Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1997, Page 16
Heyrnar- og
talmeinastöð Islands
Heyrnar- og talmeinastöð
íslands tók til starfa árið
1979. Aðsetur HTÍ er við
Háaleitisbraut 1 í Reykjavík, og er
opið þar frá 8 til 16 alla virka daga.
Stofnunin tók við
af heyrnardeild
Heilsuverndar-
stöðvar Reykja-
víkur, sem hafði
verið starfrækt frá
1966.
Heyrnar- og
________________ talmeinastöð
BirgirÁs íslands heyrir
Guðmundsson. undir heilbrigðis-
--------------- og trygginga-
málaráðuneytið, og skipar ráðherra
henni sérstaka stjórn. Eftirtaldir aðilar
eiga fulltrúa í stjórninni:
Menntamálaráðuneytið
Foreldra- og styrktarfélag
heyrnardaufra
Félagið Heyrnarhjálp
Félag talmeinafræðinga
og talkennara
Félag háls- nef- og eyrnalækna
Vesturhlíðarskóli
auk þess sem starfsfólk HTÍ tilnefnir
áheyrnarfulltrúa í stjórn. Ráðherra
skipar formann án tilnefningar.
I lögum um stofnunina frá í vor
segir: Ráðherra skipar framkvæmda-
stjóra stofnunarinnar til fimm ára að
fengnum tillögum stjórnar. Fram-
kvæmdastjóri ræður yfirlækni, að
fengnum tillögum stöðunefndar skv.
lögum um heilbrigðisþjónustu, og
aðra starfsmenn stofnunarinnar.
Yfirlæknir og yfirheyrnar- og
talmeinafræðingur annast faglega
stjórn innan stofnunarinnar. Við
stöðina starfa tveir læknar, sérfræð-
ingar í háls- nef- og eyrnalækningum,
auk yfirlæknis. Auk þess starfa við
HTÍ deildarstjórar heymardeildar og
talmeinadeildar, heyrnartæknar,
tæknimaður, kerfisfræðingur, hlustar-
stykkjasmiðir, ritarar og skrifstofu-
fólk.
Hvaða þjónustu veitir HTI?
HTI hefur samkvæmt landslögum
yfirumsjón með þjálfun og endur-
hæfingu heyrnarskertra og málhaltra,
heyrnartækjameðferð og heyrnar-
rannsóknum, í samráði við þá aðila
sem starfa á þessum vettvangi. Skal
stofnunin annast hvers konar þjónustu
við heyrnarskerta, sem og greiningu
talmeina, bæði meðal barna og full-
orðinna. Því miður hefur fjárskortur
takmarkað nokkur verkefnasvið HTI,
ekki síst hvað varðar umfang tal-
meinadeildar annarsvegar og endur-
hæfingu heyrnarskertra hinsvegar.
Verð og endurnýjun
heyrnartækja
Börn og unglingar að 18 ára aldri
fáheymartækiókeypis. Fólksemþarf
að nota tæki á bæði eyru greiðir 30%
af verðinu, en þeir sem nota aðeins
eitt tæki greiða 40% af verði. Mjög
kröftug tæki eru seld með hærri styrk
frá HTÍ.
Ef heyrn manns breytist þannig að
heyrnartæki hans verður ófullnægj-
andi, t.d. vegna versnandi heyrnar,
getur hann fengið nýtt tæki. Stundum
er hægt að fá nýtt tæki ef ný gerð
nýtist viðkomandi betur. Endurnýjun
tækja fer svo fram þegar tæki er orðið
það gamalt að það kemur ekki að
notum lengur.
Styrkur til heyrnartækjakaupa er
almennt ekki veittur oftar en á þriggja
ára fresti þeim sem orðnir eru 18 ára,
en á tveggja ára fresti þeim sem yngri
eru.
FM heyrnartæki til notkunar
í skólum
Stundum þurfa heyrnarskertir
nemendur á sérstökum heyrnartækj-
um að halda til þess að auðvelda tjá-
skipti í skólastofunni. Þetta eru
svokölluð FM heymartæki með sendi-
og móttökutækjum. Þessi tæki auð-
velda mjög heyrnarskertum bömum
að stunda nám í almennum skóla.
HTÍ úthlutar þessum tækjum í sam-
ráði við ráðgjafarþjónustu Vestur-
hlíðarskóla. Kennarinn ber senditæk-
ið í kennslustundum, en barnið hefur
móttakarann sem magnar rödd kenn-
arans.
Viðhald og rafhlöður
Elli- og örorkulífeyrisþegar með
75% örorku greiða 250 krónur fyrir
rafhlöður í heyrnartæki, en fólk á
aldrinum 18 til 67 ára greiðir hins-
vegar rafhlöður að fullu. Ekki hefur
verið tekið sérstakt gjald fyrir við-
gerðir, en innheimt er vægt viðgerð-
argjald þegar tækið er keypt (kr.800).
Rafhlöður eru seldar á HTI Háaleitis-
16