Víkurfréttir - 04.06.2020, Qupperneq 14
107 nemendur útskrifuðust frá vorönn Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Fjölmenn útskrift þrátt fyrir margvíslegar áskoranir á veirutímum.
Salka Lind Reinhardsdóttir var dúx á vorönn Fjölbrautaskóla Suðurnesja
sem var slitið síðasta föstudag. Salka Lind var með 9,43 í meðaleinkunn.
Við útskriftina voru eingöngu viðstaddir útskriftarnemendur og kennarar
FS vegna fjöldatakmarkana COVID-19. Útskriftin var send út í beinni út-
sendingu á heimasíðu skólans og Facebook-síðu Víkurfrétta.
Að þessu sinni útskrifuðust 107
nemendur; 78 stúdentar, ellefu
luku verknámi, nítján útskrifuð-
ust af starfsnámsbrautum. Þá luku
átta nemendur prófi af starfsbraut
og fjórir af framhaldsskólabraut.
Nokkrir nemendur brautskráðust
af tveimur námsbrautum. Konur
voru 47 og karlar 60. Alls komu 80
úr Reykjanesbæ, fjórtán úr Suður-
nesjabæ, ellefu úr Grindavík og tveir
úr Vogum.
Dagskráin var annars með hefð-
bundnu sniði. Kristján Ásmundsson,
skólameistari, afhenti prófskírteini
og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir,
aðstoðarskólameistari, flutti yfirlit
yfir störf annarinnar. Júlía Mjöll
Jensdóttir, nýstúdent, flutti ávarp
fyrir hönd brautskráðra og Þor-
steinn Þorsteinsson, kennari, flutti
útskriftarnemendum kveðjuræðu
starfsfólks. Að venju var flutt tónlist
við athöfnina en að þessu sinni lék
Arnar Geir Halldórsson, nýstúdent, á
selló og Alexander Fryderyk Grybos,
nýstúdent, spilaði á píanó og söng.
Kristján Ásmundsson afhenti
námsstyrk úr skólasjóði en hann er
veittur þeim nemanda sem er með
hæstu meðaleinkunn við útskrift
og hlaut Salka Lind Reinhardsdóttir
100.000 króna styrk en hún var með
9,43 í meðaleinkunn. Salka Lind fékk
einnig 30.000 krónu styrk frá Lands-
bankanum fyrir hæstu einkunn á
stúdentsprófi.
Jónas Eydal Ármannsson, málm-
iðnakennari, og íslenskukennar-
arnir Kristrún Guðmundsdóttir og
Þorsteinn Þorsteinsson voru kvödd
á útskriftinni en þau voru að hætta
störfum eftir að hafa kennt við skól-
ann um árabil.
Við athöfnina veitti skólameistari
Katrínu Sigurðardóttur, kennara,
gullmerki Fjölbrautaskóla Suður-
nesja en hún hefur starfað við
skólann í 25 ár. Það er hefð að veita
starfsfólki skólans þessa viðurkenn-
ingu við þessi tímamót.
Salka Lind dúx
FS á vorönn
14 // VÍKurFrÉttir á SuÐurnESjum Í 40 ár
Fimmtudagur 4. júní 2020 // 23. tbl. // 41. árg.