Spássían - 2013, Side 47

Spássían - 2013, Side 47
47 og eðlilegt sé. „Fólk kemur og fer og það ber með sér breytingar. En eins og víðar er lítið fjármagn sett í myndlistina og auðvitað mætti hlúa betur að Listagilinu. Þegar svona fyrirbæri eins og Listagilið hafa sannað sig finnst mér eðlilegt að settur sé meiri peningur í þau af hálfu bæjarfélaga til að þau geti lifað og dafnað. Auðvitað er þetta alltaf spurning um það hvaðan peningar eiga að koma, og um forgangsröðun, en mér finnst að það mætti leggja meiri áherslu á að þarna geti verið blómlegt starf. Annars held ég að fólkið í Listagilinu sé að gera eins vel og hægt er miðað við aðstæður.“  Aðalheiður rekur nú heimili og vinnustofu í Freyjulundi, sem er í nágrenni Akureyrar, en nýlega keypti hún einnig gamla Alþýðuhúsið á Siglufirði. „Það er líka heimili og vinnustofa, en þar bætist við lítið gallerí sem heitir Kompan. Þar set ég upp sýningar eftir aðra listamenn og þá er opið fyrir almenning. Það er ótrúlegur menningarbragur á þessum litla bæ, Siglufirði, en kannski helst að fjölga mætti myndlistarsýningum. Þess vegna langaði mig að setja upp þetta gallerí. Ég stend einnig fyrir alls konar menningarviðburðum einu sinni í mánuði; gjörningum, fyrirlestrum og ýmsum uppákomum, en ég hef alltaf gert það jafnt og þétt í gegnum tíðina. Mér finnst það vera hluti af starfinu og ég hef aðstöðu til þess í Alþýðuhúsinu. Í Freyjulundi hef ég reyndar einnig haft opið hús í desember en það kallar á annars konar heimilishald og er ekki hægt að gera allan ársins hring.“  Þótt tréskúlptúrar Aðalheiðar hafi verið mest áberandi hér heima vinnur hún með ýmis önnur efni og aðferðir en segist alltaf fjalla um það sama; hversdagsleikann. „Þegar ég hef sýnt erlendis hef ég gjarnan verið með eitthvað annað en tréskúlptúra því það er svo dýrt að senda þá til útlanda. Hér heima nota ég hins vegar tækifærið til að sýna þá. Og auðvitað hafa kviknað nýjar hugmyndir á leiðinni sem ég þurfti að ýta til hliðar því ég vildi klára þetta verkefni. En nú verður kannski tekinn nýr vinkill og stærra skref til hliðar.“  Sýningar Aðalheiðar í Listagilinu munu standa frá 22. júní til 11. ágúst. Myndir: Arnar Ómarsson

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.