Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Síða 17
hagsbóta hafa þurft að berjast harðri
baráttu til að ná málum sínum fram.
Oddur Ólafsson hefur stundum orðið
að heyja harða baráttu innan samtaka
sinna og á pólitískum vettvangi til að fá
um þokað ýmsum þörfum málum, en
árangurinn er ótvíræður: A flestum
sviðum hafa orðið miklar framfarir í
málefnum fatlaðra á undanfömum ára-
tugum og Oddur Ólafsson situr nú í
öndvegi sem formaður Hússjóðs
Öryrkjabandalags Islands, heiðursfor-
maður Öryrkjabandalags Islands og
forseti SIBS, einnamikilvirkustu sam-
taka sem vinna að hagsmunamálum
fatlaðra á íslandi. Oddur var reyndar
kjörinn forseti SÍBS síðastliðið haust
og var haft á orði að menn hefðu viljað
yngja upp í forsetaembættinu. Þetta
gátu menn sagt þótt fráfarandi
formaður væri nokkru yngri en Oddur
og þessu hefði verið óhætt að halda
fram þótt komungur maður hefði setið
í forsetaembættinu á undan Oddi.
Þegar Oddur Ólafsson sat á Al-
þingi Islendinga höfðu menn á orði að
þar ættu fatlaðir sinn fulltrúa. Síðan
hann hætti þingstörfum hefur enginn
þingmaður talist slíkur fulltrúi. Þetta
sýnir og sannar að einstakir stjóm-
málaflokkar skipta litlu þegar um vel-
ferðarmál fatlaðra er að ræða heldur
skiptir mestu að einstakir þingmenn,
hvaðan úr flokki sem þeir eru, láti sig
þessi málefni varða.
Öryrkjabandalag íslands sendir
heiðursformanni sínum, Oddi Ólafs-
syni og fjölskyldu hans ámaðaróskir á
þessum heiðursdegi og lítur björtum
augum til áframhaldandi starfa Odds
að heilla- og hamingjumálum á
ókomnum framkvæmdaámm.
Arnþór Helgason,
formaður stjómar
Öryrkjabandalags Islands.
Ur Morgunblaðinu 26. aprfl sl.
Sjálfsrýmí eða iumsögn
ii FRÉTTABRÉFIÐ
Hollt er að kynna sér sjónarmið fé-
laga varðandi Fréttabréfið og hvað
fólk vill sjá þar - annað og meira en þar
er nú þegar.
Því var farið á stúfana og leitað
svara.
Ágætur nýkjörinn formaður
Reykjavíkurdeildar Sjálfsbjargar,
Ragnar Gunnar Þórhallsson mun
skrifa í þetta Fréttabréf pistil um þetta
og annað.
Hjá MS-félaginu, þar sem þau
John, Oddný og Gyða voru tekin tali
komu fram ýmsar hugmyndir, en þó
var þar áberandi að í bland vildu þau
sjá meira af léttu efni, krossgátu eða
myndagátu, meira af Hlerað í homum
eða öðm ámóta. Þau töldu líka of langa
pistla og greinarskrif af hinu illa, fólk
einfaldlega entist ekki til þess í erli
daganna að lesa slíkt, jafnvel þó góðar
væm greinamar.
Þá kom fram sú hugmynd að opna
vettvang í Fréttabréfinu með spum-
ingum og svömm um málefni öryrkja
og þau vom þegar með spumingar á
takteinum sem teknar eru inn í þetta
blað og reynt að svara þeim eftir föng-
um.
Þá vildu þau benda á nauðsynlegan
þátt félaganna í Fréttabréfinu, að þau
nýttu sér þennan vettvang s.s. frekast
væri kostur - ekki með löngum ræðum
eða greinum, heldur stuttum innskot-
um og ýmsu smálegu, sem öðrum þætti
gott að vita að væri að gerast.
Ritstjórinn tekur undir þessi sjón-
armið öll og leitaði næst á vit þess
fólks, sem stendur að Geðhjálp og bað
um álit þess. Hjálparhella ritstjórans
við útlit og ýmis önnur góð ráð - en
ekki svo dýr, Gísli Theódórsson, sem
stýrir með glæsibrag ritinu Geðhjálp,
vildi auðvitað koma því að, að hann
vildi sjá Fréttabréfið í betri búningi og
betur unnið faglega á flestum sviðum.
Þetta er ugglaust rétt, en má þó ekki
kosta of mikið, en áferð öll og blær
mætti örugglega vera betri - miklu
betri segir Gísli og við hlustum og
hlýðum - að vissu marki a.m.k.
Nú hjá forsvarsmönnum Geðhjálp-
ar kom einnig fram sú ábending, að í
hverju Fréttabréfi yrði opin umræða
um eitthvert tiltekið viðfangsefni - þar
sem tveir til þrír skiptust á skoðunum
eða þá að einn kæmi með kenningu um
tiltekið mál og annar væri til andsvara.
Formaður Geðhjálpar stakk upp á
dálki um persónuleg kynni - almenns
eðlis, þar sem leitað væri eftir félags-
skap eða sameiginlegri tómstundaiðju
(t.d. bridds, tafl) o.s.frv. - nú og auð-
vitað gæti þetta teygt sig yfir í annað
varanlegra og þá um leið viðkvæmara
og vandmeðfamara.
Ritstjórinn tekur undir þetta að
vissu marki, en dregur miðilshæfileika
sína svo í efa, að hann lætur kyrrt liggja
að sinni.
Og frá LAUF komu þessar línur:
Þórey Ólafsdóttir.
Hugmyndir um efni:
1. Regluleg kynning á starfsemi
aðildarfélaganna:
Aðildarfélögunum sé gefinn kost-
ur á (gert skylt) að kynna störf sín með
reglulegu millibili.
2. Faglegar greinar:
Aðildarfélögin séu hvött til að
senda inn faglegar greinar um málefni,
sem þau telja eiga erindi til lesenda.
3. Bréfakassi:
Fyrirspumaþjónusta. Virkja mætti
aðildarfélögin í að svara eftir því
hverju þeirra málefnið tengdist sem
um væri spurt.
4. Afþreyingarefni:
Auka svolítið af því inn á milli
e.t.v. krossgátu, myndasögur, gátur og
brandara. ’
5. Ritgerðasamkeppni:
Efna mætti til ritgerðasamkeppni
um margvísleg málefni m.a. um úr-
lausn ýmissa vandamála, sem fatlaðir
eiga við að etja. Verðlaun mætti veita
fyrir þær bestu og auk þess birta þær
sem góðar eru.
Kær kveðja
Þórey Ólafsdóttir, framkv.stj.
LAUF
Eg færi Þóreyju bestu þakkir.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
17