Spássían - 2013, Qupperneq 52

Spássían - 2013, Qupperneq 52
52 AKUrEyrArBær tók þá ákvörðun um síðustu aldamót að reisa menningarhús og var hafist handa við bygginguna árið 2006. Þá voru í gangi viðræður við stór fyrirtæki og bakhjarla en árið 2008 varð efnahagshrun og um leið breyttust allar forsendur. Menningarfélagið Hof var stofnað og samdi félagið við Akureyrarbæ um að annast rekstur hússins, sem hóf ekki formlega starfsemi fyrr en í ágúst 2010. „Hlutverk okkar er að annast daglegan rekstur; að setja upp og kynna dagskrá, markaðssetja þennan vettvang og þjónusta fasta leigjendur og þá sem koma inn með tilfallandi viðburði. Félagið er sambærilegt við Hörpu í reykjavík að því leyti að það er ekki okkar hlutverk, samkvæmt samningi, að framleiða viðburði og við erum ekki með fjármagn til þess. En við höfum þó átt frumkvæði í einstaka verkefnum. Það eru þá yfirleitt viðburðir sem snúa að því sem mætti kalla samfélagslega skyldu okkar; því hlutverki að búa til tengingar við samfélagið, til dæmis með því að standa fyrir opnum viðburðum sem eru yfirleitt gestum að kostnaðarlausu.“ ÞörF á SVONA HúSi Ingibjörg Ösp segir það enga spurningu að þörf hafi verið á svona húsi á Akureyri. „Við gegnum eiginlega tvöföldu hlutverki en ef við byrjum á því að horfa á þetta út frá menningarstarfsemi, þá vantaði sannarlega þessa miðstöð menningarlífs sem Hof er. Við viljum að allir angar menningar eigi einhverja tengingu hérna Hún fékk það verkefni að útfæra hugmyndina um rekstur menningarhúss sem var reist af stórhug í góðæri en opnaði í gjörbreyttu andrúmslofti eftir efnahagshrun og kreppu. „Við höfðum engar fyrirmyndir að líta til í upphafi. Á byggingartíma var húsið umdeilt og við gerðum okkur grein fyrir því að ef við ætluðum að fá fólk í lið með okkur yrði að nota aðrar leiðir en að kaupa heilsíður í dagblöðum. Við urðum að sýna fram á það í verki hversu mikilvægt það er að hafa fengið þessa aðstöðu.“ „Þetta er ekkert flókið. Menningarhúsið Hof er byggt fyrir almannafé og það eiga allir jafn mikið í húsinu. Mér finnst það vera okkar samfélagslega skylda að allir finni eitthvað við sitt hæfi í dagskránni og eigi erindi í húsið,“ segir Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Hofs. verðum að láta verkin tala eftir Auði Aðalsteinsdóttur YFIRLESIn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.