Spássían - 2013, Qupperneq 64
64
Kjaftasaga um koss ýtti þér út í að gera sjálfri þér
þetta?
Nei. Kjaftasaga um koss eyðilagði minningu sem
ég hafði vonað að yrði einstök. Kjaftasaga um koss
kom af stað sögum sem annað fólk trúði og brást
við. Og stundum getur kjaftasaga um koss hlaðið
utan á sig eins og snjókúla (bls. 35-36)
en það var fleira sem gerðist en sakleysislegur koss:
Orðrómur, háðsglósur, lygar, orðspor og meira að segja
nauðgun. allt tengist þetta innbyrðis. „allt … hefur áhrif á
allt annað“ (204).
framkoma okkar í garð annarra og áhrifin sem gjörðir
okkar hafa skipta líka miklu máli í Bekkjarrósinni. Charlie
eignast kærustu, Mary elizabeth, en þótt hann geri allt
hvað hann getur til að þóknast henni reynist það mjög
erfitt vegna þversagnakenndra krafa hennar og óska. að
lokum hætta þau saman og nokkrum mánuðum síðar lýsir
hún Charlie sem karakter- og sálarlausum einstaklingi.
Charlie er afskaplega sár en áttar sig þó á tvennu: Í fyrsta
lagi sér fólk og metur annað fólk út frá eigin hagsmunum
og hvaða áhrif það hefur á það sjálft, án þess að hugsa um
tilfinningar þess; rétt eins og Mary elizabeth gerði með
framkomu sinni í garð Charlie. Í öðru lagi áttar hann sig
á því að þótt hann reyni að haga sér eins og hann telur að
aðrir vilji, og sé ekki endilega hann sjálfur, hefur það ekki
alltaf góðar afleiðingar.
framkoma annarra í garð Hönnu leiðir til þunglyndis
hennar og lokum sjálfsvígs. Skólafélagar og vinir hafa
ekki reynst henni vel og hið sama er að segja um Charlie
í upphafi bókar. Þá skrifar hann fyrsta bréfið til hins
nafnlausa viðtakanda einmitt vegna þess að hann er að fara
að hefja menntaskólagöngu sína og er, eins og hann orðar
það, „mjög hræddur“ (14). Þessi ótti reynist þó ástæðulaus
og Charlie eignast vini, systkinin patrick og Sam, og finnst
hann í fyrsta skipti eiga einhvers staðar heima, tilheyra
hópi í stað þess að standa upp við vegg á meðan aðrir
skemmta sér. Hann lærir líka, einkum í gegnum patrick,
að stundum verður maður hreinlega að vera með, gera
eitthvað:
„Hugsarðu alltaf svona mikið, Charlie?“
„Er það slæmt?“ Ég vildi bara að einhver segði mér
sannleikann.
„Ekki endilega. En það er bara þannig að stundum
notar fólk það að hugsa sem afsökun fyrir því að
taka ekki þátt í lífinu.“
„Er það slæmt?“
„Já“.
„Ég held samt að ég taki þátt. Heldurðu það ekki?“
„Thja, dansarðu á þessum böllum?“
Charlie neyðist til að viðurkenna að það geri hann ekki.
að danSa
Charlie horfir á lífið án þess að taka þátt en það var aldrei
horft á Hönnu baker. enginn talaði við hana, hlustaði
eða skildi og smám saman gafst hún upp. Þegar Clay
hefur hlustað á allar spólurnar ásakar hann sjálfan sig fyrir
heigulsháttinn, fyrir að hafa verið: „Of hræddur til að tala
við hana aftur. Of hræddur til að reyna“ og hann hugsar
með sér að með dauða hennar „hurfu tækifærin að eilífu“
(287). Þó er von. Á sama tíma og Clay lítur í kringum sig í
skólanum og sér draug Hönnu í hverju horni kemur hann
auga á Sky, stúlku sem horfir niður fyrir sig, sveigir framhjá
fólki og biðst afsökunar:
Í strætó í gærkvöldi fór ég án þess að tala við Sky.
Mig langaði að tala við hana, ég reyndi það. En ég
leyfði henni að láta samtalið deyja út. Á síðustu
árum hefur hún lært að forðast fólk. Alla.
Ég færi mig frá skápnum og horfi á eftir henni.
Mig langar að segja eitthvað, kalla nafn hennar,
en ég kem ekki upp orði.
Eitthvað segir mér að láta eins og ekkert sé, snúa
mér undan og þykjast upptekinn. Gera hvað sem er
annað þar til næsti tími byrjar.
En Sky gengur einmitt eftir ganginum þar sem
ég horfði á eftir Hönnu hverfa í síðasta sinn fyrir
tveimur vikum. (289)
Clay tekur ákvörðun. Hann ætlar ekki að horfa upp á Sky
breytast í aðra Hönnu og hann leggur af stað á eftir henni,
þrátt fyrir að vera hræddur, feiminn og óttast mistök – en
hann finnur líka fyrir annarri tilfinningu, von.
Það er líka von, í bland við ótta, sem einkennir síðustu
síður Bekkjarrósarinnar. Undir lok bókar kemur ljós að
Helen, uppáhaldsfrænka Charlies, hafði misnotað hann
árum saman og að þessu komast lesendur þegar Charlie
KOSTIR þESS að VERa BEKKJaRRóS er Að ForMinu tiL
HeFðbunDin ÞroSkASAGA eðA biLDunGSroMAn oG
AuGLjóS áHriF eru í Henni Frá BJaRGVæTTINuM í
GRaSINu – SeM CHArLie LeS oG tALAr uM í bókinni.
rAunAr MinniSt CHArLie á FjöLDA SkáLDSAGnA
oG kvikMynDA LíkA SeM HAFA áHriF á HAnn, HAnn
LeS eðA SkriFAr jAFnveL ritGerðir uM Þær. HÉr
Má neFnA PéTuR PaN, HaMLET, THE GREaT GaTSBy,
WalDEN oG TO KILL a MOcKINGBIRD.