Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Side 19
sambýli. Varðandi frekari framþróun
sambýla stendur nú algjörlega á rekstr-
arfjárveitingum.
Þróunin verður ugglaust frá sam-
býlum yfir í eigin, sjálfstæð heimili
hvers og eins.
Fór svo yfir nýsetta reglugerð um
sambýli, sem um margt breytir miklu.
Greindi í lokin frá gleðilegri
þroskasögu þeirra fimm stúlkna, sem á
fyrsta sambýlinu voru.
Þá talaði Eggert Jóhannesson um
húsnæðismál fatlaðra.
I fyrsta lagi vantar heildstæða
stefnumörkun í húsnæðismálum fatl-
aðra almennt. Réttmætar kröfur ein-
staklingsins eiga þar að skipa æðstan
sess. Sýndi glærur máli sínu til stuðn-
ings m.a. um þróun mála á Suðurlandi.
Meginmarkmið sambýla á að vera
áfangastaður á leið út í lífið.
Ibúðarformið er alls ekki einvörð-
ungu fyrir hina duglegustu. Jafnrétti
og réttlæti þarf að ríkja. Kynnti hann
tillögu þeirra Amþórs Helgasonar um
lágmarkskröfur varðandi húsnæði
fyrir fatlaða. Sýndi hugsanlega út-
færslu hennar. Fór síðan í lokin yfir
fjármögnun þess húsnæðis, sem í
framtíðinni ætti að byggja fötluðum.
Spumingin er um jafnan rétt fatlaðra til
húsnæðis við hæfi - jafnréttis við hina
ófötluðu.
I stefnumótun húsnæðismála þurfa
sem allra flestir að taka þátt og beina
henni sem allra mest að hinum fé-
lagslega geira húsnæðiskerfisins. Eftir
heimsóknina í sambýlið og þjónustu-
íbúðimar sýndi Margrét Margeirs-
dóttir norska mynd, sem félagsmála-
ráðuneytið hefur nýlega fengið og
nefnist Min bolig - mit hjem.
Var hún einkar athyglisverð.
Eftir málsverð góðan hófust fram-
sögur um efnið tómstundir fatlaðra.
Ung stúlka, Ágústa Þorvaldsdóttir,
greindi frá klúbbi sem hún hefur
starfað í í vetur, með aðsetri í Tónabæ.
Þau gerðu könnun á því hvað þau
langaði til í tómstundunum. „Fyrir
okkur er ekkert gert, okkur vantar
félagsmiðstöð þar sem svo ótal margt
gæti verið.“
Langur og athyglisverður var listi
Ágústu um áhugaefni þeirra - má segja
flest milli himins og jarðar af ólík-
legasta toga. „Hjálpið okkur að gera
eitthvað", sagði Ágústa.,, Þið getið
það.“
Ragnar Gunnar Þórhallsson ný-
kjörinn formaður Sjálfsbjargar í
Reykjavík ræddi um viðhorf fatlaðra
til tómstunda.
Sama tómstundastarf og möguleika
fyrir fatlaða sem aðra, en til þess þarf
aðgengi, ferðaþjónustu, hjálpartæki
og sérstaka aðstoð.
En saman eiga fatlaðir og ófatlaðir
að sinna hvers konar tómstundaiðju,
og hvers konar skemmtunum.
Tómstundir fatlaðra eiga ekki að
vera afgangsmál. Atvinnuleysi meðal
fatlaðra eða takmörkuð atvinna þeirra
knýja á um betri tómstundatilboð þeim
til handa.
Helgi Hróðmarsson var svo síðastur
framsögumanna.
Tómstundir eru mannréttindi sagði
Helgi. En minnihlutahópamir gleym-
ast alltof oft. Meginkrafan er að fólk fái
að njóta sín, að hver velji að vi!d. Hann
greindi svo frá ástandinu hér sem
glögglega hefði komið fram á ráð-
stefnu um tómstundamál nýlega og er
þar greinlega margt mætagott á ferð-
inni. Minnti hann á hver nauðsyn væri
á því að hlusta á þá fötluðu, vilja þeirra
og langanir.
Fór svo yfir það, sem unnið var að
frumkvæði samtakanna eftir félags-
legu framkvæmdaáætluninni og hann
hefur áður greint frá í Fréttabréfinu.
Að lokum fór hann yfir fram-
tíðarsýnina og lagði áherslu á að
gleyma ekki einangruðum hópum s.s.
geðsjúkum. Á jafnréttisgrundvelli
verður að starfa. Það er skilyrði.
Að þessu loknu voru kynntar tvær
ályktanir um húsnæðismál fatlaðra og
niðurskurð ríkisvaldsins á félags- og
heilbrigðissviðinu.
Þá var orðið gefið laust um þau
erindi sem flutt höfðu verið og verða
þær umræður ekki raktar hér náið,
aðeins getið þess helsta. Hrafn Sæ-
mundsson sagði: Veruleikinn í máli
fatlaðra er virkilega andstyggilegur.
Ástandið víða ömurlegt. Hrafn er með
þarfan pistil hér í Fréttabréfinu nú.
Arnþór Helgason kvað nauðsyn bera
til þess að undirbúin yrði löggjöf um
„hjálparhellumar". Okkur vantar fé-
lagsmálalöggjöf og höfum gallaða
tryggingarlöggjöf, sagði hann.
Jóhann Pétur kynnti viðbótartillögu
við tillöguna um húsnæðismál, sem
varðar heimaþjónustu. Guðbjörg
Birna Bragadóttir lagði áherslu á
blöndun í húsnæðismálum - fatlaðir og
ófatlaðir hlið við hlið. Séreignastefnan
mætti ekki verða allsráðandi. Kristín
Jónsdóttir greindi frá námsstefnu í gær
um heimaþjónustu sveitarfélaga.
Vakti athygli á námskeiðum
Starfsþjálfunar fatlaðra, þar sem
aðsókn er geysigóð.
Ásta B. Þorsteinsdóttir kom fram
með viðbót og breytingar varðandi
opinberan spamað, bætti við mennta-
stofnunum. Guðríður Olafsdóttir
greindi frá frumvarpsdrögum, sem
fyrir liggja nú um heimaþjónustu, sem
Margrét Margeirsdóttir greindi svo
nánar frá - frumvarp um félagslega
þjónustu sem fatlaðir og samtök þeirra
ættu ótvírætt að koma inn í til áhrifa og
nánari mótunar. Fyrir kaffihlé kynnti
Helgi Seljan ályktun um trygginga-
mál.
Eftir kaffihlé kom Helgi Pálsson í
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
19