Spássían - 2013, Side 40

Spássían - 2013, Side 40
40 í þröngri stöðu, sama hvert horft er; Þjóðleikhúsið, Listasafn íslands, Þjóðminjasafnið, Sinfóníuhljómsveit Íslands, menningarhúsin, Íslenska óperan o.s.fr.v. Næsta skref væri því að fara hægt og bítandi að byggja þessar stofnanir upp aftur.“ grASróT Og STOFNANir Katrín segir að oft sé spurt hvort sé mikilvægara að styrkja grasrótarstarfið eða stofnanir en hún telji að hvorugt geti án hins verið. „Ég held til dæmis að fyrir sjálfstæðu leikhópana sé Þjóðleikhúsið nauðsynlegt. Þeir þurfa að einhverju leyti að vera viðbragð við þeirri stofnun, að gera eitthvað annað. Farsælt menningarlíf snýst að mínu viti um að viðhalda þessari heilbrigðu dýnamík á milli grasrótarinnar og þess sem við köllum stofnanir og hvorugt má vega þyngra en hitt. Þegar við horfum sögulega á Ísland finnst mér stofnanirnar hafa vegið meira, en með eflingu sjóðanna og kynningarmiðstöðva, sem eru eins og fagleg miðja fyrir hverja og eina listgrein, er kannski að myndast aðeins heilbrigðara jafnvægi þarna á milli. En stofnanirnar skipta líka máli. Ef við horfum bara á Sinfóníuhljómsveit Íslands, svo dæmi sé tekið, stærstu stofnun okkar á sviði tónlistar, þá er hún nauðsynleg að mínu viti fyrir allt tónlistarlíf landsins. Þótt langflestir hljóðfæraleikarar þar séu líka í einhvers konar frumsköpun er hún akkerið fyrir þessa tegund tónlistar.“ ErFiTT Að SkApA SAMFELLu Þó að auknir fjármunir hafi farið í verkefnastyrki er ljóst að grasrótarstarfsemi á víða erfitt uppdráttar og má nefna að sjálfstæð atvinnuleikhús hafa átt erfitt með að fá styrki. Katrín segir að orsökina megi finna í því umhverfi sem byggt hefur verið upp. „Ég heyri að fólk sem vill vera með sjálfstæðan rekstur í einhvern tíma kvartar undan því að fjármögnunin er alltaf svo óviss, það er ekkert öryggi, engir langtímasamningar um eitt né neitt. Fólk fær bara styrk til einstakra verkefna en ekkert umfram það, þannig að það verður erfitt að vera með samfellu í starfseminni. Hins vegar eru heimildir innan lagaramma sjóðanna til að gera lengri samninga og ef staða sjóðanna er styrkt má sjá fyrir sér að meira verði um slíka samninga. Þá tel ég líka að þar sem sveitarfélög leggja áherslu á listir og menningu sé auðveldara að tryggja samfellu í starfi með því að ríki og sveitarfélög leggi saman í púkk, t.d. þannig að sveitarfélög tryggi aðstöðu eða slíkt eins og víða er raunar gert.“ TiLBúiN Að NJóTA Katrín bendir á að Íslendingar sæki mikið í menningu og enn meira eftir hrun en fyrir hrun. „Hér heima að minnsta kosti. Kannski fóru Íslendingar bara til London hérna áður. En við sækjum tónleika og leikhús í meira mæli, og kaupum bækur. Viðhorf fólks er þó svolítið breytilegt eftir því hvaða listgrein á í hlut, finnst mér. Listgreinarnar virðast Íslendingum misaðgengilegar og myndlistin þykir stundum erfið að skilja. Það er einhvern veginn auðveldara fyrir okkur að kaupa það að fólk sé að skrifa bækur en að gera gjörninga, og þar komum við að sögunni og hefðinni. En almennt er fólk tilbúið að njóta listmenningar þótt það séu skiptar skoðanir um það hvernig eigi að standa að styrkveitingum til hennar eða hvort það eigi að borga fyrir hana yfir höfuð. Maður veltir því til dæmis fyrir Ég ætla einhvern tímann að skrifa glæpasögu. Ég ætlaði að byrja í fæðingarorlofinu síðasta en það var ekki nokkur einasti tími náttúrulega, það er svo mikil vinna að vera með börn. En hugmyndin er komin og ég er tilbúin með byrjunina.

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.