Spássían - 2013, Síða 7

Spássían - 2013, Síða 7
7 Hún segir það fara vel saman að vinna sjálf að myndlist og vinna með öðrum í að setja upp sýningar. „Það heldur mér vakandi að vera alltaf að stússast í þessu þótt vissulega fari líka tími í stúss hérna sem ég hefði viljað nota á vinnustofunni. Þetta er minna rými en ég hafði í DaLí galleríi svo ég er með vinnustofu annars staðar núna. En á móti kemur að ég er með skrifborð hérna og smá aðstöðu og ég tek vatnslitina með mér og skissa oft hér. Þannig að ég er aldrei aðgerðarlaus.“  Þegar Dagrún er spurð að því hvort galleríið fylgi einhverri sérstakri stefnu hlær hún og segist hafa verið spurð að þessu þegar hún byrjaði með DaLí gallerí. „Ég svaraði: „Já. Enga einstefnu!“ Ég vil hafa þetta sem fjölbreyttast. Að hér komi inn ólíkir listamenn og nýir listamenn, hér séu málverk, gjörningar og innsetningar, skúlptúrar, samsýningar og einkasýningar. Opnunarsýningin hérna í Mjólkurbúðinni árið 2011 var ofboðslega flott innsetning Mireyu Samper og Ástu Vilhelmínu Guðmundsdóttur og nefndist Í sjávarmáli. Tónlistaratriðið var líka flott, George Hollanders spilaði á didjerídú og Þór Sigurðsson og rósa María Stefánsdóttir sungu kvæði. Hann er með mikla bassarödd og hún er sópran og þetta var afskaplega fallegt. Eftir það hafa margir fengið að sýna hérna og þegar listamenn útfæra sýningarnar á sinn hátt og eru einlægir, þá bara heppnast það vel. Ég stilli ekki fólki upp og segi því hvernig það eigi að gera hlutina. Fólk vinnur inn í rýmið á sínum forsendum. Og þetta rými er svo skemmtilegt, það einhvern veginn umfaðmar sýningarnar. Alveg sama hversu ólíkar þær eru. Það er eins og þær bara virki.“ Dagrún vinnur þó ekki alltaf á svo bókstaflegan hátt með mat. Fyrir sýninguna Staðfugl Farfugl bjó hún til skúlptúr sem var stór fugl. „Ytra byrðið er eggjaskurn og skúlptúrinn heitir „Skurn“. Hann átti bara að lifa af sumarið úti en eggjaskurnin er svo sterkt efni að hann lifði af sumarið og heilan vetur úti í garði undir skafli. Því endaði hann uppi á skúrþaki hjá nágrannanum – þótt hann sé orðinn sjúskaður. En mest hef ég verið að mála portrett af mat. Ég veit ekki hvers vegna. Mér finnst kannski bara svona gott að borða! Ég byrjaði með matarseríu haustið 2007 sem heitir Look and Cook og málaði ég uppskriftir. Og já, mér finnst líka mjög gaman að elda, á sýningunni var einnig að finna vídeóverk þar sem ég bjó til rabarbaragraut.“ Í júní opnaði myndlistahópurinn Höfuðverk sýningu í Mjólkurbúðinni en í sumar verða þar fleiri sýningar, t.d. á verkum Aðalheiðar Eysteinsdóttur, Helen Molin og Bergþórs Mortens, og fleiri listamenn verða með sýningar í ár.

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.