Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1997, Qupperneq 26

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1997, Qupperneq 26
færa fyrir því rök að þessi þjóð- félagshópur eigi að greiða fyrir þjónustu á sama hátt og aðrir, en þá þurfa launakjör þeirra líka að haldast nokkuð í hendur við launakjör í þjóð- félaginu. Þrátt fyrir að liður í breytt- um viðhorfum til fatlaðra á síðari árum sé að líta á greiðslur til þeirra sem ígildi launa en ekki örorkubætur þá virðast þær lágu fjárhæðir, sem er að finna í bótakerfi almannatrygg- inga, hins vegar taka mið af niður- greiðslu eða niðurfellingu greiðslna fyrir ýmsa nauðsynlega opinbera þjónustu. Hægt er að líta á hækkun heimilis- uppbótar í tengslum við auknar greiðslur afnotagjalds útvarps og sjónvarps sem skref í þessa átt, en þar sem hún dugir engan veginn til að vega upp aðstöðumun fatlaðra og ófatlaðra né launamun þeirra snýst þessi aðgerð upp í andhverfu sína. Síðustu misseri hafa æ fleiri opinber fyrirtæki verið einkavædd. Formið er misjafnt en þróunin er í eina átt, að starfsemi þessara fyrirtækja skuli lúta lögmálum markaðarins. Það hefur mikla þýðingu fyrir fatlaða að þjónustufyrirtæki, eins og til dæmis Póstur og sími, axli ábyrgð á þjónustu við alla þjóðfélagshópa og beri fjár- hagslega og skipulagslega ábyrgð á að hún sé opin og aðgengileg öllum. Sameiginlegt takmark Það er sameiginlegt álit á Norður- löndum að stefna beri að fullri þátt- töku og jafnrétti fyrir fatlaða. Þeir sem bera ábyrgð á að slíkt markmið náist eru opinberir aðilar, ríki og sveitarfélög. Sama áhersla er jafn- framt á Norðurlöndum á umhverfis- tengda þætti sem varða aðgengi fatl- aðra í víðasta skilningi. Við höfum notið góðs af norrænu samstarfi. Islendingar eru þátttakendur í norrænu samstarfi á jafnréttisgrund- velli og vilja bæði miðla og tileinka sér reynslu þeirra sem lengra eru komnir á sérhverju sviði. Þrátt fyrir okkar góðu lagasetningu hefur það komið í ljós að auðvelt er að kippa grundvellinum undan uppbyggingu og framþróun þegar stjórnvöld velja að stíga á hemlana við fjárlagagerð og málaflokkur fatlaðra reynist ekki forgangsmál. Á þessu ári var dregið úr framlögum til málaflokksins og ef það sama verður uppi á teningnum á næsta ári mun það hafa áhrif á fjárhæð tekjustofna sem fylgja munu verk- efnum til sveitarfélaganna. Þess vegna getur það gerst að niðurskurður fram- laga ríkisins til málaflokksins nú fylgi honum áfram eftir að verkefni hafa flust til sveitarfélaga. En nú er boðað að ríkissjóður verði rekinn með tekju- afgangi á næsta ári svo við skulum vona að við þær góðu aðstæður verði meira látið af hendi rakna til brýnna velferðarmála en í ár. Það er viðurkennt að með nútíma- tækniframförum, t.d. í læknisfræði. tjáskiptabúnaði, hjálpartækjum og þekkingu almennt þá sé það fyrst og fremst háð pólitískum vilja á hverjum tíma hvort fötluðum séu sköpuð skilyrði til atvinnuþátttöku eða ekki. Þrátt fyrir þessar framfarir og þrátt fyrir vaxandi þörf á vinnuafli hefur ekki miðað sem skyldi í þá átt að fjölga atvinnutækifærum fyrir fatlaða. Allar líkur eru því á að það verði verkefni sveitarfélaganna að brjóta múrana í atvinnumálum fatlaðra. Það er því alveg ljóst að þegar lögin um félagsþjónustu sveitarfélaga koma til umfjöllunar á Alþingi verða alþingis- menn að vaka yfir þeim lagaákvæðum sem tryggja jafnan rétt fatlaðra og stuðla að framþróun í málaflokknum. Flutningur verkefna milli ráðuneyta Á síðastliðnu ári fékk ég sam- þykkta tillögu á Alþingi þess efnis að nefnd yrði falið að kanna hvort flytja ætti félagsleg verkefni, sem í dag heyra undir heilbrigðisráðuneyti, yfir til félagsmálaráðuneytis. Tilefnið var meðal annars áform heilbrigðisráð- herra á sínum tíma um að fella niður fjárframlög til Bjargs, sambýlis fyrir geðfatlaða og til Meðferðarheim- ilisins við Kleifarveg, á þeim for- sendum að þarna væri ekki um heil- brigðisstofnanir að ræða. Ýmis félags- leg verkefni sem voru bam síns tíma heyra enn undir heilbrigðisráðuneytið og hafa þessvegna lent harkalega undir niðurskurðarhnífnum. Forsætisráðherra hefur nú skipað nefndina sem fjalla á um þessi mál og hann hefur jafnframt falið henni ann- að stórt verkefni sem ríkisstjórnin hefur samþykkt að tillögu mennta- málaráðherra. Það er að skoða verka- skiptingu milli ráðuneyta mennta-, félags- og heilbrigðisráðuneyta í málefnum fatlaðra. Það er þýðingar- mikið að ábyrgð ríkisins í málaflokkn- um sé skýr og enginn vafi leiki á hver hafí forræði mála á höndum. Þannig komumst við hjá því að hagsmuna- mál, eins og til dæmis túlkun fyrir heyrnarlausa, velkist óleyst í kerfinu. Ég hef verið skipuð í nefndina sem fulltrúi stjórnarandstöðunnar og bind miklar vonir við þetta nefndarstarf. Rannveig Guðmundsdóttir formaður þingflokks jafnaðarmanna 26

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.