Spássían - 2013, Blaðsíða 48

Spássían - 2013, Blaðsíða 48
48 SJÓNLISTAMIðSTÖðIN er regnhlífarheiti yfir starfsemi Listasafns Akureyrar, Ketilhússins og Deiglunnar, en Listasafnið á sér mun lengri sögu og fagnar 20 ára afmæli nú í ár. Það er, eins og flestir vita, staðsett í svokölluðu Listagili, umkringt galleríum og vinnustofum listamanna og Hannes bendir á að það hafi einmitt verið Gilfélagið, grasrótarsamtök myndlistarmanna, sem á sínum tíma þrýstu hvað mest á um stofnun listasafns. „Án listasafnsins væri þetta gil vart svipur hjá sjón. Ég held að safnið hafi óbeint nært grasrótarstarfsemina og hvatt til sýningarhalds. Það breytti í raun andrúmsloftinu hérna. Hér opnaði til dæmis veitingastaður, Kaffi Karólína, fyrsta bóhem kaffihúsið norðan heiða, um svipað leyti og safnið tók til starfa árið 1993. Safnið hefur nefnilega gert það sem grasrótin hafði ekki burði til að gera: Hér hafa alþjóðlegar stjörnur og allir helstu listamenn landsins sýnt verk sín, hér hafa verið gefnar út bækur, rit og katalógar. Safnið hefur þannig haldið uppi taktinum, en hér í Listagilinu koma svo margir aðrir þættir saman. Myndlistaskólinn á Akureyri er til dæmis hér fyrir ofan, við höfum öll þessi veitingahús við höndina og sal myndlistarfélagsins. Grasrótarsamtökin Populus tremula eru einnig með myndlistarsýningar en ekki síst uppákomur og tónlist. Svo erum við með stúdíó og vinnustofur hér út um allt.“  Listasafnið einbeitti sér að myndlist en Ketilhúsinu svokallaða var breytt í alhliða menningarmiðstöð með fjölnota sal, sem rekinn var af grasrótinni í Gilfélaginu. „Þetta er skemmtilegur salur að mörgu leyti og einstakur í íslensku menningarlífi hvað varðar hæð og lögun. Svo tók bærinn við rekstrinum þegar fólkið í Gilfélaginu hafði ekki lengur burði til að standa í þessu og var umtalsverðum fjármunum varið í að breyta Ketilhúsi og laga það að því hlutverki að vera fjölnotahúsnæði. ráðinn var starfsmaður til að halda utan um viðburði, tónleika og fleira. Aðstaðan var leigð út, ekki var um boðssýningar að ræða og menn þurftu að mestu leyti að setja upp sýningarnar sjálfir og sitja yfir. Ákvörðunin um Ketilhús er hins vegar tekin eftir að það liggur fyrir að Hof muni rísa sem húsnæði fyrir sviðslistir. Þegar Hof er svo opnað formlega árið 2010 verður alveg morgunljóst að Ketilhús hefur ekki sama tilgang sem fjölnota húsnæði. Hof er klárlega aðalstaðurinn fyrir tónlist, og nýtist líka fyrir sviðslistir almennt, svo ekki var lengur þörf fyrir Ketilhús á þeim forsendum.“  Opnun Hofs og breyttar forsendur í kjölfar efnahagshrunsins kölluðu á endurskipulagningu á safnastarfinu og var stofnun Sjónlistamiðstöðvarinnar liður í því. Þegar Hannes er spurður að því hvaða sýn hann hafi á framhaldið segir hann nokkuð erfitt að spá í framtíð sem sé „SjónLiStAMiðStöðin er nýtt Fyrirbæri oG SeM ný StoFnun er Hún í Mótun. ALLAr StoFnAnir ættu Að SjáLFSöGu Að verA í StöðuGri Mótun oG MenninGArStoFnAnir SÉrStAkLeGA, ÞAð er HLuti AF eðLi ÞeirrA,“ SeGir HAnneS SiGurðSSon, ForStöðuMAður SjónLiStAMiðStöðvArinnAr á Akureyri SeM vArð tiL 1. jAnúAr 2012. okkar hlutverk að næra listalífið Eftir Auði Aðalsteinsdóttur YFIRLESIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.