Spássían - 2013, Side 41

Spássían - 2013, Side 41
41 sér hvaða viðhorf hafi verið á ferðinni þegar Samson bauð þjóðinni á Listasafn Íslands. Þeir styrktu þá safnið um nokkrar milljónir svo það þyrfti ekki að taka aðgangseyri. En það er samt þjóðin sem á listasafnið. Þetta eru verkin okkar. Þannig að mér fannst sú áhersla, að þeir ætluðu nú að opna dyr safnsins og bjóða fólki inn, vera á villigötum. En þannig var náttúrulega umræðan í þessari bólu, þegar allir þessir karlar – eða aðallega karlar – voru orðnir svo miklir velunnarar samfélagsins. Og oft fyrir ótrúlega litlar fjárhæðir. Það getur líka verið hættulegt að treysta á slíka styrki og það er kannski lærdómurinn. Auðvitað er jákvætt ef atvinnulífið vill styrkja samfélagsleg verkefni en það er þá mikilvægt að það sé gert á samfélagslegum forsendum en ekki forsendum þeirra sem veita styrkina. Ef ég vil til að mynda styrkja vísindarannsóknir, þá er eðlilegt að það sé gert í gegnum sjóð sem er veitt úr, ekki af hagsmunaaðilum tengdum mér heldur af jafningjum, og að það sé gert með sama gæðamati og hjá opinberum rannsóknarsjóðum. Og við höfum auðvitað góð slík dæmi; við erum með Eimskipasjóðinn til að mynda við Háskóla Íslands, sem er auðvitað atvinnutengdur sjóður en er samt veitt úr á forsendum skólans. Og við höfum líka góð dæmi úr menningarlífinu – Kraum- sjóðinn og Auroru-sjóðinn svo dæmi séu tekin. Það er bara hið besta mál. En það er bara svo mikilvægt annars vegar að ríkið sé sjálft fært um að standa undir starfseminni, til að mynda þegar áföll verða og þessir aðilar draga sig út, og hins vegar að þetta sé á réttum forsendum gert. Það skiptir máli að efla nú samtal atvinnulífsins og menningarlífsins eftir hrun og finna þannig jafnvægi og forsendur sem báðir aðilar eru sáttir við.“ SkYNSAMLEg AðkOMA ríkiSiNS Katrín er með MA-próf í íslenskum bókmenntum og því er varla hægt annað en að fá hennar álit á stöðunni í íslenskri bókaútgáfu, sem hefur verið ótrúlega blómleg eftir hrun. „Við erum náttúrulega með þetta blandaða kerfi rithöfundalauna, bókmenntasjóðs sem er verkefnatengdur, og svo forlaga á prívatmarkaði. Þetta fyrirkomulag virðist ganga upp. Bókamessan í Frankfurt var líka mikil innspýting fyrir íslenska höfunda. Þannig að ég held að aðkoma ríkisins hafi á þessu sviði verið með mjög skynsamlegum hætti. En það er svolítið öfugsnúið að á sama tíma og það er alltaf metár í bókaútgáfu og –sölu, þá sýna rannsóknir að krakkar lesa minna. Við þurfum að huga betur að því hvernig við ræktum framtíðarlesendur. Á móti kemur, eins og Pétur Gunnarsson sagði í pallborðsumræðum sem ég stýrði fyrir jólin, að lestur í einrúmi er tiltölulega nýtt fyrirbæri. Læsi varð ekki almennt fyrr en undir lok 19. aldar. Og lestur á eftir að halda áfram breytast, með nýrri tækni og breyttu samfélagi. Þannig að kannski eigum við eftir að sjá breytingar í þessum geira.“ TiLBúiN MEð BYrJuN á gLæpASögu Sjálf segist Katrín vera lestrarfíkill. „Ég les á hverju einasta kvöldi og get ekki sofnað nema með bók. Það getur verið létt eða þungt, skáldsögur eða fræði, eitthvað nýtt eða gamalt. En ég næ varla lengur svona stundum þar sem maður situr og les í nokkra tíma og klárar heila bók. Ég fékk þó nokkur slík kvöld um jólin og það er eiginlega fátt betra. Síðustu bókajól voru líka ótrúlega sterk. Ég las til dæmis Auði Jónsdóttur, Auði Ólafsdóttur, Eirík Örn Norðdahl, Braga Ólafsson og Gyrði Elíasson. Ég hef reyndar alltaf þurft að halda mér svolítið við því ég stýri bókmenntakvöldi í Mosfellsbæ í nóvember á hverju ári. Ég hef gert það í sjö ár og það kallar á að ég kynni mér nýjar bækur.“  Katrín skrifaði MA-verkefni sitt um íslenskar glæpasögur og hefur alla tíð fylgst vel með þeirri tegund bókmennta. Henni finnst aðeins vera farið að hægjast um í íslensku glæpasögunum. „Þar var hraður uppgangur en fram til 1997, þegar Arnaldur Indriðason byrjar að skrifa, og Árni Þórarinsson og Stella Blómkvist árið eftir, þá var þetta fyrst og fremst Birgitta Halldórsdóttir sem skrifaði eina bók á ári, og svo einn og einn sem reyndi sig við formið; Viktor Arnar Ingólfsson, Ólafur Haukur Símonarson og fleiri, en þá afar stopult. Ég skrifaði BA-ritgerð árið 1999 og þá var þetta að byrja að breytast. Þegar ég skrifaði meistararitgerð árið 2004 var landslagið hins vegar orðið gerbreytt. Svo springur þetta algjörlega út í kringum hrun en nú er pendúllinn kannski aðeins að sveiflast til baka og jafnvægi að nást. Þetta var líka orðið svolítið yfirþyrmandi. Maður hitti stundum höfunda sem sögðu: „Ef maður er ekki að skrifa um morð þá bara er maður ekki með.“ Það var ekki um annað talað en glæpasögur og ég var dálítið roggin með sjálfa mig að hafa hitt á þetta viðfangsefni fyrir ritgerðirnar mínar, því það var algjör tilviljun að ég fór að stúdera þetta. Ég var stanslaust kölluð til sem sérfræðingur og það var voða gaman að vera svona

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.