Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1990, Síða 26
Matur er mannsins megin
Ágætu lesendur
Þessi matreiðsluþáttur er sá fyrsti
af vonandi mörgum þáttum, sem
birtast munu hér í blaðinu. Ég velti því
talsvert fyrir mér hvemig best væri að
setja þáttinn saman. Ætti að vera einn
þáttur um fiskrétti, einn um kökur,
annar um pottrétti o.s.frv. - og komst
að þeirri niðurstöðu að til þess að sem
flestir fengju eitthvað við sitt hæfi,
væri best að láta fjölbreytnina sitja í
fyrirrúmi og gefa uppskriftir að t.d.
einum fiskrétti,
einum kjötrétti,
einum rétti fyrir
þáerhvorkiborða
kjötnéfisk,og svo
einhverju sæt-
meti;eftirréttieða
tertu. Ekki er ætl-
unin að vera með
uppskriftir að
mjög fínum rétt-
um, sem oftkrefj-
ast dýrra hráefna
og mikils undir-
búnings,enég vil
leggja fremur
áherslu á það sem
flestum matar-
unnendum þykir
mikilvægast, og
það er að uppskriftir séu gagnlegar í
daglegri matreiðslu - þ.e. bragðgóðar,
spennandi, hollarog ódýrar! Vonandi
hafa sem flestir gagn og gaman að
uppskriftunum. Allar ábendingar og
óskir varðandi efni í þáttinn eru vel
þegnar.
Kær kveðja.
Iris Erlingsdóttir, ritstjóri
Gestgjafans.
SKYRBÖKUÐ ÝSA Á
HRÍSGRJÓNABEÐI
fyrir 2-4
Þessi réttur er afar góður og þægi-
legur eins og flestir ofnbakaðir réttir.
2 lítil eða 1 stórt ýsuflak
2 msk. smjör eða smjörvi
2 meðalstórir laukar, smátt saxaðir
2 dl hýðisgrjón
5 dl vatn
1 Knorr grænmetisteningur
22 g frosnar, grænar baunir
SKYRSÓSA
1 lítil skyrdós
4 msk. majones (nota má sýrðan
rjóma, en sósan verður ekki eins
bragðgóð)
2 tsk. karrí eða eftir smekk
1 tsk. sykur
2 tsk. sætt sinnep
2 dl. kaffirjómi
Roðflettið ýsuflökin og fjarlægið
beinagarðinn. Skerið flökin þversum
í 4-5 sm bita. Setjið bitana á disk,
hyljið með plasti og geymið í kæli þar
til hrísgrjónin eru soðin.
Hitið smjörið eða smjörvann (nota
má smjörlíki ef vill) á pönnu yfir
meðalhita. Athugið að hafa ekki of
mikinn hita ef þið notið smjör eða
smjörva, því smjörið brennur fljótt.
Bætið lauknum á pönnuna og látið
hann krauma í feitinni í u.þ.b. 5 mín.
eða þar til hann er byrjaður að brúnast.
Hrærið af og til í lauknum á meðan.
Hellið vatninu í pott ásamt grænmet-
isteningnum og látið suðuna koma
upp. Setjið grjónin í pottinn.
Lækkið hitann, setjið lok á pottinn
og látið hrísgrjónin sjóða í 35 mín.
Bætið frosnu grænu baununum í pott-
inn og hrærið saman við grjónin. setjið
lokið aftur á pottinn og látið grjónin
krauma í 5 mín. í viðbót eða þar til
vatnið er gufað upp úr pottinum. Ef
það vantar vatn þegar þið ætlið að
bæta baununum út í, setjið 3-4 msk. af
vatni um leið og þið setjið baunimar í
pottinn.
Lagið sósuna. Hrærið saman skyrið,
majonesið, karríið, sykurinn og
sinnepið í meðalstórri skál. Bætið
kaffirjómanum smátt og smátt saman
við og hrærið þar til þið hafið
kekkjalausa sósu.
Hitið ofninn í 175 C. Smyrjið
meðalstórt eldfast mót. Hellið hrís-
grjóna- og baunablöndunni í mótið,
jafnið. Leggið fiskbitana ofan á
grjónin. Dreifið
steikta lauknum jafnt
yfir fiskbitana. Jafn-
ið skyrsósunni yfir
fiskinn og hrísgrjón-
in. Bakið réttinn í
miðjum ofninum í
20-25 mín. eða þar
til rétturinn erfallega
brúnaður.
LAUGARDAGS-
POTTUR
fyrir 4
Þessi réttur er til-
valinn fyrir þá sem
ekki vilja standa yfir
pottunum á kvöldin
- hvort sem það er
laugardagskvöld eða
ekki! Hér má nota
ódýra kjötbita, hvort sem um er að
ræða lamba-, svína- eða nautakjöt,
því eldunartíminn er svo langur, að
kjötið verður mjög meyrt. Kjötið má
þó ekki vera mjög feitt. Gott er að
útbúa ríflegt magn af þessum rétti,
fry sta afgangana í hæfilegum skömmt-
um og hita svo upp í örbylgjuofni eða
í potti.
300-400 g beinlaust nauta-, svína-
eða lambakjöt, skorið í bita.
2 meðalstórir laukar, grófsaxaðir
2 meðalstórar gulrætur skomar í 1
sm sneiðar
1 rauð paprika, skorin í bita
1 græn paprika, skorin í bita
4 meðalstórar kartöflur með hýði,
vel hreinsaðar og skomar í teninga
1 hálfdós niðursoðnirtómatar, smátt
saxaðir, ásamt safanum
1 lítil dós tómatmauk (tómatkraftur)
1 stórt hvítlauksrif, pressað
Tekið ofan fyrir kokknum.
26
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS