Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Síða 16
16 20. mars 2020FRÉTTIR
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
COVID-19 og neytendur
Hvaða rétt átt þú í þessari fordæmalausu stöðu?
V
ið lifum á fordæmalausum tímum. Þessa setningu
höfum við heyrt trekk í trekk undanfarnar vikur.
Hversdagsleikinn hefur verið hrifsaður úr hönd-
um okkar og sjá margir fram á erfiða tíma sökum
veikinda, sóttkvíar, atvinnu- og tekjumissis. Neytendur eru
því margir komnir í strembna stöðu. Hér eru nokkur at-
riði sem íslenskir neytendur geta haft í huga á þessum for-
dæmalausu tímum, ekki er um tæmandi upptalningu að
ræða og eru lesendur hvattir til að sækja sér upplýsingar
á vefjum yfirvalda, stofnana, stéttarfélaga og trygginga-
félaga svo dæmi séu tekin.
Bankar bjóða greiðslufrest
Þrír stærstu bankar landsins hafa ákveðið að bregðast við
ástandinu og bjóða viðskiptavinum sínum upp á lausn-
ir til að mæta mögulegum greiðsluvanda sökum kórónu-
veirufaraldursins, meðal annars vegna atvinnumissis eða
veikinda.
Landsbankinn býður upp á frestun afborgana á íbúða-
lánum. Frestunin felur í sér að ekkert er greitt af láninu í
allt að sex mánuði, hvorki afborganir né vextir. Kostirnir
við þennan möguleika eru að viðskiptavinur hefur svig-
rúm til að standa af sér fjárhagsleg áföll en ókosturinn
er að lánið heldur áfram að safna vöxtum eftir sem áður
sem bætast við höfuðstólinn. Heildarlánstími helst svo
óbreyttur svo búast má við að afborganir verði eitthvað
hærri þegar greiðslur hefjast að nýju. Eins er hægt að
sækja um greiðsludreifingu kreditkorta, hækkun yfirdrátt-
ar, og Aukalán til fimm ára í gegnum netapp bankans.
Hægt er að sækja um frestun greiðslna íbúðalána í
gegnum landsbankinn.is. Til að fá úrræðið þarf að gera
viðauka við lánið og þinglýsa og kostar það 10.000 krónur
auk 2.500 króna þinglýsingargjalds.
Íslandsbanki býður upp á frystingu útlána tímabund-
ið. Frysting þessi er í reynd sambærileg greiðslufresti og
heldur lánið eftir sem áður áfram að safna vöxtum. Eins er
viðskiptavinum bent á möguleikann að endurfjármagna
lán eða gera skilmálabreytingu þar sem lánstími er lengd-
ur til að lækka greiðslubyrði. Einnig er boðið upp á að
dreifa kortagreiðslum, hækka yfirdráttarheimild og óska
eftir tímabundnu láni í gegnum app bankans. Hægt er að
bóka símtal við ráðgjafa í gegnum islandsbanki.is.
Arion banki býður einstaklingum að gera hlé á afborg-
unum í allt að þrjá mánuði. Þá er lánið fryst og ekkert greitt
af því í þrjá mánuði. Afborganir og vextir leggjast þá á höf-
uðstól lánsins til hækkunar og þegar afborganir hefjast að
nýju verða þær því hærri en áður. Einnig er boðið upp á að
dreifa kortagreiðslum, hækka yfirdráttarheimild og óska
eftir tímabundnu láni í gegnum app bankans. Til að sækja
um frestunina er hægt að hafa samband við adstod@
arionbanki.is.
Hvað með pakkaferðina?
Neytendastofa hefur gefið út þær upplýsingar að þeir sem
eigi pantaðar svokallaðar pakkaferðir eigi rétt á að afpanta
ferð ef um óvenjulegar og óviðráðanlegar aðstæður sem
hafa áhrif á framkvæmd ferðarinnar er að ræða. Dæmi um
slíkar aðstæður séu til dæmis sjúkdómar eða farsóttir.
Neytendasamtökin hafa gefið
út að margir hafi leitað til þeirra
þar sem ferðaskrifstof-
ur hafi neitað að endur-
greiða ferðir að fullu í til-
felli afbókana, þó um sé
að ræða ferðir til skil-
greinda áhættusvæða
vegna COVID-19.
Neytendasamtökin
taka fram að ferða-
langar eigi rétt á að
afpanta pakkaferð-
ir áður en þær hefj-
ast, gegn greiðslu
þóknunar sem oft
er staðfestingar-
gjaldið. Hins vegar
hefur ferðaskrifstofa
ekki rétt á þessari þóknun
ef um óvenjulegar aðstæð-
ur er að ræða, en samtökin telja
ljóst að það eigi við um stöðuna í
dag, sérstaklega þegar um er að ræða
fyrir hugaðar ferðir til áhættusvæða. Endur-
greiðsla skal þá berast innan 14 daga. Neytendasam-
tökin hvetja ferðalanga til að hafa samskipti sín við ferða-
skrifstofu skrifleg til að draga úr hættu á misskilningi. Ekki
er ljóst hversu langan fyrirvara ferðalangar þurfa að gefa,
en samtökin hafa óskað eftir áliti Neytendastofu á því
álitaefni.
