Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1990, Blaðsíða 14
Aðalfundur Geðhjálpar - Umbrot
Aðalfundur Geðhjálpar var haldinn
árla í desember á liðnu ári.
I skýrslu formanns kom fram að
mikil og umtalsverð aukning hafði
orðið á öllum umsvifum félagsins.
Réði þar mestu ráðning fram-
kvæmdastjóra í fullt starf nú á liðnum
síðsumarsdögum.
Mjög mikið er sótt til félagsmið-
stöðvarinnar og margir virðast eiga
þar sitt eina örugga athvarf. Fyrir-
lestrahald á vegum félagsins yfir
vetrartímann hefur heppnast sem
áður með ágætum miklum og aðsókn
verið með afbrigðum.
Geðhjálp - tímaritið kemur út með
sama glæsibrag og áður undir öruggri
handleiðslu Gísla Theodórssonar,
sem sannar enn og sýnir hverju
fórnfúst sjálfboðaliðsstarf fær áork-
að. Er félaginu mikill sómi að tíma-
ritinu, en Gísli á þar yfirburðaheiður
að baki.
Skyldi hann semja lög við ljóðin?
Nú er skrifstofa félagsins opin alla
daga og þar situr Sigrún Bára Frið-
finnsdóttir framkvæmdastjóri og
leysir ljúflega úr lífsins gátum svo
sem í mannlegu valdi stendur.
Greinilegt er að til hennar leita
margir þeir sem erfiðast eiga og lausn
ótrúlegustu mála lendir í hennar
höndum.
Allt sannar þetta síaukna þörf fyrir
aukna og virkari starfsemi, einhvers
konar þróun félagsmiðstöðvar yfir í
að vera endurhæfingarstöð einnig og
enn frekara athvarf um leið úti-
gangsfólki.
Leitað er nú til stjómvalda um enn
frekari aðstoð.
Innanhússblaðið Umbrot er einn
skemmtilegasti þáttur starfsins og til
að gefa lesendum Fréttabréfsins
hugmynd um efni þess, eru hér birtar
glefsur úr Umbroti - teknar af
handahófi til marks um gæði þess,
sem þar er að finna, en gestir félags-
miðstöðvarinnar eiga allt efni blaðs-
ins.
Ný stjórn var kjörin á fundinum og
skipa hana: Magnús Þorgrímsson,
Eyrún Kristjánsdóttir, Agúst Oli
Oskarsson, Pétur Hauksson, Helga
Bahr, Sigurlaug Sveinsdóttir.
Eins og fyrr segir er Sigrún Bára
framkvæmdastjóri, en hún hefur
oftsinnis lagt Fréttabréfinu lið.
Hér koma svo sýnishorn úr
Umbroti:
§
Höfundar eru: Ágúst Óli
Óskarsson, Gunnar Ólafur Jónsson,
Leifur Jóelsson, Manfreð
Jóhannesson.
Njótið þessa vel í næði.
BROT
Á meðal sídrekkandi
drullupolladjrkenda
gerðist ég
fljótt-rekinn
smakkari
forðum
Ágúst ÓIi
. §
I FRIÐARLEIT
Eg gekk niður stigann og út í
nóttina.
Bíllinn minn var mín eina von
burt úr þessum ófrið
sem gagntók huga minn.
Þangað réttutan
sem borginni sleppti
átti ég athvarf mitt
meðal hrauns og mosa
trjáa og blóma.
Eftir því sem ég nálgaðist
friðaðist hugur minn.
Svo rann stundin upp.
I einveru
samt í nánd gróandi lífs
helltist yfir mig
óútskýranleg kyrrð.
Um huga minn
flœddu jákvæðar minningar
og bjartar vonir
umframtíð.
Ágúst Óli
14
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS