Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.06.2020, Blaðsíða 62

Víkurfréttir - 04.06.2020, Blaðsíða 62
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta – Náðuð þið að halda einhver vormót og hvernig gekk það? Það var ákveðið í ljósi aðstæðna að setja mótahald á ís og völlurinn eingöngu opnaður fyrir almennt spil. Við höfum þó haldið nokkur innanfélagsmót sem hafa verið vel sótt og slegið aðsóknarmet í hverri viku í mótin. – Hver eru helstu markmið sumarsins og ertu bjartsýnn á komandi golftímabil? Númer eitt, tvö og þrjú er að hafa aðkomu að velli og völlinn sjálfan snyrtilegan og bjóða fólki upp á skemmtilegan og góðan völl. Sum- arið hefur farið virkilega vel af stað með blíðviðri dag eftir dag svo við hjá klúbbnum erum full bjartsýni á komandi mánuði. Framkvæmdastjórinn hefur fengið matarást á Höllu – Er andinn góður í félagsstarfi í klúbbnum? Já, það er virkilega góður andi í klúbbnum og mikil stemmning. Klúbburinn er ríkur af fólki sem gefur af sér til klúbbsins og aðstoðar eftir þörfum. Það er ekki sjálfsagt og er mjög mikilvægt. Það er ný stjórn tekin við starfinu og með henni jákvæðar breytingar eins og oft vill verða. Fyrir stjórn fer Sverrir Auð- unsson sem ber hag klúbbsins fyrir brjósti sem gerir hlutina þægilegri fyrir okkur hin. Það hefur orðið gífurleg fjölgun í nýliðahópnum okkar en um fimmtíu manns hafa sótt nýliðanámskeið sem við erum með í gangi núna. Margir reyndari kylfingar hafa líka verið að koma aftur til okkar svo meðlimum hefur fjölgað um hundrað manns á síðastliðnum vikum. – Hvaða þjónusta er í boði hjá klúbbnum? Við bjóðum upp á alla helstu þjón- ustu sem aðrir klúbbar hafa líka. Ég býð uppá einka- og hópatíma í golfkennslu. Við getum leigt kylfur og tekið á móti hópum í golf og mat í skálanum í kjölfarið. Við búum svo vel að hafa hana Höllu okkar í eldhúsinu þar sem hún töfrar fram hvern dásemdarréttinn á fætur öðrum. Kökurnar hennar eru svo sannarlega heldur ekki af verri end- anum og má segja að framkvæmda- stjóri klúbbsins sé með mikla mat- arást á henni. Það er einfaldlega ekki hægt að sleppa því að koma við í skálanum hjá henni eftir hringinn. Halla er mikill happafengur fyrir klúbbinn og við vonum að hún verði með okkur sem lengst, enda fer hróður hennar víða. – Hefur Golfklúbbur Grinda- víkur inniaðstöðu – er golf heilsársíþrótt í Grindavík? Eins og staðan er núna þá getum við ekki boðið upp á golf sem heilsársí- þrótt í Grindavík, því miður. Það strandar á því að klúbburinn hefur ekki þá aðstöðu sem við þyrftum til að geta haldið úti starfi á árs- grundvelli. Okkur vantar sárlega húsnæði fyrir vélarnar okkar og innanhúss æfingaaðstöðu. Æfinga- svæði klúbbsins er ekki gott en við erum með ákveðnar hugmyndir um hvernig þróunin gæti orðið hjá okkur á næstu árum. Það er hins vegar stórt verkefni, of stórt fyrir klúbbinn okkar en þetta er gerlegt með aðkomu bæjaryfirvalda sem við vonum svo sannarlega að verði raunin. Það skiptir Grindavíkurbæ auðvitað máli að hér sé blómlegt starf í golfinu því þar geta menn elst í íþróttinni. Börn geta byrjað sinn íþróttaferil hjá okkur og stundað golfið til æviloka – það er hagur bæjarins að fólk stundi hreyfingu og útivist og fái félagsskapinn sem fæst í gegnum sportið. Nýliðanámskeiðin hafa verið vel sótt hjá Helga Dan og hér má sjá að þeir slá ekki slöku við þótt veðrið sé ekki alltaf upp á það besta. VF-mynd: PKet Á Facebook-síðu Golfklúbbs Grindavíkur má sjá skemmtileg viðtöl við félagsmenn eins og þetta sem Atla Kolbein Atlason. 62 // VÍKurFrÉttir á SuÐurnESjum Í 40 ár Fimmtudagur 4. júní 2020 // 23. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.