Eins hvetja samtökin ferðalanga til að varast inn-
eignarnótur. Lögin tali um endurgreiðslu ferðakostnaðar
og hætta sé á að inneignarnótur verði verðlausar, fari allt
á versta veg.
Flugferðir
Framangreint gildir bara um pakkaferðir. Önnur sjón-
armið eiga við þegar um flugferðir er að ræða. Ef flugfé-
lag aflýsir flugi sökum ástandsins þá á farþegi rétt á fullri
endurgreiðslu, en ekki skaðabótum. Ef farþegi hættir við
flugið sjálfur þá myndast ekki bótaréttur og ekki réttur til
endurgreiðslu farmiða fyrir utan skatta og gjöld. Þá gæti
verið hægt að leita til trygginga- eða kortafyrirtækja en í
skilmálum þeirra má stundum finna ákvæði um stöðuna
þegar komið er í veg fyrir ferð vegna hafta yfirvalda. Því eru
lesendur hvattir til að kynna sér skilmála hjá trygginga-
fyrirtæki sínu eða kortafyrirtækjum og kanna stöðu sína.
Hvað ef ég kemst ekki heim?
Ef þú ert staddur í pakkaferð, en kemst ekki heim sök-
um hafta og banna þá ber þjónustuveitanda þínum að
aðstoða þig. Meðal annars með því að koma til þín upp-
lýsingum um heilbrigðisþjónustu og breytingu á ferða-
plönum. Ferðaskrifstofan á að sjá þér fyrir gistingu í að há-
marki þrjár nætur, að þeim liðnum gætir þú sjálfur þurft
að standa undir kostnaði.
Hvað með vinnuna og
launagreiðslur?
Ástandið þýðir óumflýjan-
lega að margir atvinnurek-
endur verða fyrir mikl-
um fjárhagslegum skelli
og í slíkri stöðu vofir
hættan á uppsögnum
yfir. Ríkis stjórnin hef-
ur því lagt fram
frumvarp sem mið-
ar að því að fólk fái
rýmri heimildir til
atvinnuleysis bóta
samhliða minnk-
uðu starfshlutfalli
til að skapa hvata til
þess að atvinnurekend-
ur grípi síður til uppsagna
og frekar til þess að minnka
starfshlutfall. Þá vonandi
tímabundið.
Einstaklingar í sóttkví og ein-
angrun hafa margir áhyggjur af af-
komu sinni. Veikir einstaklingar hafa rétt
á að klára veikindadaga sína hjá vinnuveit-
anda og leita svo til sjúkrasjóða stéttarfélaga. Þeir sem
sitja heima með veik börn geta að sama skapi nýtt veik-
indadaga vegna barna hjá vinnuveitanda og síðan skapast
réttur í sjúkrasjóðum stéttarfélaganna.
Einstaklingar í sóttkví eiga að fá greitt frá atvinnurek-
anda samkvæmt nýju lagafrumvarpi Alþingis. Atvinnu-
rekandi getur svo sótt um aðstoð stjórnvalda til að standa
straum af þessum greiðslum. Þetta er tímabundið úrræði
sem miðast við sóttkví frá 1. febrúar 2020 til og með 30.
apríl 2020. Sóttkví á ekki að ganga á veikindarétt launa-
manns.
Foreldrar barna í sóttkví eiga rétt til fjarvista án launa en
eiga að geta nýtt ótekið orlof. Stéttarfélög vinna nú að úr-
lausnum í samstarfi við stjórnvöld til að tryggja að launa-
menn verði ekki fyrir tekjumissi í þessum aðstæðum.
Ef atvinnurekandi lokar vinnustað tímabundið vegna
faraldursins þá falla launagreiðslur ekki niður. Eins ef at-
vinnurekandi sjálfur óskar eftir því að launamaður sæti
sóttkví.
Annað gildir þó þegar launamaður tekur sjálfur
ákvörðun um sóttkví, þá án fyrirmæla yfirvalda. Slíkt er þá
gert á eigin áhættu og eigin kostnað.
Kvíði getur fallið undir veikindahugtakið, svo þeir sem
treysta sér ekki til vinnu sökum kvíða geta átt rétt til launa
í veikindum en þurfa þá að afla sér læknisfræðilegs mats.
Foreldrar barna sem verða fyrir skerðingu á skólastarfi
eiga ekki rétt til launa. Þá þarf að nýta orlofsrétt eða óska
eftir launalausu leyfi, nema viðkomandi geti sinnt vinnu
sinni heima. n
Erla Dóra
erladora@dv.is