Spássían - 2013, Side 57

Spássían - 2013, Side 57
57 fyrstu verk hans voru andlitsmyndir í anda rembrandt og Odd er þekktur fyrir myndir af sjálfum sér í ýmsum hlutverkum. Þegar nýir nemendur koma stingur hann oft upp á því að þeir máli sjálfsmyndir. Hví? „Þú ert ódýrasta módel sem völ er á. Margir málarar stytta sér leið með því að mála eftir ljósmyndum, en það takmarkar lærdómsferlið. ef þú málar röð af sjálfsmyndum vel mun fólk dást að verkum þínum og þá verður auðveldara að fá önnur módel til að sitja fyrir.“ raunar málar Odd aðeins mótív úr eigin lífi eða ímyndunarafli. Jafnvel þegar hann málar stór dýr eins og hesta. „Ég hef séð margar fínar myndir eftir ljósmyndum,“ segir hann „en mestu meistararnir máluðu ekki gegnum neinar linsur. rembrandt og Leonardo da Vinci forðuðust myndavélavandann. Þeim fannst það heftandi. Margir samtíðamenn þeirra notuðu ljósmyndatækni og stundum mjög vel. en það er miklu meira nærandi að fylgjast með náttúrunni með eigin augum.“ Yfir daginn tekur Odd stutt hlé til þess að súpa á kaffi og virkja hópinn. Hann snýr sér að nemendunum, gefur ungum fígúratívum málara ráð um hvernig eigi að rata í veröld sem er full af gildrum og áskorunum. „ef eina markmið þitt er að „finna þig“ og vera „frumlegur“ þá endar þú í tómu, myrku herbergi. Þessi algengu boðorð eru villandi. Í stað þess ættir þú að finna meistara úr listasögunni, meistara sem hæfir þínum persónuleika. Ég var einu sinni með nemanda sem líktist el Greco. Ég sagði við hann: „Leita þú til el Greco, gerðu eins og hann.“ Nú er hann góður málari. Ég sé framfarir á hverjum degi.“ að flytja hefðina áfram og kenna tæknina er mikilvægt ferli fyrir Odd, hann færir áfram þekkingu til sinna nemenda – þekkingu sem hann fékk í nærandi samskiptum sínum við eldri listamenn. „Ég átti lærimeistara í Noregi og annan í ameríku. Í Noregi var það myndhöggvarinn Joseph Grimeland og í ameríku málarinn andrew Wyeth. Ég hef sagt sumum af ungu nemendum mínum að vera í tengslum við fólk af öllum aldurshópum, það gefur þeim víðari sýn, meira rými.“ Odd reynir að þróa með nemendum sínum tilfinningu fyrir hinu eilífa, sem gerir þeim kleift að stýra sjálfir sinni listrænu leið, fullir sjálfstrausts og án ótta. „Það sem er mest um vert, það sem hefur mesta gildið er það sem er í raun ekki hægt að færa í orð. en það er hægt að upplifa það. að upplifa framandi menningarheim er eins og að vera í tómarúmi. Þar finnur þú gæði allra mestu meistaraverka heimsins. Þú heyrir engar fregnir að heiman, þú ert fjarri heimahögum þínum. eilífar tilfinningar fyrir eilífum gildum eru mesta vegsemdin. Kannski verður þú einmana; kannski ertu ekki tengdur í félagslegu hjörðinni þinni. en þú munt vera raunverulega lifandi í undarlegum, hættulegum heimi.“ Það er óumflýjanlegt að listamaður eða málari myndi sér stigveldi, komi sér upp vettvangi þaðan sem hann metur og aðgreinir sjónræna eiginleika hvers verks. Odd útskýrir: „Það eru þrjár víddir: fyrst er sú egósentríska. flestir listamenn nútímans tilheyra þeim hópi. Þeir vilja finna sjálfa sig og á sama tíma vera hluti af nútíma samfélagi. Þess vegna eru þeir ekki ábyrgir fyrir þekkingu á fortíðinni. Þeir eru, að sumu leyti, þeir einu sem nokkru sinni hafa fæðst, og horfa á allt með augum barnsins: þetta er allt fyrir mig.“ Næsta stig er hið geosentríska: „Þar sér listamaðurinn veröldina í kringum sig og reynir í einlægni að mála hana fallega. allt í náttúrunni hefur sama gildi og verður DAViD MOLESkY Er BANDAríSkur MáLAri. HANN Lærði HJá ODD NErDruM á íSLANDi Og í NOrEgi á áruNuM 2006-8, HANN HEFur HALDið SýNiNgAr VíðSVEgAr uM BANDAríkiN Og í EVrópu. HANN Býr í NEw YOrk. davidmolesky.com odd er þekktur fyrir myndir af Sjálfum Sér Í ýmSum hlutverkum. þegar nýir nemendur koma Stingur hann oft upp á þvÍ að þeir máli SjálfSmyndir. hvÍ? „þú ert ódýraSta módel Sem völ er á.“ „

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.