Spássían - 2013, Side 62
62
Eftir Þorgeir Tryggvason
tvíeggjað sverð
dystópíunnar
Karma fyrir fugla
Þjóðleikhúsið
Höfundar
Kari Ósk Grétudóttir, Kristín Eiríksdóttir
Leikstjórn
Kristín Jóhannesdóttir
Leikmynd og búningar
Anna Rún Tryggvadóttir
Lýsing
Halldór Örn Óskarsson
Leikarar
Herdís Þorvaldsdóttir, Hilmir Jensson, Kristbjörg Kjeld,
Maríanna Clara Lúthersdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Þorsteinn Bachmann og Þórunn Arna Kristjánsdóttir.
EFTIr að Kristín Jóhannesdóttir fór að helga leikhúsinu
krafta sína á kostnað kvikmyndanna hefur hún fengið
mikið af krefjandi verkefnum og alla jafna skilað þeim
með miklum sóma. Frá endurmatssýningum hennar á
helstu leikritum Jökuls Jakobssonar í Borgarleikhúsinu
um rómaðar uppfærslur hennar á nýjum verkum Sigurðar
Pálssonar að nýjabrumssýningum ungra leikskáldkvenna
í Þjóðleikhúsinu hefur orðið til sviðsleikstjóri með skýran
stíl, einn fárra slíkra sem við eigum.
Ekki hef ég séð allt sem Kristín hefur sett upp og að
mörgu leyti fer smekkur okkar ekki saman. Engu að síður
kann ég að meta margt sem hún gerir og þori að fullyrða
að Karma fyrir fugla er hennar besta verk. Hún dregur
að mér virðist allt það sterkasta fram úr skáldlegum
textanum, fínstillir óhugnaðinn af smekkvísi þannig
að enginn missir af neinu með því að loka augunum
og dregur fram hjá leikurum sínum framúrskarandi
persónusköpun.
Eitt af því sem skilur á milli í leikhússmekk okkar
Kristínar er að ég hef ekki eins mikla trú og mér virðist
hún hafa á gildi tákna í umgjörð og möguleikum stílfærðra
hreyfinga og dans til að miðla merkingu. Hér eru þessi
atriði í bakgrunni. Leikmyndin er falleg og þénug og
hverjum og einum áhorfanda frjálst að lesa úr henni eða í
hana það sem hann lystir.
Leikararnir þóttu mér hreint afbragð heilt yfir. Þó
Þorsteinn Bachmann, Ólafía Hrönn og Kristbjörg Kjeld
væru að mörgu leyti á heimavelli í hlutverkunum sínum
var einhver ferskleikablær yfir því sem þau gerðu.
Maríönnu Clöru hefur maður ekki séð alveg eins mikið
og hún var stórfín. Til Hilmis Jenssonar hef ég lítið séð
áður, en hann var skuggalega sannfærandi í sínum
ofbeldismannarullum.
Það gladdi mig svo sérstaklega að sjá Þórunni Örnu fást
við bitastæðara verkefni en í Jónsmessunótt og standa
fyllilega undir því með fallega innlifaðri túlkun á stúlkunni
sem verður hið óhjákvæmilega fórnarlamb heimsins sem
leikritið lýsir.
Innkoma Herdísar í lokin var bæði fögur og snjöll.
Blessuð sé minning hennar.
Það er kraftur og lýrík í verki leikskáldanna, textanum
og atburðarásinni. Tilsvör og ástandslýsingar persónanna
lifa með manni. Formið er frjálslegt og að einhverju leyti
ó-leikhúslegt. Ekki til neinna vandræða samt. Enginn mun
heldur fara í grafgötur með hvaða erindi höfundarnir eiga
við gesti sína.
Af hverju finnst mér þá þetta ekki alveg hafa tekist?
Mögulega vegna þess að þær hafa kosið að koma á
framfæri boðskap sínum um mansal og feðraveldi með
aðferðum dystópíunnar. Það er vissulega sjokkerandi
að sjá hvíta efri-millistéttarmenn (og konur þeirra) selja
ofbeldismönnum dætur sínar, og svo þegar það gengur
ekki, í hendur kynlífsþrælahaldara. En viðbrögðin eru
náttúrulega bæði „djöfull er þetta ógeðslegt“ (sem það
er) og „hjúkkitt að þetta sé ekki svona hjá okkur“ (sem er
líka rétt).
Ég er ekki viss um að þetta sé sérlega áhugaverður
eða árangursríkur tónn að tala í við það meðvitaða
millistéttarfólk sem kaupir sér miða á sýningar sem heita
Karma fyrir fugla og fjalla um mansal og kynlífsþrælkun.
Það þarf ekkert að sannfæra okkur um þá martröð sem
þessi heimur er með því að einfalda hann niður á stig
boðskapsþrunginna barnaleikrita. Það er hreinlega pínu
niðurlægjandi.
Það sem bjargaði sýningunni frá því að fá a.m.k.
þennan áhorfanda upp á móti sér var annars vegar hversu
frábærlega hún er unnin og leikin og hins vegar senurnar
með fórnarlömbunum þremur. Þar nýtur ótvíræð
skáldgáfa höfundanna sín best, hún lýsir upp fyrir okkur
sálarangistina og vonleysið sem hefur brotið niður og
endurbyggt í afskræmdu formi persónurnar sem Ólafía og
Kristbjörg túlka svo vel og við sjáum hvert stefnir með þá
ungu sem Þórunn sýnir okkur.
Karma fyrir fugla breytti ekki sýn minni á heiminn en
það er firnagott leikhús. Það er nóg fyrir mig.
Ljósmyndir: Þjóðleikhúsið