess að ég held að það sé þroskandi og
mér finnst þetta spennandi. - Mig
langaði að kynnast nýjum málefnum.
og fagnar samvinnunefndin því mjög.
Afram hefur verið unnið að félags-
legu framkvæmdaáætluninni og hafa
málefni fatlaðra m.a. verið kynnt í
nokkrum grunnskólum borgarinnar og
hafa bömin verið mjög áhugasöm og
spurt mikið. Nokkuð er misjafnt eftir
skólum hve vel upplýstir nemendur
em um málefni fatlaðra almennt. Þeim
tíma sem varið er til slíkrar kynningar
er ábyggilega ekki á glæ kastað. Þá er
undirbúningur hafinn að sumamám-
skeiðum en það sýndi sig í fyrra, að
ekki nærri allir fatlaðir sem höfðu
löngun til að sækja tómstundastarf að
sumrinu, komust að hjá t.d. Reykja-
víkurborg.
Til stendur að styrkja söng- og leik-
listarstarf. Vonandi getum við sagt
meira frá þessu síðar.
Þá hafa verið haldnir kynningar-
fundir úti á landi á Selfossi, Vest-
mannaeyjum, Keflavík og Höfn í
Homafirði. A þessum stöðum hafa
verið stofnaðir starfshópar.
Væntanlega verður fundur á Akur-
eyri síðast í maímánuði.
Hita og þunga þessa starfs hefur
okkar ágæti stýrimaður, Helgi Hróð-
marsson borið, og er þar sannarlega
réttur maður á réttum stað.
Hér hefur verið stiklað á stóru um
það starf sem samvinnunefndin hefur
unnið og haft afskipti af. Ekki mun
þetta vera tæmandi listi, því svo mörg
mál ber alltaf á góma á fundum hennar.
Hins vegar er reynt, að einbeita sér að
ákveðnum málum og þoka þeim vel
áfram en ekki hræra í öllu í einu og
ljúkaengu.
Sú samvinna sem fer fram milli
samtakanna er af hinu góða. Hún opnar
ekki aðeins leiðir til að berjast saman
fyrir bættum hag fatlaðra í landinu,
heldur þjappar fólki saman
persónulega þannig að ein heild
myndast - heild af fólki sem hefur
samkennd, sem vill hvert öðru vel og
ber hag hvers annars og skjólstæðinga
sinna fyrir brjósti og reynir að hafa það
hugfast að manngildið er ofar öllu.
Asgerður Ingimarsdóttir.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
9