Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Side 14
Merk ráðstefna
Félags heyrnarlausra
af fyrri sögu og framtíðarhorfum.
Hins vegar get ég ekki stillt mig um
að fara nokkuð ofan í minnispunkta, er
ég hripaði hjá mér á ráðstefnunni um
starfsáætlun félagsins til næstu fimm
ára, sem er hin merkasta.
Fyrst er hins vegar rétt að geta þess
sem fram kom í máli félagsmálaráð-
herra að heymarlausir eru um margt
afskiptari og einangraðri hópur en aðr-
ir hópar öryrkja og kom það glöggt
fram í könnun þeirrar nefndar, er ráð-
herra setti á laggimar svo og er það
dagljóst í framhaldinu að grátlega seint
gengur að koma fram þeim úrbótum,
sem nefndin þó lagði til sem forgangs-
verkefni.
Fer þetta heim og saman við það
sem formaður félagsins sagði um fé-
lagsstarfið hjá þeim: Kraftmikið og
fjölbreytt innra starf - veikt hið ytra og
of árangurslaust fyrir ýmsu barist. Er
greinilegt að í mörgu tala hinir heyrn-
arlausu fyrir daufum ey rum, hinna ráð-
andi og heyrandi um leið.
Hin 8 brýnustu verkefni, sem bera
uppi starfsáætlunina eru þessi:
1) Táknmálsmiðstöð, samskipta-
miðstöð um leið. Meginmarkmiðið að
láta heyrendur og heyrnarlausa ná
Félag heyrnarlausra hélt merka og
fjölsótta ráðstefnu 22. apríl sl. í ráð-
stefnusal Hótels Loftleiða og stóð hún
í nær fjórar klukkustundir.
Haukur Vilhjálmsson formaður fé-
lagsins bauð gesti velkomna og hann
og S. Margrét Sigurðardóttir ritari fé-
lagsins fóru yfir helstu drætti úr nær 30
ára sögu félagsins og starfsáætlun
félagsins til næstu fimm ára.
Félagsmálaráðherra Jóhanna Sig-
urðardóttir flutti ávarp, greindi frá
starfi nefndar, er hún skipaði um úr-
bætur ýmsar á högum heyrnarlausra og
hvemig því starfi miðaði. Amaði fé-
laginu allra heilla.
Bryndís Víglundsdóttir skólastjóri
Þroskahjálparskólans greindi fráþeirri
viðhorfsbreytingu, sem í þeim skóla
hefði orðið við það að heyrnarlaus
stúlka, Júlía Hreinsdóttir, fór að nema
þar. Táknmálið varð eðlilegur hluti
námsefnis og með góðum stuðningi
opinberra aðila tókst farsællega til.
Aðalerindi - mjög yfirgripsmikið -
flutti Birthe Petersen frá Danmörku,
sem sagði m.a. frá starfsemi og upp-
byggingu táknmálsmiðstöðvar í Dan-
mörku, en fór í raun yfir þróun mála þar
og þá framtíðarsýn er hún hefði varð-
andi málefni heyrnarlausra og eðli-
Ráðherra í ræðustól.
Formaðurinn setur ráðstefnuna.
legri og sjálfsagðari þátttöku þeirra í
samfélaginu en nú er.
Hún svaraði einnig fyrirspurnum.
Ekki ætla ég mér þá dul að fara í
einstökum atriðum yfir þau margvís-
legu efni sem reifuð voru á ráðstefnu
þessari.
Félag heyrnarlausra verður 30 ára á
næsta ári og þá vænti ég þess að fá frá
þeim greinargóða lýsingu og frásögn
14