Spássían - 2013, Side 42

Spássían - 2013, Side 42
42 í hringiðunni. Og ég held að hefðin hafi nú fest sig í sessi. Enn eru nýir höfundar að koma fram og ég hef grun um að það eigi fleiri höfundar eftir að bætast við – enda hef ég sagt það sjálf að ég ætla einhvern tímann að skrifa glæpasögu. Ég ætlaði að byrja í fæðingarorlofinu síðasta en það var ekki nokkur einasti tími náttúrulega, það er svo mikil vinna að vera með börn. En hugmyndin er komin og ég er tilbúin með byrjunina, sem byggir á minni reynslu. Ég er meira að segja komin með tilboð frá útgefanda líka – ég á bara eftir að skrifa bókina! Svo á kannski eftir að koma á daginn að ég er ekkert góður penni. Ég hugsa til dæmis mikið í plottum en það er þykir frekar gamaldags, glæpasögur nú til dags snúast frekar um karakter og persónusköpun. Ég er bara í svona flötum staðalmyndakarakterum og alltaf að hugsa um tímaáætlanir og fjarvistarsannanir! Ég skrifaði sérstaklega um Arnald í meistararitgerðinni og hann er einmitt með svo margt annað áhugavert en glæpinn. Hann er til dæmis með sagnfræðimenntun og það skilar sér. Maður er alltaf að lesa um raunveruleikann og það finnst mér voðalega skemmtilegt. Eins er með Viktor. Þegar hann skrifaði Flateyjargátuna byggði hann mikið á lýsingum á umhverfi, á sögu, á samfélagi, og það er auðvitað það sem gerir góða nútíma glæpasögu. En ég held að ég sé alveg glötuð í þessu,“ bætir hún við og skellihlær. Við hin munum væntanlega þurfa að bíða í nokkurn tíma eftir því að geta skorið úr um það, því þótt Katrín hafi látið af embætti sem ráðherra er hún nýorðin formaður stjórnmálaflokks og á ekki von á neinni lognmollu eða tækifærum til að sitja yfir glæpasagnaskrifum í bráð: „Mig grunar að það séu viðburðaríkir tímar framundan.“ annaígrænuhlíð komIn á RaFbók Hjá Emma.IS

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.