Spássían - 2013, Qupperneq 19

Spássían - 2013, Qupperneq 19
19 öðru hverju út á sjóinn“ (9). En hin dæmigerða ímynd 20. aldar höfundarins – miðaldra karlinn sem lokar sig af til að hamra innblásin orð á ritvélina sína og horfa hugleiðandi út um gluggann inn á milli – er eitt af því sem er nú smátt og smátt að hverfa. Sögumaðurinn talar kaldhæðinn um niðursagaða „verönd sem var“ (83) á nágrannahúsi, þar sem hann situr eftir í sumarhúsabyggðinni um haustið eins og draugur fortíðar og reynir að skrifa skáldsögu. Í endurminningabókinni Veröld sem var gerði Stefan Zweig nostalgíska tilraun til að varðveita og endurskapa í texta tíðaranda æsku sinnar og ungdómsára, tíðaranda sem honum fannst hafa horfið með fyrri heimsstyrjöldinni. Og í Suðurglugganum er einnig að finna nostalgískan óð til horfinna gilda; óð til hins sérstaka sambands höfundar og ritvélar sem tapast hefur á tölvuöld. Sögumaðurinn vísar meira að segja í hefð sem skapast hefur fyrir slíkum sögum um samband höfundar og ritvélar: „Ef ég man rétt var það Paul Auster sem skrifaði heila bók um ritvélina sína og dásamaði hvað það væri gott að slá á lyklaborðið á henni“ (35). En þegar sú hefð er skoðuð nánar verður ljóst að höfundar hafa eytt að minnsta kosti jafn miklum tíma í að úthúða ritvélum og að dásama þær. Og strax á fyrstu síðum Suðurgluggans verður líka ljóst að samband sögumannsins við gömlu Olivetti-ritvélina sína einkennist af kvíða, togstreitu og ofbeldisfullum hugsunum. MAður Og VÉL Sögumaðurinn í Suðurglugganum er jafnvel enn meira lifandi dauður en sögupersónur Péturs Gunnarssonar því hann hefur lokað sig algjörlega af frá mannlegu samfélagi. Hann vísar stöðugt í önnur verk og höfunda þar sem sjálfsmorð og dauði koma við sögu og lætur sig jafnframt dreyma um að stúta ritvélinni sinni: Það kemur fyrir að ég hugleiði að fara með ritvélina yfir á höfðann og henda henni í sjóinn, jafnvel fara sjálfur á eftir henni. Skáldsögur eru myllusteinn um háls höfundarins. (12) Ofbeldishneigðin sem beinist gegn vélinni er vandlega samofin sjálfseyðingarhvöt, en rithöfundar lýsa ritvélunum sínum oft eins og nokkurs konar framlengingu á eigin persónuleika. John Updike á til dæmis að hafa sagt í viðtali að hann og Olivetti-vélin sem hann skrifaði allar bækur sínar á, og sem var framleidd sama ár og hann fæddist, væru að eldast og hrörna saman.3 Og í Suðurglugganum verður ritvélin eins og framlenging á huga höfundarins: Mér hefur verið sagt hvað eftir annað að það sé fáránlegt að ég skuli ekki nota tölvu við að skrifa. En ég er þrjóskur og vil ekki gefa eftir. Tölvan hefur svipuð áhrif á mig og ljósmyndavélar á frumbyggja Ástralíu: mér finnst hún taka sálina frá mér. Það gerir ritvélin ekki. Samt er það auðvitað svo, að ef hugurinn er ekki tilbúinn, þá er alveg sama hvort ég mundi nota ritvél, Plútóblýant, Parkerpenna eða tölvu, ekkert gerist. En ritvél, helst gömul ritvél án rafmagns, er það næsta sem ég kemst huganum. (32-33). Það getur því ekki boðað neitt gott þegar hann setur lokið á ritvélina og smellir „því aftur, með svipuðum hreyfingum og útfararstjóri skrúfar lok á kistu“ (15). Eða þegar: „[s]mellirnir í ritvélinni minna á byssuskot í hljóðu húsinu“, þótt það sé „bara loftriffill“ (11). Upp í hugann kemur sú saga að Hunter S. Thompson hafi átt það til að fara með ritvélina sína út í garð og skjóta á hana. Hann skaut svo á endanum sjálfan sig.4 próFLAuS í BLiNDFLugi Sögumaðurinn í Suðurglugganum lítur á sig sem fulltrúa eldri tíma og streitist á móti nýrri tækni. En aftenging hans við heiminn fyrir utan, við framrás tímans, breytingar og tækniþróun, verður síst til að efla sambandið við gömlu, traustu ritvélina: Höfuðið á mér er algerlega tómt. Þegar ég horfi niður á svarta ritvélina finnst mér hún vera óvinveitt lífvera, einhverskonar eiturkuðungur (23). Lýsingar sögumanns á hugarástandi sínu haldast gjarnan í hendur við lýsingar á ritvélinni, líkt og að með því að stara á hana eða snerta geti hann komist í snertingu við sjálfan sig. Það sem við blasir verður hins vegar æ ókunnuglegra og undir lokin er svo komið að ritvélin, það næsta sem kemst huga hans, er orðin tæki sem hann kann ekki að nota: Ég reyndi í morgun, tók lokið af ritvélinni og settist við borðið, en snögglega leið mér einsog ritvélin væri stjórnborð í flugvél hátt á lofti, og ég ekki með neinskonar flugpróf. Maður fær ekki skírteini út á hugarflug, slíkir flugtímar fást ekki metnir. Ég hef lengi stundað blindflug á þessari vél próflaus, en það verður sífellt áhættusamara. (101) DAuðAFöLir STAFir Eins og ráða má af tilvitnunum hér að framan ganga skáldskaparskrif sögumannsins í Suðurglugganum ekki sérlega vel. Sögupersónur neita að vakna til lífs og undir lokin er sögumaðurinn farinn að hamra jafnóðum x yfir hvern staf sem hann skrifar. Sem er reyndar óþarfi, því stafirnir sjást varla lengur á pappírnum.  Hinir dofnandi stafir eiga sér eðlilega skýringu. Þeir sem þrjóskast við að skipta gömlu ritvélunum út fyrir tölvu standa fyrr eða síðar frammi fyrir þeim vanda að blekið eyðist upp af ritvélarborðanum og að afar erfitt er að verða sér úti um nýjan. Indriði, sögupersónan í Íslendingablokk, lendir til dæmis í sama vanda er hann ákveður að semja minningargrein: ritvélin var á sínum stað inni í svenherbergisskáp, en letrið svo dauft að stafirnir voru nánast hvítir. Hann bað stúlkuna í upplýsingu að hafa uppi á ritvélabúð, en þær voru engar til lengur (155). Indriði handskrifar að lokum minningargreinina og fer með hana í eigin persónu á Morgunblaðið, sem veldur nokkrum vandræðum í stafrænum heimi. Sú sena Péturs Gunnarssonar er nokkuð kómísk, þótt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.