Spássían - 2013, Qupperneq 11

Spássían - 2013, Qupperneq 11
11 Í bresku sjónvarpsþáttaröðinni In the Flesh sem hóf göngu sína nú í vor eru uppvakningar skilgreindir sem veikir samfélagsþegnar sem þurfa meðferð. Hún dugar þó ekki betur en svo að þeir þurfa jafnframt að „dulbúast“ meðal hinna eðlilegu; mála fölt hörund sitt, fela undarleg augun með linsum og þykjast borða. Uppvakningar eru sem sagt skilgrein- dir sem afbrigðilegur og hættulegir samfélaginu og lækningin felst í því að draga úr hættu sem af þeim stafar (þ.e. að fá þá til að hætta að borða aðra samfélagsþegna) og kenna þeim að falla aftur inn í fjöldann. Þeir þurfa einnig að kljást við sjálfa hefðina þar sem allir trúa því að bit uppvaknings sé smitandi – sem er ekki reyndin – og sú trú elur á frekari ótta. Samkvæmt þessu er uppvakning mögulegt andóf sem afneitar því sem kallað er venjulegt líf, tvíeggja sverð sem býður upp enn meiri upplausn en einnig tækifæri til að breyta rétt í annað sinn. Í því samhengi má nefna að í bókinni Bjarna-Dísa tekur Kristín Steinsdóttir fyrir íslensku hjátrúna um hina hálfafturgengnu sem eru stórhættulegir og bráðnauðsyn- legt að drepa alveg áður en þeir ná að ganga fullkomlega aftur. Í þeirri bók var þjóðsa- gan um skelfilega vofu Bjarna-Dísu túlkuð sem saga af stúlku sem ætlaði sér meira í lífinu en eðlilegt þótti, var ósæmileg og neitaði að lifa lífinu eftir settum reglum - og var því auðvelt að setja í hlutverk uppvaknings. Í báðum verkum er það þröngsýni hinna lifandi sem reynist skaðlegust. Ekkert okkar vill vera hluti af andlitslausum, heila- dauðum massa, en úr uppvakningamyndum má lesa þau skilaboð að mögulega séum við öll uppvakningar sem þurfum uppvakningar við. Hér verður tvíræðni íslensku orðanna afar viðeigandi því það getur orðið flókið að skera úr um það hverjir eru þá raunverulegu uppvakningarnir; þeir sem standa utan við fjöldann eða þeir sem eru hluti af fjöldanum, og í hverju up- pvakning þeirra ætti að felast. Getur listin kannski bjargað okkur frá lífi uppvakn- ingsins, á hún að vekja okkur af doða hversdag- slífsins og gefa okkur eitthvað annað í staðinn? Sú hugmynd byggir á því að við lítum á listmenningu sem eitthvað sem við tökum öll virkan þátt í að skapa og neyta. Ef við störum hins vegar bara óvirk á það sem framreitt er fyrir okkur hverju sinni – og gleðjumst helst þegar það fellur að fyrirfram gefnum hugmyndum okkar um heiminn - er okkur ekki viðbjargandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.