Spássían - 2013, Side 66

Spássían - 2013, Side 66
66 YFIRLESIÐ Í FrAMANDi HEiMi Oblivion kom í kvikmyndahús í apríl 2013 og var leikstýrt af Joseph Kosinski. Í upphafi kemur fram að mörgum áratugum eftir að geimverur eyða jörðinni í stríði reynir mannkynið að bjarga þeim auðlindum sem enn eru nýtanlegar áður það flytur sig um set og stofnar nýlendu á Titan. Jack og Julia tóku að sér fimm ára verkefni við að hafa eftirlit með framkvæmdum og sá tími er næstum á enda. Á daginn ferðast Jack um berangurslegt landið í glæsilegri flaug, gerir við róbota og reynir að forðast illvígar geimverur á meðan Julia stjórnar för hans undir leiðsögn yfirstjórnar sem er staðsett á sporbaug um jörð. Á kvöldin elskast þau í nýtískulegu glerhúsi, taka sér sundsprett í glerlaug ofar skýjum og hlakka til að hefja nýjan kafla í lífi sínu á nýlendunni. Hvorugt þeirra man nokkuð frá því áður en þetta fimm ára verkefni hófst enda minniseyðing nauðsynleg varúðarráðstöfun ef geimverurnar skyldu ná að handsama þau. Líf þeirra er einfalt, í föstum skorðum og markmiðin skýr. Þar til einn dag er björgunarhylki fellur til jarðar og kemur tilveru þeirra í uppnám. Veröld þeirra Jacks og Juliu er eins og klippt út úr lífsstílstímariti; áferðarfalleg og fullkomin. Julia er hin fullkomna kona, Jack hinn fullkomni karl. Þau njóta aðstoðar háþróuðustu tækni og búa sig undir dvöl á annarri plánetu. Lífið er bæði spennandi og fyllt fyrirheitum. En undir yfirborðinu er Jack ekki ánægður. Í draumum birtist honum önnur kona en sú sem hann deilir nóttunum með og hann kemur upp fábrotnu heimili í leyndum kofa í djúpum dal. Þar hlustar hann á rokk og æfir sig í körfubolta og reynir að gleyma tæknidrunum og hetjudáðum sem eru hluti af hans daglega lífi. Innst inni er Jack fábrotinn maður sem sækist eftir hinu einfalda og örugga og afneitar hinu vísindalega. Hamingjan er fólgin í því sem er þægilegt og kunnuglegt –: Góðri bók, vinsælli íþrótt, mat sem hann veiðir sjálfur, eiginkonu og barni. Og hann er tilbúinn að fórna hverju sem er til að gera þann draum að veruleika. Þú Og Ég Við EruM kLóN Árið 2009 kom út kvikmyndin Moon í leikstjórn Duncan Jones. Þar segir frá Sam sem er að ljúka þriggja ára vinnutörn á tunglinu og bíður eftir að komast aftur til jarðar að hitta konu sína og barn. En áður en að því kemur vaknar hann við þann vonda draum að allt hans líf er blekking. Þegar hann lendir í slysi við störf sín er annar Sam vakinn úr geymslu og látinn taka við störfum hans. Og það sem verra er – þetta er ekki í fyrsta sinn og hvorugur þeirra hinn upprunalegi Sam. Þessar tvær útgáfur af sama manninum reyna síðan að finna leið til að ná áttum og komast út úr þessum ógöngum.  Moon og Oblivion eiga margt sameiginlegt þótt umfang og stefnur þessara tveggja mynda séu gjörólíkar. Báðar fjalla þær um menn sem hafa tekið að sér einhæf störf fjarri mannabústöðum, starfstíma þeirra er senn lokið, þeir láta sig dreyma um betra líf sem bíður þeirra á nýjum stað og báðir vakna þeir upp við þann vonda draum að þeir eru klón og endurnýjaðir með reglulegu millibili. Bæði fortíð þeirra og framtíð er blekking ein og það er undir þeim komið að gera eitthvað til að breyta annars óumflýjanlegum örlögum sínum. Hvernig þeir fara að því og hversu Hversdagslegar hetjur og öflin sem stjórna þeim ÞAð er ekki Lítið á HetjurnAr LAGt. Þær bjArGA prinSeSSuM oG pLánetuM, kónGSveLDuM oG kApítALiSMA – oG biðjA uM Lítið í StAðinn. AðeinS viSSunA uM Að Þær eru Að vinnA ÞArFt verk oG HeiMinuM HeFur verið bjArGAð – uM Sinn. eðA HvAð? kAnnSki viLjA Þær bArA venjuLeGt LíF oG Að ráðA örLöGuM SínuM. eF Hin StjórnAnDi öFL LeyFA. draumur hins djarfa manns þessi grein inniheldur SPOILEr Eftir ástu gísladóttur

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.